Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 40
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurbjörg Hlöðversdóttir
frá Djúpavogi,
Þingvallastræti 34, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
í dag, mánudaginn 18. september, kl. 13.30.
Jón Hlöðver Áskelsson Sæbjörg Jónsdóttir
Freyr Áskelsson Friðbjörg K. Hallgrímsdóttir
Rósa Áskelsdóttir Hogne Steinbakk
Aðalbjörg Áskelsdóttir Gísli Már Ólafsson
Hörður Áskelsson Inga Rós Ingólfsdóttir
Gunnhildur Áskelsdóttir Knut Jarbo
Lúðvík Áskelsson Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir
tuttugu barnabörn og þrjátíu og átta barnabarnabörn.
Á níutíu ára afmælisdegi Viðskiptaráðs Íslands fyrir tíu árum, voru kynntar nýjar fjár-mögnunarleiðir fyrir Háskólans í Reykjavík.
Svafa Grönfeldt sagði í ræðu sinni á
fundinum að Róbert Wessmann, for-
stjóri Actavis, muni leggja fram 1.000
milljónir króna sem hlutafé og framlag
í Þróunarsjóð HR. Var talað um að útrás
Íslendinga á sviði menntunar væri núna
hafin.
Svo kom hrunið og þremur árum
síðar bólaði ekkert á seinni hluta
greiðslunnar. Hafði Róbert látið 500
milljónir skólanum í té en enn vantaði
hinar 500 milljónirnar. Háskólinn til-
kynnti, þegar milljarðurinn átti að renna
í hlað, að leiðin væri ný af nálinni til að
tryggja skólanum sess á meðal fram-
sæknustu háskóla Evrópu. Þær miðuðu
meðal annars að því að bjóða einstakl-
ingum og fyrirtækjum að koma
með beinum hætti að uppbygg-
ingu skólans. Gert væri ráð fyrir
að þetta skilaði háskólanum
allt að 2.000 milljónum króna.
Framlag Róberts var því helm-
ingurinn.
Svafa sagðist í fréttinni
vonast til þess að Róbert væri
sá fyrsti til að slá tóninn og batt
miklar vonir við að fleiri
aðilar viðskiptalífsins,
hvort sem það
væru einstakl-
ingar eða fyrir-
tæki, sæju sér
hag í því að
koma með
þeim í það
verkefni að
gera HR að
l e i ð a n d i
a l þ j ó ð -
l e g u m
h á s k ó l a
og braut-
r y ð ja n d i
afli í rann-
s ó k n a r -
starfi og
nýsköpun
í kennslu
o g ú t r á s
Íslendinga á
sviði mennt-
unar.
„ H R e r í
rauninni skóli
atvinnulífsins. Aðildarfélagar
í ýmsum samtökum atvinnu-
lífsins hafa verið okkur mjög
hliðhollir í gegnum tíðina.
Þetta er bara enn ein leið sem
við erum að fara til að fá þá til
stuðnings við okkur og þeir fá
auðvitað að njóta ávinningsins,“
sagði Svafa við Fréttablaðið fyrir
áratug. benediktboas@365.is
Áratugur frá
milljarðinum
Fyrir áratug birtist frétt í Fréttablaðinu þar sem tilkynnt
var um að Róbert Wessmann, sem þá var forstjóri Actavis,
myndi leggja milljarð í hlutafé og framlag
í Þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík.
Róbert
Wessman
athafna-
maður
1815 - Vínarfundurinn settur í Vínarborg, þar
sem ráðamenn í Evrópu freistuðu þess að koma
á stöðugleika í álfunni eftir frönsku blyltinguna
og Napóleonsstyrjaldirnar.
1851 - Bandaríska fréttablaðið The New York
Times kemur út í fyrsta skipti.
1885 - Landsbanki Íslands, elsti banki landsins,
er stofnaður. Fór í þrot í október 2008.
1919 - Holland varð með fyrstu ríkjum í Evrópu
til að gefa konum kosningarétt.
1946 - Lögþing Færeyja lýsir yfir sjálfstæði
eyjanna í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu. 50,74%
greiddu atkvæði með sjálfstæði.
1954 - Einar Már Guðmundsson, rithöfundur og
skáld, fæðist í Reykjavík. Hann hlaut Bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna
Englar alheimsins árið 1995.
1961 - Dag Hammarskjöld, annar aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna og handhafi friðarverðlauna
Nóbels, deyr. Hammarskjöld var á leið til friðar-
viðræðna þegar flugvél hans hrapaði.
Merkisatburðir
Um það leyti sem framkvæmdir hófust við Kröfluvirkjun um mitt ár 1975 varð mikil aukning
í skjálftavirkni á Kröflusvæðinu. Krafla
er megineldstöð við Mývatn og er virk-
asta eldstöðvakerfið á Norðurlandi.
Skjálftahrinan náði hámarki þann 20.
desember árið 1975 þegar eldgos hófst
í Leirhnjúk. Þetta var lítið og skamm-
vinnt eldgos en um leið upphafið að
meiriháttar jarðhræringum sem áttu
eftir að vara í níu ár.
Í kjölfar gossins í Leirhjúki streymdi
kvika inn í kvikuhólf undir Kröfluöskju.
Þrýstingurinn jókst og kvikuhlaup varð í
sprungum sem opnuðust. Á tæpum ára-
tug gerðist þetta 24 sinnum en hraun
rann ofanjarðar níu sinnum. Hraunið
sem kom upp í þessum gosum þekur 33
ferkílómetra.
Í Kröfluefldum gafst vísindamönnum
einstakt tækifæri til að rannsaka eld-
gos og landrek, en menn höfðu aldrei
áður upplifað landrekshrinu á Norður-
Atlantshafshryggnum. Kröflueldar voru
hliðarafurð hinna miklu hamfara sem
áttu sér stað á gliðnunarbeltinu.
Það var síðan þann 18. september árið
1984 sem Kröflueldum lauk.
Þ EttA G E R ð i St 1 9 8 4
Kröflueldum lýkur
Greint var frá málinu fyrir 10 árum
Saman á mynd
Á þessum degi fyrir 40 árum tók geimfarið Voyager 1 fyrstu ljósmyndina þar sem jörðin og tunglið
sjást bæði saman á mynd. Síðan þá hefur það ferðast lengst allra geimfara og yfirgefur brátt sólkerfið.
1 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
C
1
-3
6
6
0
1
D
C
1
-3
5
2
4
1
D
C
1
-3
3
E
8
1
D
C
1
-3
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K