Fréttablaðið - 17.08.2017, Page 24
Engin breyting mun verða á lífskjörum þeirra sem minna mega sín fyrr en stjórnvöld
temja sér hugafarsbreytingu og
raunsæi. Litlu sem engu skipta póli
tískar skoðanir þar sem of margir
telja að aðhald og sparnaður skuli
liggja annars staðar en í eigin gælu
verkefnum og hugsjónum. Þúsundir
hafa vart til hnífs og skeiðar eða geta
búið við eðlilegar og mannsæmandi
heimilisaðstæður og allt of margir
eiga nánast hvergi samastað eða
væntingar um betra líf vegna mis
skiptingar.
Samfélagið lætur stjórnast af að
byggja flísalagðar hallir og annað
skrum og lætur sig engu varða sam
félagslega ábyrgð. Milljörðum er
mokað í sérhagsmunapot og gælu
verkefni á sama tíma og heilbrigðis
kerfið er í molum og öldruðum og
fleirum er stíað í sundur vegna fjár
skorts og húsnæðisvandræða.
Nýgerður stjórnarsáttmáli var
orðaður undir þeim formerkjum að
hjálpa þeim efnaminni að eignast
eða leigja íbúðir á viðráðanlegu
verði, sem er gamalkunnugt stef og
hjákátlegt. Á sama tíma á að fara í
stærstu framkvæmd Íslandssögunn
ar og ráðast í byggingu á nýju þjóðar
sjúkrahúsi sem er þensluhvetjandi
og illa skipulagt.
Stjórnvöld eru með innantóm lof
orð um að á næstu árum muni rísa
ódýrari og minni íbúðir fyrir þá efna
minni án þess að mikið sé viðhaft til
breytingar. Margt bendir til að verð
á litlum íbúðum muni hækka enn
frekar vegna mikillar eftir spurnar,
þenslu og hversu neyðin er mikil,
ekki er óvarlegt að ætla að 30 til 50
fermetra stúdíóíbúðir muni kosta
yfir 35 milljónir. Meðan fasteigna
verð ræðst af eftirspurn munu bygg
ingarverktakar eðlilega ekki afsala
sér þeim ábata, þó svo að búið sé að
gefa væntingar um ódýrt húsnæði
fyrir þá sem hafa minna milli hand
anna. Engu mun skipta þó svo að
slegið hafi verið af ýmsum kröfum
gagnvart byggingarreglugerðum
til sparnaðar, markaðsvirðið mun
verða ofan á.
Síðustu 38 ár er búið að vera
viðvarandi ójafnvægi á bygginga
markaðinum þar sem skuldir og
fasteignaverð sveiflast upp og niður
með tilheyrandi gjaldþrotum og
eignaupptöku. Engan veginn getur
talist eðlilegt að það sé nánast eins
og rússnesk rúlletta fyrir þá efna
minni að kaupa sér húsnæði. Skuld
ugur almenningur var settur á guð
og gaddinn til að bankar ásamt lána
og vogunarsjóðum gætu hámarkað
arðsemi sína í boði stjórnvalda.
Stjórnvöld þurfa að fara að átta sig á
að þeim ber að vera ábyrg og skapa
stöðugleika ásamt vitrænu vaxta og
viðskiptaumhverfi.
Uppsafnaður vandi þeirra sem
vantar húsnæði á viðráðanlegu
verði verður ekki leystur öðruvísi
en ríki, borg og sveitarfélög komi að
með festu og skilmerkilegum hætti
ásamt lífeyrissjóðum og verkalýðs
félögum. Það þarf að beita sértækum
og beittum aðgerðum til að uppræta
húsnæðisvanda, núverandi ástand
mun aðeins ýta enn frekar undir
öryrkjavæðingu og upplausn ásamt
því að verða samfélaginu sífellt
dýrara.
