Fréttablaðið - 17.08.2017, Síða 68
Í ræðu, sem Harald Krüger, stjórnarformaður BMW Group, hélt í síðustu viku við upphaf ráðstefnu innanríkisráðuneytis Þýskalands sem bar yfirskriftina Nation
al Diesel Forum, kom m.a. fram að
fyrirtækið ætlaði sér að vera áfram
í fremstu röð þýskra bílaframleið
enda við þróun bíla sem nota raf
magn sem orkugjafa. Hann sagði
einnig að BMW myndi halda áfram
þróun dísilvéla sem uppfylla muni
alla ströngustu mengunarstaðla
heims, þar á meðal Euro 6.
Bestu dísilvélarnar mjög
umhverfismildar
„Okkur er fullkomlega ljóst að sjálf
bærni er jafn mikilvæg bílasam
göngum framtíðarinnar og aksturs
ánægjan sem fylgir því að aka BMW.
Á því sviði stendur BMW í fremstu
röð. Við vorum fyrsti bílafram
leiðandinn í Þýskalandi sem ein
setti sér að þróa til fulls rafmagns
tæknina sem orkugjafa í bílum og
höfum sett á markað fleiri slíka bíla
en nokkur annar þróaður bílafram
leiðandi í heiminum. Hins vegar
er rafmagnið alls ekki eina græna
lausnin. Fullkomnari og háþróaðri
dísilvélar munu einnig gegna mikil
vægu hlutverki í þróun sjálfbærra
bílasamgangna.
Þegar litið er til baráttunnar
gegn loftslagsbreytingum verður
jafnframt að horfa til þess hvaða
árangur hefur náðst í þróun dísil
véla. Þegar horft er til ýmissa efna
sem bílvélar losa og eru skaðleg
umhverfinu kemur í ljós að bestu
dísilvélarnar losa alveg jafn lítið eða
jafnvel minna af skaðlegum efnum
en nýju bensínvélarnar. Þetta á sér
staklega við um smáagnir, kolvetni
og kolsýring. Þessi efni eru nú orðin
svo lítil í útblæstri dísilvéla að þær
hafa ekki lengur neikvæð áhrif á
loftgæði. Af þessum ástæðum leggur
BMW ríka áherslu á hreinskiptna
og opna umræðu sem grundvallist
á staðreyndum og vísindalegum
rannsóknum áður en teknar verði
afdrifaríkar ákvarðanir.“
Ekkert svindl
Benti Krüger á að dísilvélar BMW
Group losuðu nú þegar að meðaltali
um 40% minna NOx en dísilvélar
annarra bílaframleiðenda í Þýska
landi. Það staðfesti Umhverfis
stofnun Þýskalands, Germany Fede
ral Environment Agency, í apríl sl.
og uppfylli dísilvélar BMW Group
nú þegar bæði staðla Euro 5 og 6.
Krüger segir að umræðan um enda
lok dísilvélarinnar hafi stórskaðað
umhverfisverndar umræðuna og
komið óverðskulduðu óorði á bestu
dísiltæknina auk þess sem umræð
an hafi skapað óöryggi meðal millj
óna eigenda bíla með dísilvél.
„Bestu dísilvélarnar byggja á mjög
þróaðri tækni og eru mjög hreinar
með tilliti til losunar. Við höfum
alla tíð lagt áherslu á að tækni BMW
Group við þróun véla með tilliti
til útblásturs sé allt annars eðlis
en annarra bílaframleiðenda. Við
höfnum þar að auki gjörsamlega
öllum dylgjum þess efnis að ólög
legan búnað sé að finna í útblásturs
kerfi bíla BMW Group enda hafa
rannsóknarteymi á vegum þýskra
stjórnvalda sem og í öðrum löndum
staðfest að engar vísbendingar séu
um slíkan búnað,“ sagði Krüger.
Von á BMW X3 í hreinni raf-
magnsútfærslu
Krüger segir að auk þess sem þróun
dísilvéla BMW Group verði haldið
áfram sé jafnframt mikil áhersla lögð
á þróun rafmagnsbílatækninnar sem
boðin sé í sífellt fleiri bílgerðum frá
fyrirtækinu. „Sveigjanlegar tækni
lausnir í bílum og verksmiðjum
samstæðunnar gera okkur m.a.
kleift að taka skjótar ákvarðanir um
það hvaða bílgerðir skuli framleiða
á hverjum tíma, í hvaða magni og
hvaða lausn skuli velja með tilliti
til orkugjafa: dísilvél, bensínvél, raf
mótor eða tengiltvinnlausn. Á þessu
ári gerum við ráð fyrir að selja að
minnsta kosti 100 þúsund bíla sem
styðjast við rafmagn sem orkugjafa,
hvort sem það eru rafmagnsbílarnir
BMW i3 og i8 eða einhver hinna mis
munandi gerða PlugIn Hybrid bíla
sem BMW og MINI hafa fram að
færa. Sem stendur er hægt að velja
um níu „rafmagnaða“ bíla frá BMW
Group og er von á enn fleiri gerðum
á næstu árum. Meðal annars verður
hægt að fá BMW X3 í hreinni raf
magnsútfærslu árið 2020,“ segir
Krüger.
