Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 12
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
Fótbolti Það er vel við hæfi að Vals-
menn hafi tryggt sér Íslandsmeist-
aratitilinn sinn á heimavígstöðv-
unum á Hlíðarenda í gærkvöldi, á
vellinum þar sem liðið hefur unnið
átta af tíu leikjum sínum í sumar og
aldrei tapað.
Valsmenn sýndu styrk sinn á móti
Fjölnismönnum í gær, gáfu lítil
sem engin færi á sér fram eftir leik
og skoruðu fjögur góð mörk. Smá
kæruleysi í lok leiksins kom ekki
að sök en Fjölnismenn minnkuðu
muninn þegar sigurhátíð heima-
manna var í raun hafin.
Valsliðið hefur nú níu stiga for-
ystu á Stjörnuna og tíu stiga forskot
á FH. FH á leik inni á bæði liðin en
getur ekki lengur náð Valsliðinu að
stigum. Það hefur lengi stefnt í það
að Valsmenn væru að fara vinna
þennan titil og hann er nú í höfn
þegar enn eru eftir tvær vikur af
Íslandsmótinu.
Mörkin mikilvægu í gær skoruðu
þeir Guðjón Pétur Lýðsson, Bjarni
Ólafur Eiríksson, Sigurður Egill
Lárusson og Einar Karl Ingvarsson
en Ólafur Jóhannesson gat leyft
sér að geyma markaskorarann Pat-
Hátíðarveisla á Hlíðarenda
Valsmenn tryggðu sér sinn 21. Íslandsmeistaratitil í sögunni þegar þeir unnu Fjölni 4-1 í gærkvöldi. Hvorki
FH né Stjarnan geta unnið upp forystu Vals á toppi Pepsi-deildarinnar á síðustu tveimur vikum mótsins.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Vals, fagnar hér titlinum í leikslok á Hlíðarenda í gær ásamt Sigurði Agli Lárussyni. FréttAbLAðið/EyþÓr
rick Pedersen á bekknum. Guðjón
Pétur skoraði fyrsta markið á fjórðu
mínútu og það var því strax ljóst í
upphafi leiksins að þetta ætlaði
að vera sannkölluð hátíðarveisla á
Hlíðarenda.
Ólafur Jóhannesson hefur unnið
titil á öllum þremur tímabilum
sínum með Valsliðið en liðið var
búið að vera bikarmeistari tvö
síðustu ár. Nú tóku Valsmenn hins
vegar þann stóra.
talaðu við þá sem unnu mótið
„Tilfinningin er geggjuð og þetta
er bara magnað. Við spiluðum frá-
bæran leik í kvöld og ég held bara
að við höfum verið bestir,“ sagði
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Valsl-
iðsins, sigurreifur í leikslok í viðtali
í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport
í gærkvöldi. Hann hafði hins vegar
ekki mikinn áhuga á að vera í viðtali
hjá Stefáni Árna Pálssyni.
„Nú áttu að tala við strákana. Nú
er ég búinn að segja nóg en hérna
eru þeir sem unnu mótið. Talaðu
við þá,“ sagði Ólafur og benti á leik-
mennina sína fagna titlinum. Ólafur
er engum öðrum líkur og þessi sena
var enn ein sönnun þess.
Fjórði Íslandsmeistaratitill Ólafs
Þetta var í fjórða sinn sem Ólafur
Jóhannesson gerir lið að Íslands-
meisturum en FH vann titilinn þrjú
ár í röð undir hans stjórn frá 2004
til 2006. Síðasti Íslandsmeistara-
titillinn hans kom því fyrir ellefu
árum síðan.
Það er óhætt að segja að nokkur
ár hafi líka liðið síðan Valsmenn
voru í sömu stöðu og í gærkvöldi.
Tíu ár voru liðin síðan Valsmenn
urðu síðast Íslandsmeistarar í fót-
bolta (2007), það voru þrjátíu ár
liðin síðan Ólafur Jóhannesson
varð síðast Íslandsmeistari með Val
(sem leikmaður 1987) og 32 ár liðin
síðan Valsmönnum tókst að tryggja
sér síðast Íslandsmeistaratitilinn
á félagssvæði sínu á Hlíðarenda
(1985). Þegar Valsmenn unnu titil-
inn 1985 þá voru þeir fyrstir Reykja-
víkurfélaga til að tryggja titilinn á
sínu félagssvæði.
þessi er sætari
Bjarni Ólafur Eiríksson var líka
með Valsliðinu þegar félagið varð
Íslandsmeistari fyrir tíu árum.
„Persónulega þá er þessi sætari. Ég
ætla ekki að útskýra af hverju, hann
er það bara. Þetta er frábært,“ sagði
Bjarni Ólafur kátur í viðtali í útsend-
ingu Stöðvar 2 Sport. Hann er mjög
sáttur með Valsliðið í sumar.