Eðlilegast er að leita út fyrir land
steinana og fá byggingarverktaka og
annað vinnuafl vegna þenslu til að
reisa einföld og ódýr hús með veru
legum kvöðum, t.d. tekjutengt sem
félagslegt húsnæði og ekki fram
seljanlegt, til að fyrirbyggja brask.
Það hlýtur að vera komið nóg af
innantómu hjali og úrræðaleysi. Ef
það er hægt að byggja húsnæði á
landsbyggðinni með allt að helmingi
minni kostnaði en á höfuðborgar
svæðinu, þá ætti að vera hægt að
gera enn betur með framangreind
um hætti. Einnig þarf að stöðva 15
til 20 milljóna lóða og arkitekta
kostnað. Það er neyðarástand hjá
þúsundum manna og kominn tími
til að láta verkin tala með mark
vissum hætti.
Stjórnvöld rangtúlka skuldir
heimilanna sem eru síst minni núna
væri horft framhjá fasteignaverði
sem hefur skrúfast upp ótæpilega.
Þúsundir eiga lítið sem ekkert í hús
næði sínu, ekki síst þeir sem hafa
keypt á uppsprengdu verði í örvænt
ingu sinni og fjármagnað jafnvel
útborgun með óhagstæðum lánum.
Verulegar líkur eru á að margir gangi
aftur í gegnum sömu holskefluna
(2007) og missi húsnæðið þegar fer
að hrikta í vegna óstöðugs gjald
miðils og aðrar efnahagsþrengingar
steðja að.
Landsbanki Íslands er búinn að
vera í fararbroddi sem eitt stærsta
ræningjabæli landsins í boði stjórn
valda, tugþúsundir heimila hafa
fengið að gjalda með eignaupptöku
og öðrum hörmungum og væntan
lega verður engin breyting þar á.
Engu virðist skipta þótt bankinn
sé orðinn ríkisbanki. Í flestum sið
menntuðum ríkjum leggja banka
stofnanir sig fram um að vinna með
viðskiptavinum sínum þegar erfið
leikar steðja að en því er þveröfugt
farið í íslenskri bankasýslu. Ótíndir
þjófar og önnur hryðjuverkaógn
mun steðja að landsmönnum meðan
óhindruð sjálftaka úr sameiginlegum
fjárhirslum ríkissjóðs og ríkisbanka
fær að viðgangast í boði veruleika
firrtra stjórnvalda.
Stjórnmálaflokkum má helst líkja
við glæpaklíkur og mafíur sem svífast
einskis til að hygla sér og sínum á
kostnað skattborgara. Alltof margir
gera sér ekki grein fyrir hversu landið
var djúpt sokkið í skuldafen þar sem
óraunhæf uppbygging fékk og fær
að viðgangast af óábyrgum stjórn
völdum og er síðan kölluð góðæri.
Meðan stjórnvöld ríghalda í hand
ónýta mynt munu þúsundir eiga eftir
að missa heimili sín og lífshamingju
vegna óstöðugrar krónu ásamt því að
margir fara óvarlega.
Þúsundir milljarða hafa verið
afskrifaðar og ekki sjálfgefið að svo
verði aftur, ferðamaðurinn mun
tæplega láta ræna sig um aldur og
ævi til að rétta af ríkissjóð. Stjórn
völd ættu að íhuga að verði haldið
áfram á sömu braut verða bankarnir
lítils virði og lítið þangað að sækja til
að borga ríkishalla og rányrkju. Eigi
að afstýra stórfelldum landflótta er
helsta von Íslendinga að landsmenn
vakni og fari að axla ábyrgð.
Stjórnvöld verða að fara að gera
sér grein fyrir hvaða glæp þau eru
að fremja gagnvart þúsundum fjöl
skyldna sem eru í upplausn og allar
vonir brostnar, til að hægt sé að
skapa sér og sínum heimili. Allt of
mörgum eru fyrirmunað að sjá mis
skiptingu og eigin græðgi, stjórn
málamenn eru þar í fararbroddi
enda hugsjónir litlar nema þá helst
þegar endurnýja skal umboð til að
viðhalda nýjum kosningaloforðum.