Dísilvélar munu áfram gegna
mikilvægu hlutverki í bílasamgöngum
Forstjóri BMW segir rafmagnið ekki einu grænu lausnina. Fullkomnari og háþróaðri dísilvélar munu einnig gegna
hlutverki í þróun sjálfbærra bílasamgangna. Bestu dísilvélarnar losa lítið af skaðlegum efnum út í umhverfið.
BMW X3 bíllinn verður í boði sem rafmagnsbíll eftir aðeins þrjú ár að sögn Haralds Krüger, stjórnarformanns hjá BMW.
BMW mótorhjólaklúbburinn á
Íslandi er félagsskapur fólks sem ekur
um á BMW mótorhjólum. Klúbbur
inn var stofnaður þann 14. júní 2007
og fagnaði því 10 ára afmæli á þessu
ári. Haldin var vegleg afmælisgrill
veisla á Þingvöllum í sumar þar sem
klúbbmeðlimir ásamt fjölskyldum
komu saman og héldu upp á árin
tíu. Í klúbbnum eru rétt tæplega 100
félagar sem allir eiga það sameigin
legt að eiga BMW mótorhjól og hafa
mikinn áhuga á ferðalögum á mótor
hjólum.
BMW mótorhjól eru talin henta vel
til ferðalaga og eru sniðin að þörfum
ferðalangsins. Þess vegna hefur verið
lögð rík áhersla á ferðamennsku
innan BMW mótorhjólaklúbbsins.
Ætla að skoða helstu náttúruger-
semar Vestfjarða
Á vegum klúbbsins eru farnar nokkr
ar skipulagðar ferðir á ári hverju,
bæði í formi dagsferða um landið en
einnig lengri ferðir þar sem gist er í
tjöldum eða á gistiheimilum. Einnig
hafa verið skipulagðar nokkrar utan
landsferðir á vegum klúbbsins.
Á afmælisárinu vill svo skemmti
lega til að um 25 félagar úr þýska
BMW GS Club Inter national ætla
að koma með hjólin sín til Íslands
og ferðast um landið í 2 vikur. Þeir
munu slást í för með íslenska BMW
mótorhjólaklúbbnum í fjögurra daga
ferð um Vestfirði þar sem skoðaðar
verða helstu náttúrugersemar Vest
fjarða, allt frá Látrabjargi og alla leið
norður á Strandir þar sem endað
verður á heljarinnar kjötsúpuveislu og
bryggjuballi að hætti Strandamanna.
Um 30 meðlimir íslenska BMW
klúbbsins hafa boðað þátttöku sína
í ferðina svo að þessi ferð verður
stærsta hópferð BMW mótorhjóla
klúbbsins fyrr og síðar, eða um 55
hjól.
55 BMW mótorhjól á Vestfirðina
Í könnun Auto Test settu þátt
takendur Hyundai i20 blue 1,0 l
TGDI og Tucson 1,7 l CRDi 2WD í
fyrsta sæti þegar spurt var um verð,
hönnun farþegarýmis, almenn
gæði, tæknibúnað og ábyrgðar
skilmála þar sem Hyundai býður 5
ára ábyrgð án tillits til þess hversu
mikið er ekið á tímabilinu. Þannig
skora rúmgóð og þægileg sæti ásamt
góðu innra rými i20 hátt meðal bíl
eigenda í könnun Auto Test auk
þess sem verðið á bílnum þykir
gott, en hann er búinn sparneytinni
þriggja strokka vél.
Í tilviki Tucson skoraði sparneytni
115 hestafla dísilvélarinnar hátt auk
lágs viðhaldskostnaðar, rýmis, bún
aðar og hagstæðs verðs á bílnum.
Samhengi milli ánægju og
áreiðanleika
Áreiðanleikakönnun J.D. Power
(VDS) í Þýskalandi nær til
fjórtán þúsund öku
manna og
er
könnunin sú umfangsmesta sem
gerð er þar í landi. Í könnuninni í
ár kemur fram sérlega mikil ánægja
meðal bíleigenda með Hyundai i30,
en bíllinn skoraði hæst í nokkrum
flokkum. Meðal annars voru eig
endur spurðir um reynslu þeirra af
bílnum með tilliti til gæða, áreiðan
leika, viðhaldskostnaðar og hönn
unar. Í þessum flokkum kom i30
lang best út miðað við aðra bíla í
flokki minni bíla.
Könnunin náði bæði til eigenda
nýrra i30 bíla og þeirra sem átt hafa
i30 í að minnsta kosti tvö ár og segir
dómnefnd J.D. Power að könnunin
sýni beint samhengi milli ánægju og
áreiðanleika. Kannanir J.D. Power
þykja þær áreiðanlegustu sem
gerðar eru á bílamarkaðnum, en
þær hafa verið framkvæmdar í tæp
50 ár í Bandaríkjunum og í Þýska
landi frá árinu
2002.
Þýskir bíleigendur afar
ánægðir með Hyundai
BMW mótorhjól í ægifagurri íslenskri náttúru.
Hyundai Tucson fékk
góða einkunn hjá þýskum
eigendum slíkra bíla.
1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R48 B í l A R ∙ F R É t t A B l A ð I ð
Bílar
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-9
7
C
4
1
D
7
F
-9
6
8
8
1
D
7
F
-9
5
4
C
1
D
7
F
-9
4
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K