Fréttablaðið - 18.09.2017, Page 6

Fréttablaðið - 18.09.2017, Page 6
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | fjaroflun@olis.is | rekstrarland.is Í Rekstrarlandi fást flottir fjáröflunarpakkar, tilbúnir eða sérsniðnir eftir óskum. Úrval af hreinsivörum, pappírs- vörum, plastpokum og álpappír. Gæðavörur sem nýtast vel og gaman er að selja. FJÁRÖFLUN FRAMUNDAN? Bandaríkin Fullkomin óvissa virð- ist vera um aðild Bandaríkjanna að Parísarsamkomulaginu um loftslags- mál. H. R. McMaster, þjóðaröryggis- ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkja- forseta, sagði það ekki standa til að snúa við þeirri ákvörðun forsetans að draga landið út úr Parísarsam- komulaginu. Bandaríska blaðið Wall Street Journal greindi frá því á laugardag- inn að stjórn Trumps hefði ákveðið að hætta við að  hætta, en þjóðar- öryggisráðgjafinn sagði það af og frá. „Það er fölsk frétt. Forsetinn ákvað að draga sig úr Parísarsamkomu- laginu vegna þess að það er slæmur samningur fyrir bandarísku þjóð- ina“, sagði McMaster. Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Banda- ríkjastjórn væri að skoða leiðir til að vinna með öðrum að nýjum skil- yrðum í baráttunni við loftslags- breytingar. Skilyrði sem ættu að taka tillit til hagkerfis Bandaríkjanna og efnahagslegra hagsmuna. Engin ákvæði eða tæki eru til stað- ar til að neyða ríkin 195 sem undir- rituðu samkomulagið til að setja sér tiltekin markmið. Bandarísk stjórnvöld hafa þannig sjálf- dæmi um að ákveða ný markmið. – khn Óvissa um úrsögn úr Parísardíl Donald Trump Bandaríkja­ forseti. StjórnSýSla Ákvörðun um að veita Hjalta Sigurjóni Haukssyni uppreist æru stendur þrátt fyrir að svo virðist sem tvær af þremur umsögnum með umsókn hans hafi ekki verið skrif- aðar í þeim tilgangi. Skila þarf inn tveimur vottorðum um góða hegð- un frá valinkunnum einstaklingum, t.d. vinnuveitanda, þegar sótt er um uppreist æru til dómsmálaráðu- neytisins. Lagaprófessor segir að þeir sem telji að bréf sín hafi verið misnotuð í þessum tilgangi gætu leitað til lögreglu. Haraldur Þór Teitsson, fram- kvæmdastjóri hópferðabílafyrir- tækisins Teits Jónassonar ehf., sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann fullyrðir að hann hafi ekki skrifað meðmælabréf til handa Hjalta Sigurjóni vegna umsóknar hans um uppreist æru heldur hafi verið um að ræða meðmæli í vinnu þar sem hann væri að staðfesta að Hjalti hefði starfað hjá fyrirtækinu og hann gæti mælt með bílstjóra. „Það að þessi bréf voru notuð sem meðmæli um uppreist æru Hjalta var án minnar vitundar og samþykkis. Undirrituðum var aldrei tjáð að þessi bréf yrðu notuð í þeim tilgangi enda hefðu þau aldrei verið veitt sem slík,“ sagði Haraldur Þór í yfirlýsingunni og gagnrýndi forkastanleg vinnubrögð ráðuneytisins að koma með þessum hætti „aftan að grandalausu fólki“. Áður hafði Sveinn Matthíasson, yfirmaður Hjalta hjá Kynnisferð- um, sagt að í bréfinu sem hann hafi skrifað undir fyrir Hjalta hafi verið að finna texta sem hann neitar að hafa skrifað undir. Hann hafi aðeins skrifað undir bréf þar sem hann staðfesti hæfni Hjalta í starfi sem bílstjóra. Þriðji umsagnaraðilinn var svo Benedikt Sveinsson, eigandi Kynnisferða og faðir Bjarna Bene- diktssonar forsætisráðherra, sem sagði í sinni yfirlýsingu að hann hefði skrifað undir bréf sem Hjalti