Fréttablaðið - 18.09.2017, Qupperneq 16
Halldór Kristján pantaði súkkulaðibílinn frá Tékk-landi en hann kom á götuna
í Reykjavík í júní síðastliðnum.
Bíllinn, sem er sérhannaður að ósk
Halldórs, hefur vakið mikla athygli
og hefur einn stærsti ferðavefur
heims, Lonely Planet, fjallað um
hann. Halldór telur að þetta sé eini
bíll sinnar tegundar í heiminum.
Núna er bíllinn staðsettur við
Fjörð í Hafnarfirði og þar verður
Halldór með námskeið á miðviku-
dag um leið og hann heldur upp á
20 ára afmælið.
„Ég byrjaði á þessu árið 1997
en þá var ég nýkominn heim frá
Danmörku þar sem ég var í námi
hjá hinum fræga Jørgen Søgåaad
Jensen, kökugerðarmeistara í
Kransekagehuset. Hjá honum hafa
margir þekktir verið í námi, meðal
annars Mette Blomsterberg, sem
hefur verið með þættina Det søde
liv sem sýndir hafa verið hér á
landi. Við erum tveir Íslendingar
sem höfum lært hjá Jørgen sem
er algjör snillingur. Mér fannst ég
ekki fá nægilegan lærdóm í köku-
gerð í bakaranáminu hér heima
og fór því í framhaldsnámið,“ segir
Halldór.
Þótt hann sé lærður konditor
starfar hann ekki í bakaríi heldur
á Fasteignasölu Reykjavíkur. Hins
vegar hefur hann haldið námskeið
í kransaköku-, konfekt- og páska-
eggjagerð. „Ég er í löggildingar-
námi í fasteignasölu en það starf
á vel við mig meðfram námskeið-
unum. Í fasteignasölu kynnist
maður fólki á persónulegan hátt og
þetta er mjög gefandi og skemmti-
legt starf. Ég var bakari í eitt ár eftir
að ég kom úr námi en mér fannst
starfið ekki henta mér. Mér bauðst
að opna kransakökuhús í Smára-
lindinni stuttu eftir opnun en líf
mitt þróaðist á annan veg. Móðir
mín segir að það sem maður læri
verði ekki frá manni tekið. Mitt
sex ára nám mitt nýtist mér til
Með námskeið í
súkkulaðivagni
Halldór Kristján Sigurðsson hefur haldið vinsæl konfekt-
gerðarnámskeið í tuttugu ár. Núna heldur hann námskeið
í sérhönnuðum súkkulaðivagni.
Halldór Kristján Sigurðsson, bakari og konditormeistari, stendur hér við
súkkulaðibílinn. MYND/EYÞÓR
Súkkulaðivagninn er sá eini sinnar tegundar í heiminum og var sérhannaður í
Tékklandi fyrir Halldór. MYND/EYÞÓR
Fallegir súkkulaðimolar með Íslands-merki.
Áhugasamir hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími/Tel: +354 512 5429
jonivar@365.is
LJÓS OG LAMPAR
Sérblaðið ljós og lampar kemur út 20. september.
Blaðið kemur út árlega með Fréttablaðinu.
Nú fjalla blaðamenn um lýsingu bæði á heimilum og á vinnustaðnum.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
námskeiðshalds og það finnst mér
meiri háttar,“ segir Halldór.
Hann gekk lengi með þá hug-
mynd að vera með súkkulaðivagn
á hjólum. „Ég lét þennan draum
rætast, ekki síst vegna þess að mig
langaði til að fá erlenda ferðamenn
á námskeið hjá mér. Það hefur
gengið eftir þótt Íslendingar séu
fjölmennari. Það hafa samt komið
um 200 útlendingar á námskeið
hjá mér. Matarbílar hafa verið að
ryðja sér til rúms á undanförnum
árum, af hverju ekki súkkulaðibíll?
spyr Halldór. „Ég lét sérhanna fyrir
mig konfektmót með merki Íslands
en ég vildi skapa mér ákveðna sér-
stöðu,“ segir Halldór. Súkkulaðibíll-
inn fer fljótlega á Skólavörðuholtið
þar sem hann verður í vetur.
Halldór getur tekið 12 til 13
manns á hvert námskeið. Með
honum í vetur verður nýút-
skrifaður konditor, Hrafnhildur
Anna. