Fréttablaðið - 17.08.2017, Síða 72
kvikmyndir
The dark Tower
HHHHH
Leikstjóri: Nikolaj Arcel
Framleiðendur: Akiva Goldsman,
Ron Howard, Erica Huggins
Handrit: Akiva Goldsman, Jeff
Pinkner, Anders Thomas Jensen,
Nikolaj Arcel
Aðalhlutverk: Tom Taylor, Idris
Elba, Matthew McConaughey
Kvikmyndir byggðar á bókum
Stephens King eru næstum því heill
bíógeiri út af fyrir sig. Útkomurnar
hafa verið eins fjölbreyttar og þær
hafa verið misjafnar að gæðum
en segja má að The Dark Tower sé
ótvírætt hans metnaðarfyllsta og
umfangsmesta verk. Þessi mikil
fenglegi sjö eininga skáldsögubálkur
var í bígerð hjá King í þrjátíu ár og
snarar saman miklu úr sögum hans,
hugmyndum og yfirnáttúrulegum
djöflum undir sama hatt.
Það er því skiljanlegt að aðdá
endur höfundarins taki það aðeins
meira nærri sér þegar ekki bara er
misst marks í flutningi inngangs
ins upp á hvíta tjaldið, heldur þegar
afraksturinn, með svona botnlaust
aðgengi að villtum hugmyndum,
verður svona flatur, óeftirminni
legur og ber merki um fullmarga
kokka í eldhúsinu.
Vandamálið við þessa útkomu er
í rauninni margþætt; sem aðlögun
(og þá mjög frjálsleg aðlögun sem
veiðir nokkra þætti úr fyrstu, þriðju
og sjöundu bókinni) er myndin
skelþunn, formúlubundin og ein
kennilega kraftlaus. Ef myndin er
metin sem sjálfstæð eining og án
allra tenginga eða hugsana um að
hér sé reynt að leggja teina fyrir
komandi kvikmyndir og tilvonandi
sjónvarpsseríu, er erfitt að segja að
myndin sé eitthvað átakanlega
slæm. En skelfilega mikið „bla“ er
hún.
Fyrir það fyrsta hvílir The Dark
Tower mestmegnis á öxlum heldur
tilþrifalauss ungs leikara að nafni
Tom Taylor. Hann leikur Jake
Chambers, þjáðan dreng með sér
staka hæfileika en hefur ekki enn
fullan skilning á því hvað þeir
þýða, frekar en sýnir hans um
illar verur og heimsendi. Þegar
skrímsli í dulargervum reyna að
elta Jake uppi uppgötvar hann hlið
að öðrum heimi. Þá kynnist hann
ljónharða byssumanninum Ro
land, sem staðið hefur í eilífu stríði
við prakkaralegan seiðkarl, betur
þekktan sem „maðurinn í svörtu“
(og gengur undir hinu ógnandi heiti
Walter), sem hefur það markmið að
fella turninn sem heldur heiminum
saman og leysa ill öfl úr læðingi.
Með gallaðri úrvinnslu myndar
innar sjá hins vegar framleiðendur
til þess að fella
þennan fræga turn
– og alla mögu
leika á áframhaldi
– löngu áður en
McConaughey fær
tækifærið til þess
að klára það verk.
Feilspor mynd
arinnar skrifast
ekki alfarið á
Taylor, en í burð
arhlutverkinu er
hann ekki nógu
sannfærandi og
hefði mátt end
urhugsa það að
setja Roland og
Walter á hliðar
línuna. Það er
þó ekki bara
leikurinn hjá
Taylor sem er
vandamálið,
heldur hvernig handritið mótar
persónuna og gerir afskaplega lítið
við hana. Það er ekki mikið sem
skilur Jake frá öðrum drengjum
með náðargáfu í fantasíusögum sem
uppgötva stærri ævintýraveröld og
æðri tilgang, til að mynda Bastian
úr Sögunni endalausu, Harry Potter,
Percy Jackson eða jafnvel Eragon,
eða réttar sagt beinagrindinni að
slíkum karakterum.
Elba er aftur á móti þannig
gerður að hann gæti varla verið
slakur í hlutverki þótt hann svæfi.
Að eðlisfari er hann ákaflega svalur
og hleypir þeim töfrum aðeins í
gegnum byssumanninn Roland með
reiði og stóískum sjarma.
McCon aughey er lítið að flækja
hlutina hjá sér. Maðurinn í svörtu
býður ekki upp á mikla dýpt, svo
leikarinn reynir í staðinn bara að
leika sér að hlutverkinu, nánast eins
og hann sé meðvitað að reyna að
bjarga vondu handriti með dassi af
ofleik og sjálfumglöðum straumum.
Í sameiningu bæta reynsluboltarnir
tveir einhverju við myndina, í það
minnsta nægum púlsi til þess að
koma í veg fyrir leiðinlega setu.
Sagnabálkurinn er morandi
í flottum hugmyndum en inni
haldið er ekki upp á marga fiska í
þessu tætta, klisjukennda hand
riti og er hreinlega með ólíkindum
hvað góður efniviður virðist vera
útþynntur en í senn þvældur að
óþörfu. Það kemur líka út í rennsl
inu eins og fjöldi sena hafi verið
klipptar út á
síðustu stundu.
F r a m v i n d a
my n d a r i n n a r
virkar eins og
t i l þ r i f a l í t i l l
„pilot“þáttur,
sérstaklega gerð
ur til þess að stilla
u p p at hyg l i s
verðum stefnum
en skilur áhorf
a n d a n n s í ð a n
bara eftir með
smjörþefinn. Fjöl
laga veröld Kings
kemur út eins og
algjört aukaatriði
og er lítið sem ekk
ert sem við fáum að
kynnast af henni af
viti.
Þess er gætt að
strá nógu af tilvís
unum í stærri sarp Stephens King,
stórum eða litlum (Christinebíllinn
dúkkar meðal annars þarna upp í
leynihlutverki ásamt lúmskri vísun
í Shiningtvíburana, svo dæmi sé
tekið). Myndin helst á floti með því
að vera eins brött og mögulegt er,
sem er ákveðinn styrkur í sjálfu sér.
Atburðarásin kemur sér beint að efn
inu (eins lítið af því og er í boði), tefst
örsjaldan og myndin er löngu liðin
hjá áður en áhorfandinn fær einu
sinni tíma til þess að melta heildina.
The Dark Tower er nánast eins
og lifandi táknmynd bæði auð
gleymdrar Hollywoodstórmyndar,
þar sem einungis púður og flugeldar
ráða öllu, og á sama tíma er þetta
eðaldæmi um sóað tækifæri miðað
við möguleika. Kannski mun betur
ganga með næstu tilraun, hvenær og
hvernig sem hún verður.
Tómas Valgeirsson
niðursTaða: Misheppnuð tilraun, en
Elba er flottur.
Turninn sem féll
áður en hann var risinn
Hinn tilþrifalausi ungi leikari Tom Taylor í hlutverki Jake ásamt Idris Elba sem leikur hinn eitursvala Roland.
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
FYRIR FLESTAR
GERÐIR BÍLA...
GORMAR
HÖGGDEYFAR
VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ!
STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
MERKIÐ
MITT
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
1 7 . á g ú s T 2 0 1 7 F i m m T u d a g u r52 m e n n i n g ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Bíó
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-7
0
4
4
1
D
7
F
-6
F
0
8
1
D
7
F
-6
D
C
C
1
D
7
F
-6
C
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K