Fréttablaðið - 17.08.2017, Qupperneq 41
Nike (@nike) er vinsælasta tísku
merkið á samfélagsmiðlinum
Instagram, samkvæmt tölfræði
fyrirtækinu Statista. Rúmlega 73,5
milljónir manns fylgja merkinu
eftir. Í öðru sæti er Victoria Secret
(@victoriassecret) með rúmlega
56,6 milljónir fylgjenda. Tvö vin
sælustu tískumerkin bera höfuð
og herðar yfir
önnur tísku
merki en Nike
Football (@
nikefootball)
er í þriðja sæti
með rúmlega
29,5 milljónir
fylgjenda.
Næst á listanum eru Chanel (@
chanelofficial) með um 23,5 millj
ónir fylgjenda, verðandi Íslands
vinir H&M (@hm) eru næstir
með með rúmlega 22,3 milljónir
fylgjenda og svo kemur Adidas
Originals (@adidas originals) með
rúmlega 21,8 milljónir. Spænski
tískurisinn Zara (@zara) er í
sjöunda sæti með rúmlega 21,4
milljónir fylgjenda og frönsku
fyrirtækin Louis Vuitton (@louis
vuitton) og Dior (@dior) eru næst
með um 18,4 og 16,5 milljónir
fylgjenda. Ítalski tískurisinn Gucci
(@gucci) er í tíunda sæti með rúm
lega 16 milljónir fylgjenda.
Gögn Statista ná bæði til hefð
bundinna tískumerkja og einnig
götumerkja.
Vinsælt á
Instagram
Instagram Nike
Sjónvarpsdrottningin Oprah Winfrey lætur nú að sér kveða á nýjum vettvangi í Banda
ríkjunum. Nú er það tilbúinn
heilsumatur sem nefnist O, That’s
Good. Matinn þarf aðeins að hita
upp þegar heim er komið en meðal
þess sem er í boði er kartöflumús
með blómkáli, pasta með kúrbít og
baunum ásamt nokkrum gerðum af
hollum súpum. Alls verða átta réttir
í boði fyrst um sinn.
Oprah segist leggja mikla áherslu
á hollan mat sem jafnframt er
ódýr. „Ég elska mat sem sprettur í
garðinum mínum,“ sagði hún þegar
nýja varan var kynnt fyrir nokkrum
dögum. „Það þarf enginn að hafa
samviskubit yfir að borða þennan
mat eða bjóða fjölskyldunni hann,“
segir drottningin. Oprah hefur
gefið út tímaritið O þar sem hún er
jafnan með uppskriftir að hollum
mat. Hún hefur ekki farið með eigin
aukakíló í felur og fjallaði mikið um
offitu og næringu í þáttum sínum á
meðan þeir voru á skjánum.
Nýja matvaran hennar Opruh
hefur vakið athygli stærstu fjöl
miðla í Bandaríkjunum. Sjálf leggur
Oprah áherslu á að varan sé hrein
og ómenguð. Réttirnir eru vítamín
ríkir og með fáum kaloríum.
Þótt Oprah sé byrjuð að mark
aðssetja vöruna kemur hún ekki á
markað fyrr en í október.
Oprah fetar nýjar slóðir
Oprah leggur áherslu á hollan mat.
Heilbrigt og fagurt hár kórónar
kvenlegan yndisþokka og stælleg
an klæðnað. Í amstri dagsins þarf
að hlúa vel að hárinu sem líður
gjarnan fyrir streitu og mengun.
Hér er uppskrift að náttúrulegri
hárnæringu sem hægt er að útbúa
heima við. Hún styrkir hárið, gefur
því raka og eykur vöxt þess.
Avókadó- og kókosdjúpnæring
½ avókadó
200 ml kókosmjólk
Glerskál
Blandari
Maukið avókadó og hrærið vel
saman við kókosmjólk í blandara
þar til blandan verður mjúk og
þykk. Greiðið næringuna í gegnum
blautt hárið og leyfið henni að sitja
í 10 til 15 mínútur. Þvoið svo vel úr
með sjampói. Notist samdægurs.
Heimild: Náttúruleg fegurð/Arndís
Sigurðardóttir
Kóróna kvenna
lyfja.is
20%
afsláttu
r af Esté
e Laude
r
vörum 1
7. – 21.
ágúst.
Estée Lauder kaupaukinn þinn í verslunum Lyfju
Lágmúla, Smáratorgi og Selfossi dagana 17. – 21.
ágúst.
Þessi glæsilegi kaupauki* fylgir með ef keyptar eru tvær eða fleiri vörur frá Estée Lauder.
Kaupaukinn inniheldur:
Perfectly Clean Multi-Action Foam/Purifying Mask - froðuhreinsi, 30ml
Day Wear Multi – Protection Anti – Oxidant – rakakrem hlaðið andoxunarefnum, 15ml
Night Wear Plus 3 Minute Detox Mask – öflugan detox maska, 15ml
Brow Now Eyebrow Pencil – augabrúnablýant með bursta
Double Wear Eyepencil – svartan augnblýant
Sumptuous Knockout Mascara – svartan maskara, 2,8 ml
Pure Color Envy Eyeshadow Quad - 4 augnskugga
Fallega snyrtibuddu
*Meðan birgðir endast
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 1 7 . ág ú S t 2 0 1 7
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-D
3
0
4
1
D
7
F
-D
1
C
8
1
D
7
F
-D
0
8
C
1
D
7
F
-C
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K