Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 16
Halldór Kristján pantaði súkkulaðibílinn frá Tékk-landi en hann kom á götuna í Reykjavík í júní síðastliðnum. Bíllinn, sem er sérhannaður að ósk Halldórs, hefur vakið mikla athygli og hefur einn stærsti ferðavefur heims, Lonely Planet, fjallað um hann. Halldór telur að þetta sé eini bíll sinnar tegundar í heiminum. Núna er bíllinn staðsettur við Fjörð í Hafnarfirði og þar verður Halldór með námskeið á miðviku- dag um leið og hann heldur upp á 20 ára afmælið. „Ég byrjaði á þessu árið 1997 en þá var ég nýkominn heim frá Danmörku þar sem ég var í námi hjá hinum fræga Jørgen Søgåaad Jensen, kökugerðarmeistara í Kransekagehuset. Hjá honum hafa margir þekktir verið í námi, meðal annars Mette Blomsterberg, sem hefur verið með þættina Det søde liv sem sýndir hafa verið hér á landi. Við erum tveir Íslendingar sem höfum lært hjá Jørgen sem er algjör snillingur. Mér fannst ég ekki fá nægilegan lærdóm í köku- gerð í bakaranáminu hér heima og fór því í framhaldsnámið,“ segir Halldór. Þótt hann sé lærður konditor starfar hann ekki í bakaríi heldur á Fasteignasölu Reykjavíkur. Hins vegar hefur hann haldið námskeið í kransaköku-, konfekt- og páska- eggjagerð. „Ég er í löggildingar- námi í fasteignasölu en það starf á vel við mig meðfram námskeið- unum. Í fasteignasölu kynnist maður fólki á persónulegan hátt og þetta er mjög gefandi og skemmti- legt starf. Ég var bakari í eitt ár eftir að ég kom úr námi en mér fannst starfið ekki henta mér. Mér bauðst að opna kransakökuhús í Smára- lindinni stuttu eftir opnun en líf mitt þróaðist á annan veg. Móðir mín segir að það sem maður læri verði ekki frá manni tekið. Mitt sex ára nám mitt nýtist mér til Með námskeið í súkkulaðivagni Halldór Kristján Sigurðsson hefur haldið vinsæl konfekt- gerðarnámskeið í tuttugu ár. Núna heldur hann námskeið í sérhönnuðum súkkulaðivagni. Halldór Kristján Sigurðsson, bakari og konditormeistari, stendur hér við súkkulaðibílinn. MYND/EYÞÓR Súkkulaðivagninn er sá eini sinnar tegundar í heiminum og var sérhannaður í Tékklandi fyrir Halldór. MYND/EYÞÓR Fallegir súkkulaðimolar með Íslands-merki. Áhugasamir hafi samband við: Jón Ívar Vilhelmsson Sími/Tel: +354 512 5429 jonivar@365.is LJÓS OG LAMPAR Sérblaðið ljós og lampar kemur út 20. september. Blaðið kemur út árlega með Fréttablaðinu. Nú fjalla blaðamenn um lýsingu bæði á heimilum og á vinnustaðnum. Elín Albertsdóttir elin@365.is námskeiðshalds og það finnst mér meiri háttar,“ segir Halldór. Hann gekk lengi með þá hug- mynd að vera með súkkulaðivagn á hjólum. „Ég lét þennan draum rætast, ekki síst vegna þess að mig langaði til að fá erlenda ferðamenn á námskeið hjá mér. Það hefur gengið eftir þótt Íslendingar séu fjölmennari. Það hafa samt komið um 200 útlendingar á námskeið hjá mér. Matarbílar hafa verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum, af hverju ekki súkkulaðibíll? spyr Halldór. „Ég lét sérhanna fyrir mig konfektmót með merki Íslands en ég vildi skapa mér ákveðna sér- stöðu,“ segir Halldór. Súkkulaðibíll- inn fer fljótlega á Skólavörðuholtið þar sem hann verður í vetur. Halldór getur tekið 12 til 13 manns á hvert námskeið. Með honum í vetur verður nýút- skrifaður konditor, Hrafnhildur Anna. Hann segist vera með eigin útfærslu á því að tempra súkkulaði sem er bæði einföld og þægileg. „Ég hannaði þetta fyrir leikmenn svo allir geta gert þetta,“ segir Hall- dór sem hvetur konur til að fara í konditornám. „Það þarf að fjölga í þessari grein,“ segir Halldór sem á von á að mikið verði að gera í súkkulaðinu fyrir jólin. Sjá má myndband af því hvernig hann temprar súkkulaðið á Facebook-síðunni Konfektnám- skeið Halldórs. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . S E p T E M B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 1 8 -0 9 -2 0 1 7 0 5 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D C 1 -4 0 4 0 1 D C 1 -3 F 0 4 1 D C 1 -3 D C 8 1 D C 1 -3 C 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.