Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 38
Stephen Curry,
leikmaður
Golden State
Warriors, er
uppáhaldsleik-
maður Andra
Rúnars og að
sjálfsögðu á
hann treyjuna
hans.
Þegar ég er ekki á
fótboltavellinum
spila ég helst körfubolta
og golf auk þess sem ég
safn NBA-treyjum.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
„Safnið er bara rétt að byrja og vonandi verður það orðið almennilegt eftir nokkur ár,“ segir markaskorarinn Andri
Rúnar Bjarnason um NBA-treyjusafnið sitt. MYNDIR/LAUFEY ELÍASDÓTTIR
Bolvíski knattspyrnumaðurinn Andri Rúnar Bjarnason hefur slegið í gegn í Pepsi-deild
karla í fótbolta í sumar. Andri
Rúnar er markahæsti leikmaður
deildarinnar með 14 mörk þegar
þessi orð eru rituð og lið hans,
nýliðar Grindavíkur, er í fjórða
sæti deildarinnar en liðinu var
spáð falli í vor í spá forráðamanna
félaganna.
Andri Rúnar segist eingöngu
hafa klæðst hettupeysum og
íþróttafötum þegar hann var yngri
en þroskast úr því með tímanum.
„Svo hefur kærastan mín rosalega
mikinn áhuga á tísku þannig að
hún er aðeins búin að smita frá sér.
Ég er þannig séð ekki með neinn
ákveðinn stíl, það fer allt eftir því
hvernig ég vakna á morgnana. Það
getur verið frá skyrtu og gallabux-
um yfir í hettupeysu og derhúfu.“
Utan fótboltans er Andri Rúnar
tæknimaður hjá fjarskiptafyrir-
tækinu Hringdu og hefur gaman af
öllum íþróttum. „Þegar ég er ekki
á fótboltavellinum spila ég helst
körfubolta og golf auk þess sem ég
safna NBA-treyjum. Ég hef einnig
mikinn áhuga á kvikmyndum.“
Seinni umferð Pepsi-deildar
hófst fyrir stuttu síðan og vonast
Andri Rúnar eftir góðu gengi sinna
manna. „Við höfum ekki byrjað
seinni umferðina nógu vel. Við
sýndum þó hvað við getum gert
í fyrri umferðinni svo ég sé ekki
af hverju við ættum ekki að geta
haldið áfram að safna stigum.“
Hvernig fylgist þú með
tískunni? Ég er ekkert rosalega
virkur en ég fylgist aðeins með í
gegnum Instagram. Svo skoðar
maður hvað fræga fólkið er að
gera. Sólon Örn, vinnufélagi minn,
er alltaf að sýna mér töff hluti í
vinnunni. Það er þægilegt að vera
með persónulegan tískuráðgjafa á
hliðarlínunni.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Foot Locker og H Verslun á Íslandi.
Ég er mikill Nike-maður.
Áttu uppáhaldsflík? Nike Flyk-
nit Airmax Oreo, Nike Mercurial
Superfly og Kobe 6 skórnir mínir
eru allir í uppáhaldi.
Hvers vegna byrjaðir þú að
safna NBA-treyjum? Ég fylgist
mikið með NBA-deildinni og
ákvað að byrja að kaupa mér
treyjur þegar ég byrjaði að sækja
NBA-leiki. Safnið er bara rétt
Kærastan hefur
áhrif á fatastílinn
Markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla í fótbolta safn-
ar NBA-treyjum. Hann segist ekki hafa neinn fatastíl held-
ur klæða sig eftir því hvernig hann vaknar á morgnana.
að byrja og vonandi verður það
orðið almennilegt eftir nokkur ár.
Golden State Warriors er uppá-
haldsliðið mitt og leikmaður þess,
Stephen Curry, er uppáhalds-
leikmaðurinn minn. Fjórar af
treyjunum eru hér í bænum en
afgangurinn heima í Bolungarvík.
Bestu og verstu fatakaupin?
Ég á nokkur jakkaföt og slatta af
skyrtum sem ég verð að setja sem
mín bestu fatakaup. Ég er búinn
að kaupa ansi margar skrautlegar
golfflíkur í gegnum tíðina sem ég
set í þau verstu.
Notar þú fylgihluti? Ég er mjög
oft með derhúfu og geng stundum
með úr.
Hvað er fram undan hjá þér í
lífinu, utan fótboltans? Ég er voða
lítið að hugsa um framhaldið. Ætli
næsta mál á dagskrá sé ekki bara
að ná forgjöfinni niður fyrir 10.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kr. 9.900.-
Str. S-XXL
Litir: dökkblátt
og svart
Verðhrun á
útsöluvörum
aðeins 5 verð:
1000 - 5000.-
Flottur
jakki
Fa
rv
i.i
s
//
0
81
7
KRINGLUNNI | 588 2300
SKYRTA
5.995
Tveir litir
Ertu söngfugl?
Nýstofnaður kvennakór auglýsir eftir áhugasömum kórkonum.
Fyrsta verkefni kórsins er þátttaka í árlegum jólatónleikum, til
styrktar Landspítala Háskólasjúkrahúsi, sem fyrihugaðir eru í byrjun
desember. Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík, þar sem
kórinn kemur fram ásamt einvala liði einsöngvara og hljómsveit.
Til að byrja með er um tímabundið verkefni að ræða en með
möguleika á áframhaldandi starfi.
Æfingar verða í Mosfellsbæ á miðvikudagskvöldum undir
stjórn Lilju Eggertsdóttur og gert er ráð fyrir að æfingar taki
u.þ.b. eina og hálfa klukkustund.
Raddprufur verða miðvikudaginn 30. ágúst.
Áhugasamar hafi samband í gegnum
netfangið: korconcordia@gmail.com
korconcordia
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . ÁG ú S T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-C
9
2
4
1
D
7
F
-C
7
E
8
1
D
7
F
-C
6
A
C
1
D
7
F
-C
5
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K