Stjórnsýsla fari að axla ábyrgð
og sýna siðferði
Samfélagið lætur stjórnast af
að byggja flísalagðar hallir
og annað skrum og lætur
sig engu varða samfélags-
lega ábyrgð. Milljörðum er
mokað í sérhagsmunapot og
gæluverkefni á sama tíma og
heilbrigðiskerfið er í molum
og öldruðum og fleirum er
stíað í sundur vegna fjár-
skorts og húsnæðisvandræða.
Vilhelm
Jónsson
Þegar menn ganga erinda fyrir þá sem gerst hafa sekir um hræðilegustu glæpi gagnvart
varnarlausum, er þeim ekki endi
lega annt um brotamanninn. Og það
er ekki endilega víst að þeim sem
greiða götu brotamannsins sé illa við
fórnarlömb hans. Fleira kemur til.
Góður kunningi minn úr grunn
skóla átti talsvert safn af vínylplöt
um. Föður hans, sem lagði stund á
viðskipti og var athafnamaður með
góð sambönd, fannst koma til álita
að sonurinn seldi aðgengi að safninu
og yrði sér úti um aur. Það varð til
þess að kunningi minn byrjaði að
halda skipulagða skrá um plötusafn
ið. Föður hans gekk gott eitt til og
það sama má segja um kunningjann,
hann er góður maður og hefur látið
gott af sér leiða. Umrætt utanum
hald kunningja míns varð til þess að
aðgengi okkar hinna að plötusafninu
varð betra og ýtti undir áhuga á að
skoða málið nánar, og gott ef hann
seldi ekki eina og eina vínylplötu til
vel valinna og færði til bókar sam
kvæmt skránni góðu.
Umrætt rifjaðist upp fyrir greinar
höfundi þegar það bar til tíðinda
fyrir skemmstu að dæmdur maður
fékk uppreist æru. Margir vel mæltir
og ráðsettir aðilar greiddu götuna
varðandi fyrrgreint málefni, og
gengu helst til vasklega fram að mati
margra, sé tekið mið af umfangi og
eðli brotanna, en það kann að vera á
misskilningi byggt. Og ekki má gera
lítið úr því að eiga afturkvæmt í þjóð
félagið að lokinni afplánun refsingar.
Nokkur leynd hvílir yfir umræddu
ferli enn sem komið er, sem er vissu
lega bagalegt. Greinarhöfundur
telur víst að gamli kunninginn eigi
ekkert sameiginlegt með þeim er í
hlut átti, nema hvatann til að halda
skrá um tiltekin atriði og auðvelda
aðgengi sitt og yfirsýn yfir efnið.
Sumt er bersýnilega óþarft að halda
skrá um. Í sumum tilfellum blasir
við að hvatar skipulagðrar starf
semi og sölumennsku búa að baki
skráningu upplýsinga og skugga
hliðar sölumennskunnar geta tekið
á sig óhugnanlegar myndir. Plató
sagði að gjaldið sem góðir menn
greiða fyrir skeytingarleysi sitt sé að
vera stjórnað af vondum mönnum,
og það má til sanns vegar færa. Sam
einumst til góðra verka og tökum
höndum saman um að hafna spill
ingu í okkar þjóðfélagi. Hlúa þarf að
þeim sem um sárt eiga að binda og
víst er að margur þarf að bæta ráð
sitt.
Um uppreist æru
Gunnar
Árnason
starfar við
arkitektúr
Töluverð umræða hefur nú í sumar orðið á vettvangi fjölmiðla um fyrirhugaða
fluglest milli Keflavíkurflugvallar
og miðborgar Reykjavíkur og er
áhugi fólks á verkefninu eðlilegur
í ljósi stærðar framkvæmdarinnar
og þess hve miklu máli hún skiptir
fyrir íslenskt samfélag.
