Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 4
✿ Haldlagt magn kókaíns á Íslandi
20
15
10
5
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
12.840 gr.
6.468 gr.
7.720 gr.
5.391 gr.
5.684 gr.
3.888 gr.
5.273 gr.
2.535 gr. 1.736 gr.
9.738 gr.
8.025 gr.*
20.703 gr.**
*Tölur fyrir árið 2016 eru bráðabirgðatölur.
**Fyrstu sjö mánuðir ársins 2017 skv. uppl. frá lögreglunni á Suður-
nesjum. Uppl. um fyrri ár úr afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra.
lögreglumál Tollgæslan á Kefla-
víkurflugvelli hefur lagt hald á
næstum jafnmikið magn af kókaíni
á fyrstu sjö mánuðum ársins og lög-
regla og tollgæsla lögðu hald á árin
fjögur þar á undan til samans. Ljóst
er að eftirspurnin er mikil þar sem
smyglarar hafa verið stöðvaðir með
hátt í 21 kíló af kókaíni við komuna
til landsins á árinu. Kókaín er eitt
dýrasta fíkniefnið á markaðnum
en algengt er að grammið sé selt á
allt að 18 þúsund krónur. Lögregla
segir árið í ár hafa verið einsleitt þar
sem kókaín sé nánast það eina sem
reynt er að smygla og meira sé af því
í umferð en oft áður.
Lögreglan á Suðurnesjum greindi
frá því á dögunum að á fyrstu sjö
mánuðum ársins hefði tollgæslan
lagt hald á alls 20,7 kíló af kókaíni
af mismunandi styrkleika og formi.
Efnin hafa öll fundist við tollleit á
erlendum einstaklingum, ýmist í
farangri eða innvortis.
Til samanburðar þá lagði lögregla
og tollgæsla hald á rúm átta kíló af
kókaíni allt árið í fyrra, 9,7 kíló árið
2015 og 1,7 kíló árið 2014. Óhætt er
því að tala um verulega sprengingu
í þessum efnum það sem af er ári
enda stefnir í algjört metár. Ekki
hefur verið lagt hald á viðlíka magn
af kókaíni og í ár á einu ári í fjórtán
ár, miðað við afbrotatölfræði Ríkis-
lögreglustjóra sem Fréttablaðið
skoðaði aftur til ársins 2003.
Ef miðað er við algengt söluverð
á grammi af kókaíni í dag, sem er
á bilinu 16 til 18 þúsund krónur,
mætti áætla að götuvirði efnanna
sem haldlögð hafa verið það sem af
er ári sé á bilinu 330 til 372 milljónir
króna.
„Þetta er mun meira af kókaíni en
áður og hefur verið einsleitt og sér-
stakt ár að því leyti. Þetta er nánast
bara kókaín,“ segir Jóhannes Jens-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á Suðurnesjum. Hann
segir að hver og einn verði að draga
sínar ályktanir af því hvort verið sé
að framleiða hin efnin í meiri mæli
hér eða þau fari eftir öðrum leiðum,
en ekkert haldbært liggi fyrir í því.
Grímur Grímsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, segir að þar á bæ
hafi menn tekið eftir þessari ugg-
vænlegu þróun.
„Já, ég get staðfest að í okkar störf-
um verðum við vör við að það er
meira af kókaíni í umferð en áður.“
Kókaín hefur það orð á sér að
vera ákveðið lúxusfíkniefni sökum
þess hversu dýrt það er og mætti því
segja það ákveðinn góðærismæli-
kvarða.
„Það er þannig að árið 2007,
þegar vel gekk hjá okkur efnahags-
lega, urðum við vör við aukningu í
notkun kókaíns,“ segir Grímur.
Tölurnar virðast staðfesta þessa
þróun þó sveiflur hafi verið í hald-
lögðu magni milli ára. Lagt var hald
á töluvert magn ár hvert frá 2006-
2008 eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu. Heldur dró síðan úr magni
kókaíns árin eftir það en augljósa
uppsveiflu má síðan greina frá árinu
2015. mikael@frettabladid.is
Kókaínflóð á fíkniefnamarkaði
til marks um góðæri á Íslandi
Haldlagt magn kókaíns það sem af er ári er á við magn síðustu fjögurra ára til samans. Lögreglan segir meira
af kókaíni í umferð en oft áður. Efnahagslegur uppgangur í þjóðfélaginu hefur áhrif. Tæplega 21 kíló af
kókaíni hefur verið tekið á Keflavíkurflugvelli í ár. Á götunni kostar slíkt magn allt að 370 milljónum króna.
