Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 38
Gylfi í nýju liði en áfram fastur í botnslagnum Everton tapaði 4-0 á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær og hefur liðið þar með tapað fjórum leikjum í röð í öllum keppnum. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hafa enn fremur ekki skorað í 404 mínútur og það er grátt yfir Goodison Park í byrjun tímabils enda situr liðið í fallsæti. Gylfi bíður eftir fyrsta sigrinum. fótbolti Gylfi Þór Sigurðsson lék í gær sinn sjötta leik með Everton en íslenski landsliðsmaðurinn hefur enn ekki náð að fagna sigri í Everton-búningnum. Útlitið er allt annað en bjart á Goodison Park eftir þrjú stór töp á aðeins átta dögum. Everton tapaði 4-0 fyrir Manchester United í gær en hafði áður tapað 3-0 fyrir Atalanta í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og 3-0 á móti Totten- ham á heimavelli um síðustu helgi. Gylfi kom fyrst inn á sem vara- maður í 1-1 jafntefli á móti Man- chester City 21. ágúst síðastliðinn þar sem City-menn jöfnuðu átta mínútum fyrir leikslok og Gylfi skoraði síðan eftirminnilegt jöfn- unarmark á móti króatíska liðinu Hajduk Split í fyrsta leik sínum í byrjunarliðinu. Frá því að Gylfi skoraði magnað mark frá miðlínu Poljud-leikvangsins í Split 24. ágúst síðastliðinn þá hafa hvorki hann né liðsfélagar hans í Everton fundið leið í mark andstæðinganna. Everton-liðið hefur nú leikið í 404 mínútur án þess að skora mark og við erum að tala um lið sem fékk til síns Gylfa og sjálfan Wayne Rooney fyrir tímabilið. 150 milljónir í nýja leikmenn Gylfi var keyptur til Everton fyrir meira en 40 milljónir punda og Ronaldo Komen eyddi meira en 150 milljónir punda í nýja leik- menn í sumar. Stefnan var að koma Everton-liðinu inn í baráttuna um toppsæti deildarinnar og Meistara- deildardraumar voru farnir að gera vart við sig hjá stuðningsmönnum Leikmaður helgarinnar Argentínumaðurinn Sergio Agüero fer fyrir stórsókn Manchester City þessa dagana og þessi 29 ára gamli sóknarmaður skoraði þrennu og lagði upp eitt mark til viðbótar í 6-0 útisigri á Watford í ensku úrvals- deildinni um helgina. Þriðja og síðasta markið skoraði hann eftir magnaðan einleik í gegnum vörn Watford- liðsins. Eftir frammistöðu helgarinnar er Agüero ekki aðeins kominn upp í toppsætið yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð, með fimm mörk í fimm leikjum, heldur vantar hann enn fremur aðeins þrjú mörk til að bæta 77 ára gamalt markamet Manchester City. „Vonandi nær hann þessu meti sem fyrst þannig að við getum haldið upp á það. Hann er þegar orðinn goðsögn og hluti af sögu þessa fé- lags. Tölurnar hans tala sínu máli. Hann er ótrú- legur, sagði Pep Guardiola um Agüero. Agüero vantar nú aðeins tvö mörk til að jafna markamet Manchester City sem Eric Brook setti á árunum 1928 til 1940. Brook skoraði þá 177 mörk fyrir City í 494 leikjum. Agüero er aftur á móti búinn að skora sín 175 í aðeins 259 leikjum. Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Chelsea og Arsenal gerðu markalaust jafntefli á Brúnni í gær í uppgjöri stóru nágrannanna í Lond- on. Arsenal fékk besta færi leiksins í fyrri hálfleik og skoraði mark sem var dæmt af í þeim síðari en tókst að enda fimm leikja taphrinu sína á Stamford Bridge. Hvað kom á óvart? Burnley fékk aðeins 7 stig samtals á útivelli á síðustu leiktíð en eftir 1-1 jafntefli á An- field um helgina hefur liðið náð í 5 stig í fyrstu þremur útileikjum tímabilsins sem hafa verið á móti risunum Chelsea (3-2), Tottenham (1-1) og Liverpool (1-1). Mestu vonbrigðin Tottenham tókst ekki að skora í markalausu jafntefli á móti Swansea á heimavelli um helgina og hefur því þegar tapað fjórum stigum í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum á Wembley í ensku úrvals- deildinni. Talandi um að sakna White Hart Lane. félagsins. Nú eftir fimm leiki situr Everton- liðið