Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 36
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 „Ég var gífurlega ánægð þegar hönnuðurinn Togga byrjaði að búa til höfuð- bönd sem eru einstaklega falleg, hand- hnýtt með perlum. Ég á nokkur svoleiðis og finnst þau öll æðisleg,“ segir Rebekka Sif. FRÉTTABlAðIð/ lAUFEy ElÍAS- dÓTTIR Stórir eyrnalokkar og töff höfuðbönd eru nauðsynleg á sviði. Eyrnalokkana fær Rebekka víða en höfuðböndin helst hjá Toggu. FRÉTTABlAðIð/lAUFEy ElÍASdÓTTIR Hvernig föt kaupir þú oftast? Ég kaupi mest kjóla og fleiri kjóla! Ég á við kjólavandamál að stríða, er mjög hrifin af litríkum kjólum, helst bleikum eða með einhverju flottu munstri. Hvar kaupir þú föt? Ég er mjög hrifin af Urban Out- fitters, H&M klikkar auðvitað ekki, en svo finnst mér gaman að ramba inn í alls konar búðir og finna mér flík sem talar til mín. Finnst þér gaman að klæða þig upp á/vera í skemmtilegum fötum? Mér finnst rosalega notalegt að gera mig til fyrir tónleika eða gigg þar sem ég nota þann tíma til að róa mig niður og undirbúa mig. Það er reyndar ekkert sérstaklega róandi að róta í skápnum í leit að rétta kjólnum eða fínum kimonó sem hefur horfið inn í fatahafið. Ég þarf virkilega á svona fatastöng að halda, en því miður er ekkert pláss fyrir svoleiðis í litlu stúdíóíbúð- inni minni. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Uppáhaldsflíkin mín síðasta árið hefur verið bleiki bomberja- kkinn minn sem ég keypti í H&M í Róm síðasta sumar. Hann er svo þægilegur og ég get nánast notað hann allt árið þar sem hann er frekar þykkur. Ég er líka orðin gjörsamlega háð kimonóum en þeir fara við allt! Gera öll dress skemmtilegri. Ertu veik fyrir aukahlutum? Ég er veik fyrir höfuðböndum og stórum áberandi eyrnalokkum. Þetta eru svo flottir fylgihlutir til að hafa á sviði. Það er hins vegar erfiðara að finna flott höfuðbönd, en ég var gífurlega ánægð þegar hönnuðurinn Togga byrjaði að búa til höfuðbönd sem eru ein- Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Fjölskylda mín hefur gert grín að því í gegnum árin þegar það kviknaði óvart í fatahrúgunni minni inni í herbergi. Rebekka Sif Stefánsdóttir staklega falleg, handhnýtt með perlum. Ég á nokkur svoleiðis og finnst þau öll æðisleg. Hvað kaupirðu þótt þú eigir nóg af því? Bleika og rauða varaliti. Ég sannfæri mig alltaf um að ég eigi ekki alveg nákvæmlega „þennan“ bleika eða rauða lit. Einhver skemmtileg saga sem tengist fatakaupum? Fjölskylda mín hefur gert grín að því í gegnum árin þegar það kviknaði óvart í fatahrúgunni minni inni í herbergi. Ég var örugg- lega 13 eða 14 ára og algjör leti- haugur þegar kom að því að ganga frá fötunum mínum. Fjölskyldan hélt því fram að ég hefði gert þetta viljandi til að fá ný föt, en auðvitað var þetta slys vegna ónýts lampa sem lá á gólfinu við fatahrúguna. Sem betur fer uppgötvaðist þetta fljótt og allt fór vel, en ég varð samt að henda þó nokkrum flíkum. Hvað er á döfinni hjá þér núna? Ég er að gefa út mína fyrstu plötu í næstu viku! Hún heitir Wondering og inniheldur ellefu frumsamin lög. Ég verð með útgáfutónleika á Rosenberg í kvöld kl. 21.30 og er búin að vera á fullu að undirbúa þá. Svo er ég á leið til Gautaborgar í söngkennaranám í haust. Þannig að það er alveg nóg að gera! Það er hægt að fylgjast með Rebekku Sif á www.facebook.com/ rebekkasifmusic og www.rebekka- sif.com. Hágæða amerísk heilsurúm sem auðvelt er að elska Sofðu rótt í alla nótt 2 KyNNINGARBlAð FÓlK 1 7 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 7 F -C E 1 4 1 D 7 F -C C D 8 1 D 7 F -C B 9 C 1 D 7 F -C A 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.