Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 56
körfubolti „Ég er hvorki tilbúinn til að hætta að dæma né þjálfa þannig að þetta er frekar erfið staða,“ segir Jón Guðmundsson körfuboltadómari, sem einnig er yngriflokkaþjálfari hjá Keflavík. Eftir að hafa þjálfað í 33 ár og dæmt í 15 er komið að því að hann verður að velja á milli. Körfuknatt- leikssamband Íslands, KKÍ, hefur gefið það út að dómarar megi ekki lengur þjálfa samhliða dómgæsl- unni. Ekki setja dómara í erfiða stöðu „Þessi ákvörðun er almenns eðlis og snýr að því að dómarar séu ekki settir í þá stöðu að þurfa að dæma leiki með félaga sínum sem þeir hafa dæmt hjá, stundum kvöldið áður eða seinna auk þess sem slíkt kann að þykja ósanngjarnt gagnvart þriðja aðila,“ segir meðal annars í yfirlýsingu KKÍ um málið. Þar segir einnig að þessi regla hafi verið við lýði undanfarin ár en und- anþágur hafi verið veittar. Nú hafi aftur á móti verið ákveðið að fylgja reglunni eftir til hins ítrasta. „Í samtölum við fulltrúa FIBA kom skýrt fram að önnur sjónarmið, hver sem þau kunni að vera, vegi ekki þyngra en þau að allur vafi um hlut- leysi eða vanhæfi geti aldrei verið vefengd,“ segir líka í yfirlýsingu KKÍ. Er í algjörri óvissu Jón getur legið undir feldi í um hálfan mánuð áður en hann tekur ákvörðun um hvað hann ætlar sér að gera næsta vetur; dæma eða þjálfa. „Það er ekkert leyndarmál að mér þykir það vera fúlt að þessi staða sé komin upp. Ég fer fram og til baka með ákvörðunina og núna er ég í algjörri óvissu. Þetta hefur gengið upp hjá mér í öll þessi ár því Keflvík- ingar hafa verið mjög sveigjanlegir þegar kemur að dómgæslunni hjá mér,“ segir Jón en það hefur augljós- lega verið mikið að gera hjá honum á síðustu árum með öll þessi verkefni. „Ég er ekki í þessu til þess að verða ríkur. Það er alveg klárt. Mér finnst ógeðslega gaman að dæma og þess vegna er ég ekki tilbúinn til að hætta. Maður fær ekki bara drull á vellinum. Maður fær alveg hrós líka þótt ótrúlegt megi virðast,“ segir Jón og hlær dátt. Á öllum þessum árum segist Jón aldrei hafa lent í nokkrum vand- ræðum vegna þess að hann sinnir báðum störfum. Það hafi gengið vel að aðgreina hlutverkin gagnvart öðrum. „Ég hef dæmt hjá mönnum sem hafa síðan dæmt hjá mér. Ég er þjálfari þegar svo ber undir og hef fengið tæknivillur og verið kastað út úr húsi, sællar minningar. Ég fæ enga sérmeðferð frekar en aðrir fá sér- meðferð hjá mér,“ segir Jón en hann hefur líka skilning á afstöðu KKÍ.  „KKÍ telur að þetta sé allra meina bót og ég ætla ekkert að segja að þetta sé eitthvað rangt hjá þeim. Það er bara fúlt að vera í þessari stöðu. Að þurfa að velja. Ég verð að virða það sem þeir ákveða og ég geri það.“ Ákvörðunin stendur Keflvíkingar hafa reynt að fá þessu breytt en Hannes S. Jónsson, for- maður KKÍ, segir að það muni engu breyta. Ákvörðunin standi. „Hún stendur og mun standa. Við erum ekki að fara að breyta henni. Við skiljum vel að það séu skiptar skoðanir á málinu. Það má ræða það málefnalega. Sú umræða á að fara fram á réttum stöðum en ekki á samfélagsmiðlum,“ segir Hannes Sigurbjörn Jónsson. henry@frettabladid.is Mér þykir fúlt að þessi staða sé komin upp Ný regla KKÍ um að dómarar megi ekki þjálfa kemur sérstaklega illa við einn reyndasta dómara landsins, Jón Guðmundsson, sem hefur þjálfað í áratugi. KKÍ mun ekki endurskoða þessa ákvörðun sína og Jón veit ekki hvað hann mun gera. Jón Guðmundsson að dæma leik. fréttablaðið/anton Ég er ekki í þessu til þess að verða ríkur. Það er alveg klárt. Jón Guðmundsson Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni ...ómissandi í eldhúsið! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma • Klippir plastfilmur og ál • 35% sparnaður • Ódýrari áfyllingar • Má setja í uppþvottavél Engar flæk jur Ekkert vese n www.danco.is Heildsöludreifing Pakkaðu nestinu inn með Vefjumeistaranum 1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 f i M M t u D A g u r36 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 7 F -B 5 6 4 1 D 7 F -B 4 2 8 1 D 7 F -B 2 E C 1 D 7 F -B 1 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.