hins vegar í fallsæti deildar- innar með markatöluna 2-10. Það er bara eitt lið með verri markatölu og það er lið Crystal Palace sem hefur enn ekki skorað á leiktíðinni. Það er líka farið að hitna undir knatt- spyrnustjóranum Ronald Koeman. Crystal Palace er þegar búið að reka stjórann og Koeman gæti verið næstur til að taka pokann sinn. Verðum að fara vinna leiki „Stundum uppskerð þú meira en þú átt skilið. Við gerðum stór mis- tök í stöðunni 1-0 og eftir það var þetta búið. Ég var samt ánægður með það sem ég sá frá liðinu mínu í dag og mun ánægðari en með leik- inn á fimmtudaginn,“ sagði Ronald Koeman. „Það eru ekki mörg lið sem geta búið sér til við jafngóð færi og við gerðum í dag. Við nýttum þau ekki og eftir þessi mistök var stað- an orðin 2-0. Eftir þennan leik þá eigum við fjóra heimaleiki í röð og við verðum að fara að vinna leiki því annars lendum við í vandræðum,“ sagði Koeman. Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 5. umferðar 2017-18 C. Palace - Southampton 0-1 0-1 Steven Davis (6.). Crystal Palace setti met því liðið er það fyrsta sem skorar ekki í fyrstu fimm leikjum sínum. Huddersfield - Leicester 1-1 1-0 Laurent Depoitre (46.), 1-1 Jamie Vardy, víti (50.) West Brom - West Ham 0-0 Watford - Man. City 0-6 0-1 Sergio Agüero (27.), 0-2 Sergio Agüero (31.), 0-3 Gabriel Jesus (37.), 0-4 Nicolás Otamendi (63,), 0-5 Sergio Agüero (81.), 0-6 Raheem Sterling, víti (88.). Newcastle - Stoke 2-1 1-0 Christian Atsu (19.), 1-1 Xherdan Shaqiri (56.), 2-1 Jamaal Lascelles (68.). Liverpool - Burnley 1-1 0-1 Arfield (27.), 1-1 Mohamed Salah (30.) Tottenham - Swansea 0-0 Chelsea - Arsenal 0-0 Man. United - Everton 4-0 1-0 Antonio Valencia (4.), 2-0 Henrik Mkhitaryan (83.), 3-0 Romelu Lukaku (89.), 4-0 Anthony Martial, víti (90.+2). Manchester United skoraði þrjú mörk á síðustu sjö mínútunum í gær og hefur nú skorað 9 af 16 mörkum sínum í deildinni á síðustu tíu mínútunum leikjanna. FÉLAG L U J T MÖRK S Man. City 5 4 1 0 16-2 13 Man. Utd 5 4 1 0 16-2 13 Chelsea 5 3 1 1 8-5 10 Newcastle 5 3 0 2 6-4 9 Tottenham 5 2 2 1 7-3 8 Huddersf. 5 2 2 1 5-3 8 Burnley 5 2 2 1 6-5 8 Liverpool 5 2 2 1 9-9 8 Southampt. 5 2 2 1 4-4 8 West Brom 5 2 2 1 4-4 8 Watford 5 2 2 1 7-9 8 Arsenal 5 2 1 2 7-8 7 Stoke 5 1 2 2 5-6 5 Swansea 5 1 2 2 2-5 5 Leicester 5 1 1 3 7-9 4 Brighton 5 1 1 3 4-7 4 West Ham 5 1 1 3 4-10 4 Everton 5 1 1 3 2-10 4 Bournem. 5 1 0 4 3-9 3 Cry. Palace 5 0 0 5 0-8 0 Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í liði Everton gátu ekki leynt vonbrigðum sínum á Old Trafford í gær. 4-0 skellur bættist þá í viðbót við öll vonbrigðin í undanförnum leikjum þar sem liðinu virðist fyrirmunað að skora. FRÉTTABLAðið/NORdiCHPOTOS/GETTy S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Lék allan leikinn með Everton sem steinlá 4-0 á útivelli á móti liði Manchester United á Old Trafford í gær. Fékk gott færi í stöðunni 1-0 fyrir United. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Spilaði allan leikinn þegar Cardiff tapaði stigum í þriðja leiknum í röð. Cardiff er í 3. sæti en jöfnunarmarkið á móti Sheff. Wed á 90.+5 mín. Reading Jón daði Böðvarsson Spilaði fyrri hálfleik í 1-1 jafntefli Reading á móti Brentford á útivelli. Reading var 1-0 undir þegar hann var tekinn af velli. Aston Villa Birkir Bjarnason Kom inn á sjö mínútum fyrir leikslok í 3-0 útisigri Aston Villa á Barnsley. Bristol City Hörður B. Magnússon Sat allan tímann á vara- mannabekknum þegar Bristol City vann Derby 4-1. Burnley Jóhann Berg Guðm. Spilaði fyrsta klukkutím- ann þegar Burnley gerði 1-1 jafntefli við Liverpool á Anfield. 1 8 . S e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r14 1 8 -0 9 -2 0 1 7 0 5 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D C 1 -2 2 A 0 1 D C 1 -2 1 6 4 1 D C 1 -2 0 2 8 1 D C 1 -1 E E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.