Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 45
Jones fetar í
fótspor kollega á
borð við Gwyn
eth Paltrow og
Reese Wither
spoon.
Glöggir fylgjendur
á Instagram hafa
tekið eftir því að hún
hefur birt lífsstílsmyndir
undir myllumerkinu
#StyleByZeta.
Ugg-bomsurnar nutu gífurlegra
vinsælda fyrir nokkrum árum.
Skórnir hafa raunar aldrei þótt
neitt augnayndi en þægindin eru í
fyrirrúmi þegar kemur að hönnun
þeirra.
Tískuhönnuðurinn frægi Jeremy
Scott, sem hefur gert það gott hjá
tískurisanum Moschino, hefur
nú tekið höndum saman við Ugg.
Hann hefur hannað sérstaka línu
fyrir Ugg þar sem hann notar hið
klassíska form skónna og blandar
saman við skreytingar úr eigin
smiðju.
„Ég keypti mér par af Ugg Classic
og féll alveg fyrir þeim. Því gat ég
ekki látið tækifærið ónotað að
hanna eigin útfærslu af skónum
þegar mér bauðst það,“ segir Scott
sem hannaði átta mismunandi
útfærslur fyrir konur, karla og
börn.
Útfærslurnar eru fjölbreyttar
en þar má til dæmis nefna Classic
Short Jewel þar sem
skórnir eru steinum
skreyttir. Hvert par er
handunnið og tekur
um viku að klára
hvert par. Það
skýrir verðið
enda kosta skórnir
úr smiðju Scotts frá
tíu þúsund upp í 140
þúsund krónur.
Skórnir Ugg
x Jeremy Scott
koma í valdar
verslanir
15. september.
Ugg með augum
Jeremy Scott
Glimmer og glans verður áberandi í
naglatískunni í vetur. MYND/GETTY
Tískan í naglalökkum breytist með
hallandi sumri og í haust víkja
bjartir pastellitir fyrir mildum og
safaríkum jarðlitum. Dökkgræn-
ir, dökkbleikir og brúnir litir verða
áberandi í naglatískunni líkt og í
fatatískunni en þessir litir passa vel
við t.d. gallafatnað. Naglalökk með
glansandi og jafnvel glitrandi áferð
koma sterk inn en mattir litir eru á
útleið. Metalgrár og dökkgrár taka
við af kolsvörtum naglalökkum en
þeir litir fara einmitt vel við silfrað
og hvítt skart. Sparinaglalakkið
verður í eldrauðum, glansandi lit
með glimmeri eða háglans. Nagla-
lökk í ljósbeige verða áfram vinsæl
en þau eru látlaus og passa við
flestallan fatnað.
Grænar, rauðar
og glansandi
neglur
Hollywood-leikkonan Catherine
Zeta-Jones ætlar að feta í fótspor
kollega á borð við Gwyneth
Paltrow, Reese Witherspoon og
Tori Spelling og stofna lífsstíls-
merki undir eigin nafni. Glöggir
fylgjendur hennar á Instagram
hafa tekið eftir því að hún hefur
um nokkurt skeið birt heimilis-
og lífsstílsmyndir undir myllu-
merkinu #StyleByZeta en í lok
síðasta mánaðar staðfesti hún
við tímaritið People að hún
hygðist stofna eigið merki með
haustinu.
Hún mun hafa unnið að því
í lengri tíma og þó ekki liggi
enn ljóst fyrir hver útgangs-
punkturinn verður þykir líklegt
að merkið verði að mestu tengt
heimilinu og skrautmunum.
Catherine Zeta-Jones með nýtt lífsstílsmerki á prjónunum
fastus.is
SPORLASTIC
STUÐNINGSHLÍFAR
OG SPELKUR Á GÓÐU VERÐI
VÖRUR FYRIR
HLAUPARA
Nú í samni
ngi
við Sjúkrat
ryggingar
Íslands
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
RESORB SPORT
BÆTIR UPP VÖKVA- OG
SALTTAP Í LÍKAMANUM
Minnkar líkur á vöðvakrömpum og þreytu,
eykur endurheimt eftir mikil átök.
Inniheldur lítið af kolvetnum.
Fæst í öllum helstu apótekum.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 11 F I M MT U DAG U R 1 7 . ág ú s t 2 0 1 7
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-D
3
0
4
1
D
7
F
-D
1
C
8
1
D
7
F
-D
0
8
C
1
D
7
F
-C
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K