„Þetta er besta lið sem ég hef verið
í. Við erum búnir að vera að byggja
þetta upp síðustu ár og erum að
uppskera í sumar. Það er ekki hægt
að benda á einn eða tvo hluti því
það eru svo ótrúlega margir hlutir
sem gera það að verkum að við erum
að vinna mótið. Þegar allir þessir
hlutir fara saman þá gerast góðir
hlutir,“ sagði Bjarni Ólafur.
ooj@frettabladid.is
Pepsi-deild karla
Úrslit 20. umferðar 2017
FH - ÍbV 2-1
0-1 Shahab Zahedi (47.), 1-1 Bergsveinn
Ólafsson (56.), 2-1 Steven Lennon (90.+4)
Kr - KA 0-0
ÍA - Stjarnan 2-2
1-0 Arnar Már Guðjónsson (1.), 1-1 Guðjón
Baldvinsson (10.), 1-2 Hólmbert Aron Frið-
jónsson (59.), 2-2 Steinar Þorsteinsson (88.).
Víkingur Ó. - Víkingur r. Fr.
Leiknum var frestað í gær vegna brjálaðs
veðurs í Ólafsvík en fer fram kl. 16.45 í dag.
Grindavík - breiðablik 4-3
0-1 Aron Bjarnason (4.), 1-1 Gunnar Þor-
steinss. (15.), 2-1 Andri Rúnar Bjarnas.(30.),
3-1 Andri Rúnar (43.), 3-2 Hrvoje Tokic, víti
(52.), 4-2 Sj.m. (88.), 4-3 Gísli Eyjólfss. (90.)
Andri rúnar bjarnason er nú búinn að skora
18 mörk í deildinni og vantar nú bara eitt
mark til að jafna markametið í efstu deild.
Valur - Fjölnir 4-1
1-0 Guðjón Pétur Lýðsson (4.), 2-0 Bjarni
Ólafur Eiríksson (45.), 3-0 Sigurður Egill
Lárusson (49.), 4-0 Einar Karl Ingvarsson
(82.), 4-1 Marcus Solberg (85.).
Staðan
FéLAG L U J t MÖrK S
Valur 20 13 5 2 37 - 16 44
Stjarnan 20 9 8 3 44 - 23 35
FH 19 9 7 3 31 - 21 34
Kr 20 8 6 6 29 - 26 30
Grindavík 20 8 4 8 28 - 36 28
KA 20 6 8 6 35 - 27 26
breiðablik 20 7 3 10 30 - 33 24
Víkingur r. 19 6 5 8 26 - 31 23
ÍbV 20 6 4 10 27 - 35 22
Fjölnir 19 5 6 8 27 - 35 21
Víkingur Ó. 19 6 2 11 22 - 40 20
ÍA 20 3 6 11 28 - 41 15
FRÍTT INN ÞEGaR STELPuRNaR
oKKaR SPILa Í DaLNuM Í DaG
Kvennalandsliðið í
fótbolta hefur í dag
keppni í undan-
keppni HM 2019
þegar Færeyingar
koma í heimsókn
á Laugardalsvöllinn.
KSÍ ætlar að
bjóða á leikinn
og með því
þakka
fyrir
þann
frábæra
stuðning sem
stelpurnar fengu
á EM í Hollandi í
sumar. Leikurinn
hefst klukkan
18.15 en hann
er einnig sýndur
beint á Stöð 2
Sport 2.
FyLKIR uPP Í PEPSI-DEILDINa
Fylkismenn tryggðu sér endanlega
sæti í Pepsi-deild karla með 6-0
stórsigri á Haukum í næstsíðustu
umferð Inkasso-deildarinnar um
helgina. Keflavík, sem var komið
upp, vann 1-0 sigur á Fram á sama
tíma og hefur því bara eins stigs
forskot á Fylki fyrir lokaumferðina
þar sem barist verður um sigurinn
í Inkasso-deildinni í sumar.
MaGNað – TöPuðu EN FÓRu
SaMT uPP Í INKaSSo
Magni spilar í Inkasso-deildinni
næsta sumar en liðið fer upp úr
2. deildinni ásamt deildarmeist-
urum Njarðvíkur. Njarðvík tryggði
sér sigurinn í deildinni með 3-1
sigri á KV en Magnamenn komust
upp þrátt fyrir 3-1 tap á heimavelli
á móti Vestra. Víðismenn töpuðu
5-1 fyrir aftureldingu á sama tíma
og þar með á Grenivík lið í
B-deildinni í fyrsta sinn í 38 ár.
Þetta er besta lið
sem ég hef verið í.
Við erum búnir að vera að
byggja þetta upp síðustu ár
og erum að uppskera í
sumar.
Bjarni Ólafur Eiríksson, leikmaður Vals
1 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r12 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
SPort
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
C
1
-1
D
B
0
1
D
C
1
-1
C
7
4
1
D
C
1
-1
B
3
8
1
D
C
1
-1
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K