Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 23
Enn hallar í ýmsum greinum á Rússa í samanburði við Bandaríkin röskum aldarfjórðungi eftir fall Sovétríkjanna.
Meðalævi Bandaríkjamanna hefur
lengzt um níu ár frá 1960, úr 70
árum í 79. Meðalævi Rússa hefur
á sama tíma lengzt um fimm ár,
úr 66 árum í 71. Rússar standa
nú í heilsufarslegu tilliti þar sem
Kaninn stóð 1960 og hafa Banda-
ríkin þó dregizt aftur úr Vestur-
Evrópu að þessu og ýmsu öðru
leyti undangengna áratugi.
Glæst menning,
einhæft efnahagslíf
Sannlega eiga Rússar glæsta sögu,
bókmenntir og listir, og þeir áttu
mikinn og örlagaríkan þátt í að
brjóta stríðsvél nasista á bak aftur
í heimsstyrjöldinni síðari. Það
er lofsvert. En efnahagslíf Rúss-
lands er einhæft. Rússar framleiða
næstum ekkert sem aðrar þjóðir
fýsir að kaupa nema olíu og önnur
hráefni, vodka og ferðalög til
Sankti Pétursborgar. Munurinn
á kaupmætti tekna á mann í
Bandaríkjunum og Rússlandi er
næstum þrefaldur Kananum í
vil. Það tekur bandaríska fjöl-
skyldu því að meðaltali bara fjóra
mánuði eða svo að vinna sér
inn það sem rússnesk fjölskylda
þarf heilt ár til að hala inn. Sex
verðmætustu fyrirtæki heims nú
eru öll bandarísk, þar af fimm
tæknifyrirtæki (Apple, Google
(eða réttar sagt móðurfyrirtækið
Alphabet), Microsoft, Amazon og
Facebook) og eitt fjármálafyrir-
tæki (Berkshire Hathaway í eigu
auðkýfingsins Warren Buffet).
Eru þau ofmetin? Kannski. Ekkert
olíufélag er á listanum og enginn
banki.
Brostnar vonir
Miklar vonir voru bundnar við
Rússland eftir hrun kommún-
ismans. Sumir sáu fyrir sér að
Rússland tæki þá upp óskorað
lýðræði og ekki bara markaðs-
búskap, en svo fór þó ekki af
ýmsum ástæðum. Í fróðlegum
samtölum við Oliver Stone, kvik-
myndaleikstjórann, lýsir Vladímir
Pútín Rússlandsforseti því að eftir
fall Sovétríkjanna átti sjöundi
hver Rússi skyndilega heima utan
Rússlands. En hvað með það? Er
það vandamál? Er það vandamál
í augum Þjóðverja að sjöundi
hver þýzkumælandi maður býr í
Austurríki og Sviss? Spurningin
svarar sér sjálf. Sködduð leppríki
Sovétríkjanna við Eystrasalt og í
Austur-Evrópu vildu flest ganga í
Nató um leið og færi gafst. Nató
féllst á umsóknir þeirra og teygði
þar með landhelgi sína alla leið að
landamærum Rússlands. Rússum
var mörgum misboðið. Kannski
hefði verið hyggilegra að finna
aðra leið til að tryggja öryggi þess-
ara landa.
Rússar hafa frá fornu fari skipzt
í tvo hópa, þá sem vilja helzt
semja sig að siðum Vestur-Evrópu
líkt og Pétur mikli (1672-1725) og
Pútín sjálfur og hina sem kjósa
heldur að líta austur á bóginn og
inn á við. Tillit til síðari hópsins
torveldar framsókn vestræns lýð-
ræðis og mannréttinda í Rússlandi
af sjónarhóli þeirra sem myndu
fagna nánari tengslum við Rússa.
Við bætist misheppnuð einka-
væðing sem leiddi til þjófræðis
sem þolir ekki dagsbirtu og
Rússahatur? Nei, öðru nær
kallar á ofbeldi gagnvart stjórnar-
andstæðingum, blaðamönnum
o.fl. Dómstólarnir, dúman (þ.e.
þingið) og ríkissjónvarpið dansa
eftir pípu Pútíns forseta. Guð-
faðir barna Pútíns, sellóleikarinn
Sergei Rodugin, reyndist vera
skráður fyrir 100 milljónum dala í
Panamaskjölunum og segist hafa
aflað fjárins með samskotum. Frá
1992 hafa 38 blaðamenn verið
myrtir í Rússlandi, jafnmargir og
í Mexíkó, borið saman við fjögur
morð á blaðamönnum í Banda-
ríkjunum á sama tíma. Það sem af
er þessu ári hafa sjö blaðamenn
verið myrtir, þar af tveir í Rúss-
landi, fjórir í Mexíkó og einn á
Filippseyjum.
Meint lögbrot
Bandaríkin leika nú á reiðiskjálfi
vegna yfirstandandi rannsóknar
á meintum ólöglegum tengslum
Trumps forseta og manna hans við
Rússa, ekki bara fyrir forsetakjörið
í fyrra heldur einnig aftur í tímann.
Bandaríkin eru óskorað réttarríki.
Meint lögbrot eru yfirleitt rann-
sökuð, það er reglan, þeim er helzt
ekki sópað undir teppi. Reynslan
sýnir að brotlegur forseti er ekki
óhultur og þá ekki menn hans
heldur. Þegar forsetinn staðfesti
fyrir stuttu lög um nýjar viðskipta-
þvinganir gagnvart Rússum sagði
hann að lögin brytu gegn stjórnar-
skránni en skrifaði samt undir.
Rannsókn sérstaks saksóknara á
Rússatengslunum er ekki sprottin
af Rússahatri. Að saka þá sem
benda á það sem aflaga fer í Rúss-
landi um Rússahatur er eins og að
saka þá sem gagnrýna ákvarðanir
stjórnvalda um fyrirlitningu á
stjórnmálum og stjórnmála-
mönnum. Svo þarf þó ekki að
vera. Finnist mér tiltekin hljóm-
sveit ekki góð, vitnar það ekki um
fyrirlitningu á tónlist og tónlistar-
mönnum, nei, alls ekki, heldur
þvert á móti.
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Ný Siemens þvottavél
með sensoFresh
- og öðrum kostum sem við öll
þurfum á að halda í dagsins önn.
Þessi nýja þvottavél frá Siemens er algjör bylting.
Hún er búin glænýrri tækni sem kallast sensoFresh og virkar eins og
þurrhreinsun. Notar hvorki vatn né sápu. Fjarlægir lykt (t.d. matarlykt)
úr viðkvæmum fatnaði á áhrifaríkan hátt. Fyrir fatnað sem ekki má þvo í
þvottavél, s.s. jakka, blússur, silki o.fl.
Vélin tekur mest 8 kg og er með íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára
ábyrgð. Tromlan („waveDrum“) fer einstaklega vel með þvottinn. 15 mín.
hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið leitast við að gera hana
mjög stöðuga og hljóðláta („antiVibration Design“).
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
Gildir til og með 25. ágúst eða á meðan birgðir endast. Takmarkað magn.
Kynningarverð:
122.900 kr.
Fullt verð: 154.900 kr.
Þvottavél, WM 14W768DN
Fljótandi þvottaefni
frá Ariel fylgir með
öllum Siemens
Tromluhreinsun Húðvernd Þurrhreinsun
8
Tekur mest
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F i M M T u d a g u R 1 7 . á g ú S T 2 0 1 7
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-A
B
8
4
1
D
7
F
-A
A
4
8
1
D
7
F
-A
9
0
C
1
D
7
F
-A
7
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K