Fréttablaðið - 17.08.2017, Page 8

Fréttablaðið - 17.08.2017, Page 8
Bókin er eins og handrita- og bréfa- safn, þannig að fólk getur lesið um borgina eins og um eiginlega heimild sé að ræða. H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n atvinnuleikhópa Umsóknarfrestur til 2. október Styrkir til Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa á árinu 2018. Veittir eru styrkir til einstakra verkefna eða starfssamninga til tveggja ára. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þann 2. október 2017. Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is. Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn. Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef umsækjandi merkir við þar til gerðan reit í umsóknarformi. Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar leiklistarráð tillögu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins um úthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum. Nánari upplýsingar: atvinnuleikhopar@rannis.is, www.rannis.is Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík. Tengiliður: Ragnhildur Zoëga, sími: 515 5838. Umhverfismál Skipulagsstofnun skoðar nú hvort fleiri hótel á verndarsvæði Mývatns þurfi að fara í umhverfismat. Fosshótel Mývatn starfar nú á grundvelli bráðabirgða- leyfis heilbrigðisnefndar Norður- landssvæðis eystra, sem gildir til 15. september en langtímaleyfi til hótelsins var afturkallað í kjöl- far niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Vegna úrskurðarins þarf Skipulagsstofnun að taka nýja ákvörðun um hvort hótelið þurfi að fara í umhverfismat. Þeirrar ákvörðunar er að vænta eftir um það bil mánuð, að sögn Ásdísar Hlakkar Theodórsdóttur forstjóra Skipulagsstofnunar. Þá er í athugun hjá stofnuninni hvort önnur hótel á verndarsvæð- inu skuli einnig fara í umhverfismat en stofnunin aflar nú upplýsinga hjá öðrum hótelum á svæðinu, eink- um um fráveitumál. „Það var ekki gert á sínum tíma, sem helgast líka af því að löggjöfin hefur breyst frá því þau voru byggð,“ segir Ásdís og bætir við: „En hins vegar höfum við fengið fyrirspurnir vegna annarra hótela á verndar- svæðinu og við erum að afla upp- lýsinga um hvort það krefjist ein- hverrar skoðunar.“ „Við höfum gert fjölda athuga- semda við fjölgun gistirýma á þessu svæði enda er þetta galin þróun,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrands- son, formaður Landverndar, og bætir við „þetta gerist ekki af sjálfu sér, heldur með vilja sveitarstjórnar og Umhverfisstofnunar og enginn virðist ætla að grípa hér í taumana.“ Þótt Fosshótel Mývatn hafi aðeins verið opið í sex vikur er saga verk- efnisins orðin nokkuð löng. Fram- kvæmdir við byggingu þess hófust vorið 2016 en  voru stöðvaðar að kröfu Umhverfisstofnunar í októ- ber  sama ár þar sem leyfis stofn- Kannað hvort fleiri hótel við Mývatn fari í umhverfismat Starfsleyfi Fosshótels Mývatns var afturkallað í júlí. Bráðabirgðaleyfi þess rennur út eftir mánuð. Ákvörðun- ar Skipulagsstofnunar um hvort hótelið þurfi að fara í umhverfismat er beðið. Fleiri hótel á svæðinu gætu einnig þurft umhverfismat. Landvernd hefur ítrekað gert athugasemdir við fjölgun gistirýma á svæðinu. Fosshótel Mývatn starfar á grundvelli bráðabirgðaleyfis sem rennur út 1. september. Mynd/Hilda kristjánsdóttir Þótt hótelið hafi aðeins verið opið í sex vikur er saga þess orðin nokkuð löng: 27. maí 2016: Fram- kvæmdir við byggingu hótels hefjast án leyfis Umhverfisstofnunar. 4. október 2016: Skútu- staðahreppur stöðvar framkvæmdir að beiðni Umhverfisstofnunar. 2. nóvember 2016: Ákvörðun Skipulags- stofnunar um að ekki þurfi umhverfismat. 5. nóvember 2016: Leyfi Umhverfisstofnunar fyrir framkvæmdum og starf- semi. 11. nóvember 2016: Framkvæmdir hefjast á nýjan leik. 1. júlí 2017: Hótelið opnað. 6. júlí 2017: Ákvörðun skipulagsstofnunar tekin úr gildi. 18. júlí 2017: Langtíma- starfsleyfi fellt niður og bráðabrigðastarfsleyfi veitt til 15. september. Við höfum fengið fyrirspurnir vegna annarra hótela á verndar- svæðinu og við erum að afla upplýsinga um hvort það krefjist einhverrar skoðunar. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipu- lagsstofnunar. unarinnar hafði ekki verið aflað og Skipulagsstofnun hafði ekki tekið ákvörðun um hvort framkvæmdin þyrfti umhverfismat. Ákvörðun Skipulagsstofnunar lá fyrir mánuði síðar  og Umhverfisstofnun veitti leyfi fyrir framkvæmdinni í kjöl- farið og framkvæmdir fóru aftur á fullt skrið. Hótelið var svo opnað 1. júlí síðastliðinn. Sex dögum eftir opnunina  kvað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð sem ógilti ákvörðun Skipu- lagsstofnunar og stofnunin þarf því að taka nýja ákvörðun um hvort hótelið þurfi í umhverfismat. Aðspurður segir Davíð Torfi Ólafs- son, framkvæmdastjóri Íslandshót- ela, ansi skrítið að reka hótel undir þessum kringumstæðum. „Við fengum upphaflega langtímaleyfi frá heilbrigðisnefndinni sem gilti til 2022 en það var afturkallað þegar úrskurðurinn kom núna í sumar og nú erum við bara á þessu bráða- birgðaleyfi á meðan við bíðum eftir ákvörðun Skipulagsstofnunar.“ adal- heidur@frettabladid.is efNAhAGsmál Verðbólguálag hefur hækkað skarpt það sem af er ágúst- mánuði en gengi krónunnar hefur veikst um fjögur prósent frá mán- aðamótum.  Þannig er verðbólgu- álag til fjögurra ára nú 2,4 prósent en var aðeins um tvö prósent fyrir nokkrum dögum, að því er fram kemur í nýju skuldabréfayfirliti Capacent. Sérfræðingar Capacent segja að ekki þurfi fimm háskólagráður í hagfræði til þess að sjá að verðbólg- an muni fara vaxandi á næstu mán- uðum ef gengi krónunnar styrkist ekki aftur. Bent er á að kaupmenn séu margir hverjir að huga að inn- kaupum fyrir haustið en gengi krón- unnar sé nú um þremur prósentum veikara en það var að meðaltali á fyrstu þremur mánuðum ársins þegar kaupmenn voru að kaupa inn fyrir sumarið. Þumalputtareglan sé sú að tveir þriðju gengisveikingar krónunnar komi fram í verðlagi á næstu tólf mánuðum. Samkvæmt því ætti verðbólgan að verða um þrjú til fjögur prósent næsta sumar. – kij Verðbólguálag hækkar skarpt krónan hefur veikst um 4% í ágúst. 2,4% er verðbólguálag til fjögurra ára nú. meNNiNG Einar Baldvin Árnason teiknimyndagerðarmaður vinnur nú að útgáfu skáldsögunnar The Crawling King í samstarfi við Star- burns Industries, framleiðendur geysivinsælu teiknimyndaþáttanna Rick and Morty. Útgefendur safna nú fé til að fjár- magna prentun The Crawling King á Kickstarter en bókin er öll hand- skrifuð og handteiknuð. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær hafði tæp milljón króna safnast. Að sögn Einars Baldvins er hug- myndin að baki bókinni sú að hver einasta síða líkist með því fornleifum frá borginni sjálfri. „Ég var búinn að vera að hugsa lauslega um að gera teiknimynda- seríu þar sem hver þáttur væri ein hryllingssaga, ótengdar sögur en með svipaða stemningu,“ segir Einar Bald- vin. Hann hafði á þeim tíma verið nýbúinn að gera teiknimyndina The Pride of Strathmoor og sýnt þeim hjá Starburns Industries myndina. Það hafi vakið áhuga á frekara samstarfi. „Við fórum síðan að spjalla um hvernig væri hægt að tengja sögurnar saman. Þetta voru sjónvarpsþátta- handrit á þessu stigi, þrjár sögur sem gerðust allar í nútímanum eða að minnsta kosti í einhvers konar óræðri nútíð. Ég fékk þá hugmynd að endurskrifa þær þannig að þær gerðust allar á sama stað, í gjöreyði- lagðri miðaldaborg og þær myndu fjalla um það sem gerðist fyrir og eftir eyðilegginguna og þar af leiðandi fullkomlega tengdar hver annarri.“ Á sama tíma var Starburns Indust- ries að setja saman bókaútgáfudeild innan fyrirtækisins og þótti full- komið að breyta hugmyndinni í bók. „Bókin er eins og handrita- og bréfa- safn, þannig að fólk getur lesið um borgina eins og um eiginlega heimild sé að ræða,“ Einar Baldvin  segir þó að í ljósi þess að bókin sé handskrifuð standi ekki til að þýða hana á íslensku, en hún verður gefin út á ensku. „Það er eiginlega ómögulegt, að minnsta kosti án þess að missa vitið algjör- lega.“ thorgnyr@frettabladid.is Teiknimyndagerðarmaður gefur út bók með framleiðendum Rick and Morty Opna úr bókinni, the Crawling king. Mynd/Einar Baldvin 1 7 . á G ú s t 2 0 1 7 f i m m t U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 7 F -A 6 9 4 1 D 7 F -A 5 5 8 1 D 7 F -A 4 1 C 1 D 7 F -A 2 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.