Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 72

Fréttablaðið - 17.08.2017, Side 72
kvikmyndir The dark Tower HHHHH Leikstjóri: Nikolaj Arcel Framleiðendur: Akiva Goldsman, Ron Howard, Erica Huggins Handrit: Akiva Goldsman, Jeff Pinkner, Anders Thomas Jensen, Nikolaj Arcel Aðalhlutverk: Tom Taylor, Idris Elba, Matthew McConaughey Kvikmyndir byggðar á bókum Stephens King eru næstum því heill bíógeiri út af fyrir sig. Útkomurnar hafa verið eins fjölbreyttar og þær hafa verið misjafnar að gæðum en segja má að The Dark Tower sé ótvírætt hans metnaðarfyllsta og umfangsmesta verk. Þessi mikil­ fenglegi sjö eininga skáldsögubálkur var í bígerð hjá King í þrjátíu ár og snarar saman miklu úr sögum hans, hugmyndum og yfirnáttúrulegum djöflum undir sama hatt. Það er því skiljanlegt að aðdá­ endur höfundarins taki það aðeins meira nærri sér þegar ekki bara er misst marks í flutningi inngangs­ ins upp á hvíta tjaldið, heldur þegar afraksturinn, með svona botnlaust aðgengi að villtum hugmyndum, verður svona flatur, óeftirminni­ legur og ber merki um fullmarga kokka í eldhúsinu. Vandamálið við þessa útkomu er í rauninni margþætt; sem aðlögun (og þá mjög frjálsleg aðlögun sem veiðir nokkra þætti úr fyrstu, þriðju og sjöundu bókinni) er myndin skelþunn, formúlubundin og ein­ kennilega kraftlaus. Ef myndin er metin sem sjálfstæð eining og án allra tenginga eða hugsana um að hér sé reynt að leggja teina fyrir komandi kvikmyndir og tilvonandi sjónvarpsseríu, er erfitt að segja að myndin sé eitthvað átakanlega slæm. En skelfilega mikið „bla“ er hún. Fyrir það fyrsta hvílir The Dark Tower mestmegnis á öxlum heldur tilþrifalauss ungs leikara að nafni Tom Taylor. Hann leikur Jake Chambers, þjáðan dreng með sér­ staka hæfileika en hefur ekki enn fullan skilning á því hvað þeir þýða, frekar en sýnir hans um illar verur og heimsendi. Þegar skrímsli í dulargervum reyna að elta Jake uppi uppgötvar hann hlið að öðrum heimi. Þá kynnist hann ljónharða byssumanninum Ro­ land, sem staðið hefur í eilífu stríði við prakkaralegan seiðkarl, betur þekktan sem „maðurinn í svörtu“ (og gengur undir hinu ógnandi heiti Walter), sem hefur það markmið að fella turninn sem heldur heiminum saman og leysa ill öfl úr læðingi. Með gallaðri úrvinnslu myndar­ innar sjá hins vegar framleiðendur til þess að fella þennan fræga turn – og alla mögu­ leika á áframhaldi – löngu áður en McConaughey fær tækifærið til þess að klára það verk. Feilspor mynd­ arinnar skrifast ekki alfarið á Taylor, en í burð­ arhlutverkinu er hann ekki nógu sannfærandi og hefði mátt end­ urhugsa það að setja Roland og Walter á hliðar­ línuna. Það er þó ekki bara leikurinn hjá Taylor sem er vandamálið, heldur hvernig handritið mótar persónuna og gerir afskaplega lítið við hana. Það er ekki mikið sem skilur Jake frá öðrum drengjum með náðargáfu í fantasíusögum sem uppgötva stærri ævintýraveröld og æðri tilgang, til að mynda Bastian úr Sögunni endalausu, Harry Potter, Percy Jackson eða jafnvel Eragon, eða réttar sagt beinagrindinni að slíkum karakterum. Elba er aftur á móti þannig gerður að hann gæti varla verið slakur í hlutverki þótt hann svæfi. Að eðlisfari er hann ákaflega svalur og hleypir þeim töfrum aðeins í gegnum byssumanninn Roland með reiði og stóískum sjarma. McCon aughey er lítið að flækja hlutina hjá sér. Maðurinn í svörtu býður ekki upp á mikla dýpt, svo leikarinn reynir í staðinn bara að leika sér að hlutverkinu, nánast eins og hann sé meðvitað að reyna að bjarga vondu handriti með dassi af ofleik og sjálfumglöðum straumum. Í sameiningu bæta reynsluboltarnir tveir einhverju við myndina, í það minnsta nægum púlsi til þess að koma í veg fyrir leiðinlega setu. Sagnabálkurinn er morandi í flottum hugmyndum en inni­ haldið er ekki upp á marga fiska í þessu tætta, klisjukennda hand­ riti og er hreinlega með ólíkindum hvað góður efniviður virðist vera útþynntur en í senn þvældur að óþörfu. Það kemur líka út í rennsl­ inu eins og fjöldi sena hafi verið klipptar út á síðustu stundu. F r a m v i n d a my n d a r i n n a r virkar eins og t i l þ r i f a l í t i l l „pilot“­þáttur, sérstaklega gerð­ ur til þess að stilla u p p at hyg l i s ­ verðum stefnum en skilur áhorf­ a n d a n n s í ð a n bara eftir með smjörþefinn. Fjöl­ laga veröld Kings kemur út eins og algjört aukaatriði og er lítið sem ekk­ ert sem við fáum að kynnast af henni af viti. Þess er gætt að strá nógu af tilvís­ unum í stærri sarp Stephens King, stórum eða litlum (Christine­bíllinn dúkkar meðal annars þarna upp í leynihlutverki ásamt lúmskri vísun í Shining­tvíburana, svo dæmi sé tekið). Myndin helst á floti með því að vera eins brött og mögulegt er, sem er ákveðinn styrkur í sjálfu sér. Atburðarásin kemur sér beint að efn­ inu (eins lítið af því og er í boði), tefst örsjaldan og myndin er löngu liðin hjá áður en áhorfandinn fær einu sinni tíma til þess að melta heildina. The Dark Tower er nánast eins og lifandi táknmynd bæði auð­ gleymdrar Hollywood­stórmyndar, þar sem einungis púður og flugeldar ráða öllu, og á sama tíma er þetta eðaldæmi um sóað tækifæri miðað við möguleika. Kannski mun betur ganga með næstu tilraun, hvenær og hvernig sem hún verður. Tómas Valgeirsson niðursTaða: Misheppnuð tilraun, en Elba er flottur. Turninn sem féll áður en hann var risinn Hinn tilþrifalausi ungi leikari Tom Taylor í hlutverki Jake ásamt Idris Elba sem leikur hinn eitursvala Roland. Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur tannlæk nar mæla m eð GUM tannvör um ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum allar upplýsingar á www.icecare.is FYRIR FLESTAR GERÐIR BÍLA... GORMAR HÖGGDEYFAR VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ! STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! MERKIÐ MITT Skoðaðu litríkt úrval á bros.is Bros auglýsingavörur, Norðlingabraut 14. Bros auglýsingavörur með þínu merki 1 7 . á g ú s T 2 0 1 7 F i m m T u d a g u r52 m e n n i n g ∙ F r É T T a B L a ð i ð Bíó 1 7 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 8 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 7 F -7 0 4 4 1 D 7 F -6 F 0 8 1 D 7 F -6 D C C 1 D 7 F -6 C 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.