Sitt sýnist hverjum og hefur
umræðan mestan part verið mál
efnaleg og uppbyggileg. Nokkrir
hafa þó stungið niður penna til að
mótmæla þessari fyrirhuguðu fram
kvæmd út frá meintum forsendum,
fyrirframgefnum skoðunum eða
niðurstöðu. Slíkt gefur tilefni til
að draga fram nokkur lykilatriði
varðandi fluglestina fyrir þá sem
hafa áhuga á málefnalegri umræðu
um verkefnið:
1. Fluglestin er hrein einkafram
kvæmd og er ekki kostuð eða styrkt
af hinu opinbera. Ekki hefur verið
óskað eftir ríkisábyrgðum til verk
efnisins, öfugt við t.a.m. Vaðla
heiðargöng.
2. Fluglestinni má ekki rugla
saman við Borgarlínu, sem er opin
ber framkvæmd á vegum sveitar
félaga á höfuðborgarsvæðinu.
Mikilvægt er hins vegar að þessi
tvö samgöngukerfi hafi góða tengi
punkta og styðji þannig hvort við
annað.
3. Gert er ráð fyrir að 7080%
tekna fluglestarinnar komi frá
erlendum ferðamönnum á leið
milli flugvallarins og höfuðborgar
svæðisins og að fjármögnun verk
efnisins endurspegli þetta, þ.e.
verkefnið verði að langmestu leyti
fjármagnað erlendis. Fjármagn til
verkefnisins verður því hrein við
bót við þær opinberu framkvæmdir
í samgöngumálum sem fyrirhug
aðar eru næsta áratuginn og skerða
ekki opinber framlög til þess mála
flokks.
4. Samfélagslegur ábati af flug
lestinni var árið 2014, út frá þáver
andi forsendum um fjölda ferða
manna, áætlaður 4060 milljarðar
króna. Lestin myndi draga veru
lega úr kolefnislosun í samgöngum
miðað við núverandi stöðu þeirra
og minnka umferðarálag á Reykja
nesbraut og höfuðborgarsvæðinu á
leiðinni Hafnarfjörður – miðborg.
5. Miðaverð tekur mið af því sem
þekkist í sambærilegum verkefnum
í nágrannalöndum okkar s.s. í Ósló
(Flytoget), Stokkhólmi (Arlanda
Express) og London (Heathrow
Express og Gatwick Express) og
verður u.þ.b. tvöfalt á við far með
rútu. Ferðatíminn mun verða innan
við 20 mínútur.
6. Áætlanir þróunarfélagsins um
fjölgun ferðamanna eru varfærnar.
Við gerum ráð fyrir að verulega
dragi úr fjölgun þeirra strax á næsta
ári og að langtímavöxtur verði
sambærilegur við það sem spáð er
almennt í aljóðlegu farþegaflugi.
Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að
fluglestin verði með um 30% mark
aðshlutdeild meðal flugfarþega til
og frá Keflavíkurflugvelli.
7. Sá samningur sem Fluglestin
– þróunarfélag hefur gert við þau
sveitarfélög sem í hlut eiga fjallar
um samstarf í skipulagsmálum.
Þegar hafa Reykjavíkurborg, Garða
bær, Sveitafélagið Vogar, Reykja
nesbær, Sveitarfélagið Garður og
Sandgerðisbær samþykkt slíkan
samning og bíður hann nú
afgreiðslu í Kópavogi og Hafnar
firði. Mikil samstaða hefur verið
innan þeirra sveitarstjórna sem
þegar hafa afgreitt samninginn um
afgreiðslu hans, enda bera sveitar
félögin ekki kostnað af þeirri þró
unar, rannsóknar og skipulags
vinnu sem framundan er, heldur
þróunarfélagið. Sveitarfélögin bera
ekki áhættu eða kostnað af verk
efninu, hvorki undirbúningi þess,
framkvæmd né rekstri.
8. Framganga verkefnisins mun
hins vegar ráðast af tiltrú fjárfesta
á því, fyrst og fremst alþjóðlegra.
