Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 14
Ester segir foreldra geta hjálpað börnum sínum að breyta hugsunarhætti sínum og að setja sér raun- hæfari markmið. Þeir geta líka þurft að taka á eigin kvíða svo þeir séu ekki óvart að ýta undir kvíða barna sinna. MYND/EYÞÓR Sérfræðingar tala um að síaukin samfélagsmiðlanotkun ýti undir vanlíðan og kvíða hjá unglingum. Þeir valda áður óþekktu áreiti. Það er ekki lengur um að ræða tveggja manna tal heldur fara hlutirnir fram fyrir allra augum. Það getur reynst óhörnuðum unglingum erfitt. Við höfum það að markmiði að starfa fyrir alla foreldra í landinu og ákváðum því að taka upp þá nýjung að bjóða upp á fræðslukvöld, foreldrum að kostnaðarlausu. Kvíði unglinga hefur verið talsvert í umræðunni að undanförnu og hafa foreldrar kallað eftir því að fá meiri fræðslu. Það eru ýmis námskeið í boði en þau eru oftar en ekki kostnaðar- söm. Við ákváðum því að bregðast við,“ segir Ester Ingvarsdóttir, sálfræðingur hjá Foreldrahúsi, sem mun hafa umsjón með fyrsta fræðslukvöldinu. Hún hyggst byrja á erindi um efnið en síðan verður boðið upp á spurningar og umræður og vonast hún til að for- eldrar taki virkan þátt. Að sögn Esterar eru kvíði og áhyggjur unglinga meira uppi á yfirborðinu nú en oft áður. „Það er erfitt að segja til um hvort það sé vegna þess að hann hafi beinlínis aukist eða vegna þess að meira er um greiningar.“ Hún segir þó að marktæk aukning hafi verið á kvíða eftir kreppu þó áhrif hennar séu væntanlega eitthvað farin að fjara út. „Aftur á móti tala sérfræðingar í auknum mæli um að síaukin samfélags- miðlanotkun ýti undir kvíða. Þeir valda áður óþekktu áreiti. Það er ekki lengur um að ræða tveggja manna tal heldur fara hlutirnir fram fyrir allra augum. Það getur reynst óhörðnuðum unglingum erfitt. Þeir upplifa margir pressu um að vera fullkomnir og setja sér óraunhæf markmið sem aftur veldur vonbrigðum og vonleysi,“ útskýrir Ester. Hún segir ýmislegt hægt að gera til að styðja við unglinga með áhyggjur og kvíða og nefnir hugræna atferlismeðferð og ýmis sjálfsstyrkingarnámskeið í þeim efnum. „Þá geta foreldrar hjálpað börnum að breyta hugsunarhætti sínum og að setja sér raunhæfari markmið. Eins geta þeir þurft að taka á eigin kvíða svo þeir séu ekki óvart að ýta undir kvíða barna sinna.“ Næsta fræðslukvöld Foreldra- húss fer fram miðvikudaginn 1. nóvember. Það ber yfir- skriftina Sagt er, satt er – samtal um vímuefni og verður í umsjón áfengis- og vímuefnaráðgjafanna Rafns M. Jónssonar og Guðrúnar Bjargar Ágústsdóttur. „Þau munu aðallega fjalla um kannabisneyslu sem hefur aukist meðal íslenskra unglinga. Þau fara yfir hættu- merki, áhættu og gefa ráð en bæði eru mjög reynd í þessum efnum,“ segir Ester. Hún segir foreldra oft vandræðum með hvernig þeir eigi að bregðast við ef börn þeirra byrja að fikta. „Margir ætla að taka á málinu af fullri hörku en fá þá unglingana upp á móti sér sem leiðir af sér vítahring með stöðugt harðari refsingum á móti stöðugt meiri flótta. Þá getur verið gott að fá leiðsögn.“ Miðvikudaginn 29. nóvem- ber munu þær Guðrún Björg og Elísabet Lorange, listmeðferðar- fræðingur og kennari, svo halda fræðslu undir yfirskriftinni Hinn sanni jólaandi – jólahald hjá fjöl- skyldum í erfiðum aðstæðum. Ester segir yfirleitt talað um jólin sem gleðilegan og hátíðlegan tíma. „Svo er þó ekki hjá öllum og hjá sumum er þetta sá tími sem fólk kvíðir hvað mest.“ Hún segir það geta verið vegna vímuefnavanda, ósættis í fjölskyldunni og fjárhags- erfiðleika svo dæmi séu nefnd og er markmið fræðslunnar að gefa fólki tól til að komast betur í gegnum þennan tíma. Foreldrahús er sprottið frá gras- rótarsamtökunum Vímulausri æsku sem hafa verið starfandi um áratuga skeið. „Þar hefur náðst góður árangur og hefur dregið verulega úr áfengisneyslu og reykingum unglinga þó aukin Vera Einarsdóttir vera@365.is Leiðbeinendur eru: Halla Birgisdóttir fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi, Jónas Þór fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursson fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í., Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. Það er spennandi að prófa að matreiða framandi rétti. Þessi bragðgóði kjúklingaréttur á ættir að rekja til Víetnam og hann er baðaður í kókos og karríi. Uppskriftin dugar fyrir fjóra. 6 kjúklingabringur Karrí-marineríng 2 tsk. karri, gjarnan blanda af mildu og sterku 1 tsk. salt Nýmalaður pipar 1 tsk. sykur Börkur og safi úr einni límónu Karrí og kókossósa 2 laukar 2 hvítlauksrif, rifin 2 tsk. karrí 1 lárviðarlauf ½ tsk. túrmerik 1 ½ dós kókosmjólk 1 dl rjómi 1 msk. sojasósa 1 lítil dós ananashringir 150 g strengjabaunir 250 g hrísgrjónanúðlur 8 blöð af fersku kóríander Skerið bringurnar í bita. Blandið saman í skál karríi, pipar, sykri, límónusafa og límónuberki. Veltið kjúklingabitunum upp úr blöndunni og marinerið helst yfir nótt. Mælt er með að geyma saltið þar til rétt áður en eldað er. Steikið kjúklingabitana á pönnu. Setjið örlítið vatn út á pönnuna í lokin. Geymið á meðan laukurinn er steiktur ásamt hvítlauk með karríinu. Setjið því næst lárviðar- lauf, túrmerik, kókosmjólk, rjóma og sojasósu. Látið malla nokkrar mínútur. Þá er kjúklingabitarnir settir út í sósuna ásamt ananasbitum og strengjabaunum. Núðlurnar eru soðnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og síðan settar saman við sósuna og kjúklinginn. Puntið kjúklingaréttinn með kóríander. Víetnamskur kjúklingur Ljúffengur karríréttur sem á ættir að rekja til Víetnam. kannabisneysla sé áhyggjuefni,“ segir Ester. Þótt starfsfólk Foreldra- húss sé enn að aðstoða foreldra barna í neyslu hefur starfsemin víkkað. „Í dag erum við líka að taka á almennri vanlíðan, kvíða og depurð svo dæmi séu nefnd. Við bjóðum upp á ráðgjafaviðtöl fyrir bæði foreldra og unglinga og ýmis námskeið auk þess sem við starfrækjum stuðningshópa fyrir foreldra sem eiga börn í neyslu. Fræðslukvöldin eru svo liður í að efla forvarnir og ná til fleiri for- eldra.“ Öll fræðslukvöldin verða haldin í Laugarneskirkju. Þau hefjast klukkan átta og standa til tíu. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . S E p t E M B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 1 8 -0 9 -2 0 1 7 0 5 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D C 1 -2 C 8 0 1 D C 1 -2 B 4 4 1 D C 1 -2 A 0 8 1 D C 1 -2 8 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.