Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 2

Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 2
Veður Norðlæg átt, 8-15 í dag, en 10-18 suðaustanlands seinnipartinn. Þungbúið og væta á köflum norðan og austan til, en bjart að mestu sunnan- og vestanlands. sjá síðu 44 Gráir fyrir járnum í Hafnarfirði umhverfismál Meira en 20 bændur sem bjóða upp á bændagistingu eru að skoða, í samstarfi við Hey Icel­ and, sem áður hét Ferðaþjónusta bænda, hvort þeir geti boðið gestum upp á hleðslu fyrir rafbíla. Uppbygging innviða er sögð for­ senda fyrir því að rafbílum fjölgi verulega á landinu. Bílaleigur fluttu á síðasta ári inn um 45 prósent allra bíla. Þeir forsvarsmenn bíla­ leiga sem Fréttablaðið hefur rætt við segja að langt sé í land með að bílaleigur geti keypt rafbíla í stórum stíl. Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar/Hölds vakti athygli á því í gær að engin hleðslu­ stöð væri við Keflavíkurflugvöll og að það þyrftu að vera slíkar stöðvar um allt land. „Við erum enn þá í þessari grunn­ vinnu en markmið okkar er skýrt. Við viljum taka þátt í því að þétta netið í kringum landið og veita við­ skiptavinum okkar, hvort sem það eru Íslendingar eða útlendingar, þá þjónustu að geta boðið upp á að hlaða bílinn sinn,“ segir Berg­ lind Viktorsdóttir, hjá Hey Iceland. Umhverfismál hafi alltaf skipt Hey Iceland máli og því sé þátttaka í uppbyggingu hleðslustöðva eðli­ legt skref. „Við vitum að þetta er langhlaup en á innanlandsmarkaði gerast hlutirnir mjög hratt og það er mjög sjálfsagt að taka þátt í að styrkja inn­ viðina um landið,“ bætir Berglind við. Hún býst við að fyrst í stað verði eftirspurnin eftir þessari þjónustu meiri á meðal innlendra ferða­ manna heldur en erlendra. „Við erum að taka skrefin smám saman og gerum okkur grein fyrir því að innanlandsmarkaðurinn sé kannski nærtækari að svo stöddu,“ segir Berglind. Að sama skapi sé þá verið að búa til reynslu fyrir seinni tíma. Berglind segir að þeir ríflega tutt­ ugu bændur sem hafi lýst sig reiðu­ búna til að taka þátt í verkefni af þessu tagi séu dreifðir um allt land. „Þegar við sendum fyrsta póstinn á okkar félagsmenn þá fengum við jákvæð viðbrögð og það er greini­ legt að það eru aðilar sem eru búnir að vera að hugsa um þetta,“ segir hún. „En við erum í þessum undir­ búningsfasa og viljum vinna grunn­ vinnuna vel. Við viljum koma því á framfæri að þetta verður ekki í boði allstaðar þó að það verði kannski í framtíðinni,“ segir hún. Auk þess að vera í samstarfi við viðkomandi bændur er undirbún­ ingurinn að verkefninu unninn í samstarfi við Orkusetrið og Bænda­ samtökin. jonhakon@frettabladid.is Tugir bænda vilja fá rafbíla í bæjarhlaðið Yfir tuttugu ferðaþjónustubændur skoða uppbyggingu hleðslustöðva fyrir raf- bíla. Verkefni á undirbúningsstigi unnið í samstarfi við Orkusetrið og Bænda- samtökin. Búast við meiri eftirspurn meðal innlendra ferðamanna en erlendra. Nauðsynlegt er að fjölga hleðslustöðvum fyrir rafbíla. Fréttablaðið/Pjetur Við viljum taka þátt í því að þétta netið í kringum landið og veita viðskiptavinum okkar, hvort sem það eru Íslendingar eða útlendingar, þá þjónustu að geta boðið upp á að hlaða bílinn sinn. Berglind Viktors- dóttir hjá Hey Iceland MALLORCA 21. ágúst í 10 nætur Bókaðu sól á Netverð á mann frá kr. 69.995 m.v. 2 fullorðna í gistingu.Stökktu Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI á flugsæti m/gistingu FY RI R2 1 Frá kr. 69.995 Aðrir gistivalkostir í boði stjórnsýsla Ríkiskaup reyna nú að selja á uppboði gamlan skrifstofu­ húsbúnað sem út af stóð þegar emb­ ætti sýslumannsins í Kópavogi flutti sig af Dalvegi upp í Hlíðarsmára. Um er að ræða tugi skrifborða, skápa og stóla sem ekki var hægt að nýta eða hentuðu ekki hinu nýja húsnæði. Samkvæmt auglýsing­ unni sem birtist á uppboðsvefnum Bílauppboð.is í gær er búnaðurinn um 18 ára gamall. Sumt kann að vera orðið slitið en tekið er fram að ástand sé ekki með öllu þekkt. Öll þessi skrifborð, skápar og stólar þurfa að seljast í heilu lagi og sækja sem fyrst að uppboðinu loknu vegna framkvæmda. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins mun Útlendingastofnun væntanlega flytja í húsnæðið. Er þetta því kjörið tækifæri fyrir þá sem eru að stofna nýtt fyrirtæki og vilja sækja sér innanstokksmuni – skápa, skrifborð og stóla  sem margur viðskiptavinur sýslumanns­ ins í Kópavogi hefur í gegnum tíð­ ina vafalaust virt fyrir sér í bið eftir afgreiðslu. – smj Mublur sýslumannsins í Kópavogi á uppboð Útlendingastofnun flytur í húsnæðið á Dalveginum í Kópavogi. heilbrigðismál Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geð­ hjálpar, segir nauðsynlegt að bæta skráningu sjálfsvíga á sjúkrastofn­ unum ríkisins. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagðist hún hafa beðið í tvö ár eftir niðurstöðum rannsóknar á máli manns sem svipti sig lífi stuttu eftir að hann yfirgaf bráðamót­ tökuna. Samkvæmt upplýsingum frá Landlækni þyrfti að leggjast í tölu­ verða vinnu til þess að finna tölur yfir fjölda þeirra sem framið hafa sjálfsvíg inni á stofnunum ríkisins. Ungur maður svipti sig lífi á geð­ deild Landspítalans í síðustu viku. Anna segist vilja að rótargreining verði gerð á máli mannsins, þar sem undirliggjandi orsakir atvika eru greind. – ss Mikilvægt að bæta skráningu sjálfsvíga Sérsveit lögreglu var send ásamt lögreglu og slökkviliði að skrifstofuhúsnæði við Cuxhavengötu í Hafnarfirði í gær. Leigjandi í húsinu hafði hótað að vinna fólki mein með skotvopni. Var maðurinn handtekinn og fannst “eitt og annað” við húsleit hjá honum, að því er RÚV greindi frá. Hann hafði hringt í neyðarlínuna til að fá aðstoð við vatnsleka og sagst ætla að grípa til skotvopns, bærist aðstoðin ekki. MyND/FjarðarFréttir 1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 f i m m t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 7 F -6 B 5 4 1 D 7 F -6 A 1 8 1 D 7 F -6 8 D C 1 D 7 F -6 7 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.