20,7 kg
Kókaín sem haldlagt hefur
verið, bara í Leifsstöð, það
sem af er ári.
14. - 19. ÁGÚST
FJALLAHJÓLA VIKA! AFSLÁTTUR
AF MONGOOSE T
YAX, METEORE, SW
ITCHBACK, ARGUS
FATBIKE,
GIRO F
JALLAHJÓLAHJÁLM
UM OG FJALLAHJÓ
LASKÓM
ÚTSÖLUVIKUR Í ÁGÚST!WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200
30%
Stjórnmál Halldór Halldórs-
son, oddviti Sjálfstæðismanna í
Reykjavík, hyggst ekki gefa kost á
sér í leiðtogakjöri flokksins fyrir
sveitarstjórnarkosningar á næsta
ári. Þetta tilkynnti Halldór í beinni
útsendingu í fréttum Stöðvar 2 í
gær. Sagði Halldór að hann hafi
komist að þessari niðurstöðu fyrir
tíu dögum, eftir að hafa endurmetið
aðstæður sínar. Fyrir viku sagði
Halldór í samtali við Frétta-
blaðið að hann hygðist sækj-
ast áfram eftir oddvitasætinu,
en tók fram að vika væri þó
langur tími í pólitík.
Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá eru
nokkrir orðaðir
við oddvitasætið,
þar á meðal tveir aðstoðarmenn
ráðherra Sjálfstæðisflokksins,
þau Svanhildur Hólm Vals-
dóttir og Borgar Þór Einarsson.
„Maður veit ekkert hvort
þetta er samkvæmisleikur eða
hvort það er eitthvað á bak við
þetta,“ segir Halldór í samtali við
Fréttablaðið. „Það er alltaf þörf á
einhverri endurnýjun. Hvað varðar
leiðtogana og oddvitann þá gera
Sjálfstæðismenn miklar kröfur.
Stundum hef ég á tilfinningunni að
þeir séu að bíða eftir því að Davíð
Oddsson komi aftur með 60% fylgi.
Það var árið 1991 og síðan þá eru
margir oddvitar búnir að vera.“
Skiptar skoðanir eru meðal Sjálf-
stæðismanna um ágæti boðaðs leið-
togakjörs í október. Þykir mörgum
tillagan ekki vera lýðræðisleg. „Ég
held að það sé best að gera þetta
eftir áramót. Mér hefur aldrei hugn-
ast það að fámennur hópi stilli upp
í sæti. Ég tel að sem flestir eigi að
koma að þessu“. – khn
Halldór gefur ekki kost á sér í leiðtogakjöri Sjálfstæðismanna
Halldór Halldórsson,
oddviti Sjálfstæðismanna í
borgarstjórn Reykjavíkur.
lögreglumál Rannsókn héraðs-
saksóknara á meintum innherja-
svikum yfirmanns hjá Icelandair
er ágætlega á veg komin. Ekki er þó
vitað hvenær henni lýkur, að sögn
Ólafs Þórs Haukssonar héraðssak-
sóknara.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
um miðjan síðasta mánuð beinist
rannsókn héraðssaksóknara að
umfangsmiklum viðskiptum með
hlutabréf í Icelandair Group sem
gerð voru í aðdraganda þess að
félagið sendi frá sér afkomutilkynn-
ingar til Kauphallarinnar.
Er hópur manna grunaður um
að hafa nýtt sér í nokkur skipti inn-
herjaupplýsingar sem þeir fengu frá
yfirmanni hjá Icelandair. Yfirmað-
urinn var sendur í leyfi frá störfum
þegar málið komst upp í lok maí
síðastliðins.
Mennirnir gerðu svonefnda fram-
virka samninga við innlendar fjár-
málastofnanir, þar á meðal Lands-
bankann, en ljóst þykir að þær hafi
tapað háum fjárhæðum á samning-
unum.
Héraðssaksóknari hefur kyrrsett
tugi milljóna króna vegna málsins,
en fjármunirnir eru ætlaður hagnað-
ur mannanna af viðskiptunum. – kij
Rannsókn á
innherjasvikum
miðar ágætlega
Yfirmaðurinn var sendur í leyfi frá
störfum. FRéttablaðið/anton bRink
Héraðssaksóknari hefur
kyrrsett tugi milljóna vegna
málsins. Peningarnir eru
ætlaður hagnaður mann-
anna.
1 7 . á g ú S t 2 0 1 7 F I m m t u D A g u r4 F r é t t I r ∙ F r é t t A B l A ð I ð
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-7
F
1
4
1
D
7
F
-7
D
D
8
1
D
7
F
-7
C
9
C
1
D
7
F
-7
B
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K