Í þeim efnum má m.a. vísa til við
tals Viðskiptablaðsins frá í fyrra við
Cristian Popa, aðstoðarbankastjóra
Evrópska fjárfestingarbankans en
þar segir: „Ég held að hraðlest sé
lykilatriði með hliðsjón af umfangi
ferðaþjónustunnar á Íslandi …
Hann bætir við að hann telji að
hagkerfið geti ráðið mun betur við
vöxtinn í ferðaþjónustunni þegar
hraðlestin er komin í gagnið.“
Ég vona að ofangreindar upp
lýsingar séu til þess fallnar að stuðla
að málefnalegri umræðu um þetta
stóra verkefni sem eðlilegt er að
sé umdeilt. Slíkt þekkja menn frá
því Hvalfjarðargöngin voru gerð
og væri sumum þeirra sem stungið
hafa niður penna um fluglestina
hollt að spegla sig og viðhorf sín
í orðum þeirra sem á sínum tíma
voru sem mest á móti göngunum.
Um fluglest
Runólfur
Ágústsson
framkvæmda-
stjóri Fluglestar-
innar – þróunar-
félags
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur lagst gegn áformum um laxeldi í Viðfirði og Hellis
firði, vilja varðveita friðsæld þeirra
og náttúrlegt yfirbragð. Því ber að
fagna. En af hverju má fórna þeim
gæðum á Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði
og Stöðvarfirði þar sem friðsæld og
náttúrfegurð er ekki síðri – og ein
mitt þar sem fólkið býr og nýtur
innilega alla daga?
Í Noregi hafa allar nýfjárfestingar
í laxeldi með opnum sjókvíum verið
bannaðar. Sú tækni er nú talin úrelt
vegna hrikalegrar reynslu fyrir líf
ríkið. Þess vegna sækja norsku
eldisrisarnir til Íslands þar sem
þeim hefur verið talin trú um að
flest sé leyfilegt, eftirlitið viðráðan
legt og fá sjóinn auk þess ókeypis
til afnota, en þurfa að borga offjár
fyrir í Noregi. Svo krefjast nokkrir
sveitarstjórnarmenn á íslenskum
eldissvæðum af ráðherrum, að
eldis risarnir megi fara sínu fram
hér á landi. Ekki á Austfjörðum, þar
sem efasemdir vakna eins og birtist
í fyrirvara bæjarstjórnar Fjarða
byggðar. En betur má ef duga skal.
Flestir sjá að opið sjókvíaeldi með
innfluttum stofnum er tímaskekkja.
Nú er öllu nýju eldi víðast hvar
stefnt í lokaðar kvíar eða uppi á
landi. Ef áform norsku eldisrisanna
um 190 þúsund tonna eldi í opnum
sjókvíum ná fram að ganga, þá yrði
Ísland að athlægi um víða veröld í
umhverfismálum. Náttúruauðlindir
íslenskra fjarða og villtir laxastofnar
eru einstök gæði sem eldið skaðar
og verða hvorki endurheimt né
metin til fjár. Norðmenn og fleiri
þjóðir súpa seyðið af þeirri reynslu
og grípa nú til örþrifaráða. Laxeldi
á Íslandi er líka samfelld hrakfalla
saga. Fiskur sleppur úr kvíum, líka
þessum sem eldismenn segja nýjar
og fullkomnar, lúsin og sjúkdómar
herja, hitastig og sjólag í sveiflum.
Hverjir bera ábyrgð á tjóninu þegar
spilaborgir laxeldis falla? Fólkið í
sveitarfélögunum á eldissvæðum?
Ekki norsku eldisrisarnir. Þeim er
ekki gert að bera neina ábyrgð á því.
En heimta gróðann á meðan varir.
Dýr ábyrgð
Gunnlaugur
Stefánsson
Heydölum
1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R24 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð I ð
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-B
0
7
4
1
D
7
F
-A
F
3
8
1
D
7
F
-A
D
F
C
1
D
7
F
-A
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K