Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2017, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 17.08.2017, Qupperneq 23
Enn hallar í ýmsum greinum á Rússa í samanburði við Bandaríkin röskum aldarfjórðungi eftir fall Sovétríkjanna. Meðalævi Bandaríkjamanna hefur lengzt um níu ár frá 1960, úr 70 árum í 79. Meðalævi Rússa hefur á sama tíma lengzt um fimm ár, úr 66 árum í 71. Rússar standa nú í heilsufarslegu tilliti þar sem Kaninn stóð 1960 og hafa Banda- ríkin þó dregizt aftur úr Vestur- Evrópu að þessu og ýmsu öðru leyti undangengna áratugi. Glæst menning, einhæft efnahagslíf Sannlega eiga Rússar glæsta sögu, bókmenntir og listir, og þeir áttu mikinn og örlagaríkan þátt í að brjóta stríðsvél nasista á bak aftur í heimsstyrjöldinni síðari. Það er lofsvert. En efnahagslíf Rúss- lands er einhæft. Rússar framleiða næstum ekkert sem aðrar þjóðir fýsir að kaupa nema olíu og önnur hráefni, vodka og ferðalög til Sankti Pétursborgar. Munurinn á kaupmætti tekna á mann í Bandaríkjunum og Rússlandi er næstum þrefaldur Kananum í vil. Það tekur bandaríska fjöl- skyldu því að meðaltali bara fjóra mánuði eða svo að vinna sér inn það sem rússnesk fjölskylda þarf heilt ár til að hala inn. Sex verðmætustu fyrirtæki heims nú eru öll bandarísk, þar af fimm tæknifyrirtæki (Apple, Google (eða réttar sagt móðurfyrirtækið Alphabet), Microsoft, Amazon og Facebook) og eitt fjármálafyrir- tæki (Berkshire Hathaway í eigu auðkýfingsins Warren Buffet). Eru þau ofmetin? Kannski. Ekkert olíufélag er á listanum og enginn banki. Brostnar vonir Miklar vonir voru bundnar við Rússland eftir hrun kommún- ismans. Sumir sáu fyrir sér að Rússland tæki þá upp óskorað lýðræði og ekki bara markaðs- búskap, en svo fór þó ekki af ýmsum ástæðum. Í fróðlegum samtölum við Oliver Stone, kvik- myndaleikstjórann, lýsir Vladímir Pútín Rússlandsforseti því að eftir fall Sovétríkjanna átti sjöundi hver Rússi skyndilega heima utan Rússlands. En hvað með það? Er það vandamál? Er það vandamál í augum Þjóðverja að sjöundi hver þýzkumælandi maður býr í Austurríki og Sviss? Spurningin svarar sér sjálf. Sködduð leppríki Sovétríkjanna við Eystrasalt og í Austur-Evrópu vildu flest ganga í Nató um leið og færi gafst. Nató féllst á umsóknir þeirra og teygði þar með landhelgi sína alla leið að landamærum Rússlands. Rússum var mörgum misboðið. Kannski hefði verið hyggilegra að finna aðra leið til að tryggja öryggi þess- ara landa. Rússar hafa frá fornu fari skipzt í tvo hópa, þá sem vilja helzt semja sig að siðum Vestur-Evrópu líkt og Pétur mikli (1672-1725) og Pútín sjálfur og hina sem kjósa heldur að líta austur á bóginn og inn á við. Tillit til síðari hópsins torveldar framsókn vestræns lýð- ræðis og mannréttinda í Rússlandi af sjónarhóli þeirra sem myndu fagna nánari tengslum við Rússa. Við bætist misheppnuð einka- væðing sem leiddi til þjófræðis sem þolir ekki dagsbirtu og Rússahatur? Nei, öðru nær kallar á ofbeldi gagnvart stjórnar- andstæðingum, blaðamönnum o.fl. Dómstólarnir, dúman (þ.e. þingið) og ríkissjónvarpið dansa eftir pípu Pútíns forseta. Guð- faðir barna Pútíns, sellóleikarinn Sergei Rodugin, reyndist vera skráður fyrir 100 milljónum dala í Panamaskjölunum og segist hafa aflað fjárins með samskotum. Frá 1992 hafa 38 blaðamenn verið myrtir í Rússlandi, jafnmargir og í Mexíkó, borið saman við fjögur morð á blaðamönnum í Banda- ríkjunum á sama tíma. Það sem af er þessu ári hafa sjö blaðamenn verið myrtir, þar af tveir í Rúss- landi, fjórir í Mexíkó og einn á Filippseyjum. Meint lögbrot Bandaríkin leika nú á reiðiskjálfi vegna yfirstandandi rannsóknar á meintum ólöglegum tengslum Trumps forseta og manna hans við Rússa, ekki bara fyrir forsetakjörið í fyrra heldur einnig aftur í tímann. Bandaríkin eru óskorað réttarríki. Meint lögbrot eru yfirleitt rann- sökuð, það er reglan, þeim er helzt ekki sópað undir teppi. Reynslan sýnir að brotlegur forseti er ekki óhultur og þá ekki menn hans heldur. Þegar forsetinn staðfesti fyrir stuttu lög um nýjar viðskipta- þvinganir gagnvart Rússum sagði hann að lögin brytu gegn stjórnar- skránni en skrifaði samt undir. Rannsókn sérstaks saksóknara á Rússatengslunum er ekki sprottin af Rússahatri. Að saka þá sem benda á það sem aflaga fer í Rúss- landi um Rússahatur er eins og að saka þá sem gagnrýna ákvarðanir stjórnvalda um fyrirlitningu á stjórnmálum og stjórnmála- mönnum. Svo þarf þó ekki að vera. Finnist mér tiltekin hljóm- sveit ekki góð, vitnar það ekki um fyrirlitningu á tónlist og tónlistar- mönnum, nei, alls ekki, heldur þvert á móti. Þorvaldur Gylfason Í dag Ný Siemens þvottavél með sensoFresh - og öðrum kostum sem við öll þurfum á að halda í dagsins önn. Þessi nýja þvottavél frá Siemens er algjör bylting. Hún er búin glænýrri tækni sem kallast sensoFresh og virkar eins og þurrhreinsun. Notar hvorki vatn né sápu. Fjarlægir lykt (t.d. matarlykt) úr viðkvæmum fatnaði á áhrifaríkan hátt. Fyrir fatnað sem ekki má þvo í þvottavél, s.s. jakka, blússur, silki o.fl. Vélin tekur mest 8 kg og er með íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Tromlan („waveDrum“) fer einstaklega vel með þvottinn. 15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta („antiVibration Design“). Við leggjum áherslu á hágæða vörur og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði. Gildir til og með 25. ágúst eða á meðan birgðir endast. Takmarkað magn. Kynningarverð: 122.900 kr. Fullt verð: 154.900 kr. Þvottavél, WM 14W768DN Fljótandi þvottaefni frá Ariel fylgir með öllum Siemens Tromluhreinsun Húðvernd Þurrhreinsun 8 Tekur mest Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F i M M T u d a g u R 1 7 . á g ú S T 2 0 1 7 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 7 F -A B 8 4 1 D 7 F -A A 4 8 1 D 7 F -A 9 0 C 1 D 7 F -A 7 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.