hefði fært honum útfyllt. Ef marka má yfirlýsingar Haralds og Sveins þá virðist þeim ekki hafa verið kunnugt um að bréfin sem þeir skrifuðu undir yrðu notuð í þeim tilgangi að aðstoða Hjalta, dæmdan barnaníðing, við að fá uppreist æru. Líklegt er þó að ákvörðunin um að veita Hjalta uppreist æru standi, nema bréfritarar taki til sinna ráða. „Þessi ákvörðun stendur á meðan ekki er leitt í ljós að lögð hafi verið fram hugsanlega fölsuð gögn. Þá þarf að vega og meta hvort beri að endurupptaka málið,“ segir Björg Thorarensen, prófessor við laga- deild Háskóla Íslands. „Ef þessir menn segjast aldrei hafa skrifað undir það sem það var notað í eða hafi því verið breytt hlýtur að hvíla á þeim að kæra það til lögreglu ef um skjalafals er að ræða. Það er eitt úrræði.“ mikael@frettabladid.is Hjalti heldur ærunni þrátt fyrir meint meðmælasvik á umsókn Tveir þeirra sem skráðir voru meðmælendur í umsókn Hjalta Sigurjóns Haukssonar um uppreist æru töldu sig vera að veita honum meðmæli á atvinnuumsókn. Lagaprófessor segir að ákvörðunin um að veita Hjalta uppreist æru standi en að bréfritarar geti kært málið til lögreglu, telji þeir að fölsun hafi átt sér stað. Hjalti Sigurjón Hauksson fékk fimm og hálfs árs fangelsisdóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Forsetinn ákvað að draga sig úr Parísar- samkomulaginu vegna þess að það er slæmur samningur fyrir bandarísku þjóðina. H. R. McMaster dómSmál Kona á þrítugsaldri hefur verið ákærð fyrir nokkrar afar hættulegar líkamsárásir á síðustu misserum á Akureyri. Verði hún fundin sek af þeim ákærum gæti hún átt yfir höfði sér langa fang- elsisvist. Um jólahátíðina síðustu skar konan kynsystur sína í andlitið með eggvopni þannig að fórnarlambið hlaut tvö skurðsár, annað yfir vinstra kinnbein og hitt yfir höku vinstra megin. Er þetta af ákæru- valdinu talin sérstaklega hættuleg líkamsárás sem getur leitt til dauða. Gerir fórnarlambið í málinu einkaréttarkröfu upp á fimm millj- ónir króna vegna þess skaða og miska sem hún hefur orðið fyrir. Einnig er konunni gert að sök að hafa, á skemmtistað í miðbæ Akur- eyrar, ráðist að annarri konu, rifið hana niður í gólfið og sest ofan á hana. Eftir þann atgang hafi hin ákærða sparkað að minnsta kosti sex sinnum í höfuð og brjóstkassa konunnar þegar hún var að reyna að standa upp. Þriðja alvarlega líkamsárásin sem konan er ákærð fyrir varðar einnig sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir með því að hafa slegið til karlmanns með sprautunál. Stakkst nálin á kaf í vinstra hand- arbak fórnarlambsins þegar það bar hönd fyrir höfuð sér til að verja sig. Síðan á konan að hafa hlaupið á eftir manninum með sprautuna á lofti og hótað á sama tíma að drepa hann. Ákærða var á þessum tíma smituð af lifrarbólgu C. Krefst fórnarlambið í því máli rúmlega tveggja milljóna króna í skaðabætur en maðurinn þarf að fara reglulega í blóðprufur vegna árásarinnar með sýktri sprautunál. – sa Ákærð fyrir ítrekaðar stórhættulegar líkamsárásir Lögreglustöðin á Akureyri FréTTA- BLAðið/PjeTur 1 8 . S e p t e m B e r 2 0 1 7 m á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 8 -0 9 -2 0 1 7 0 5 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D C 1 -4 A 2 0 1 D C 1 -4 8 E 4 1 D C 1 -4 7 A 8 1 D C 1 -4 6 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.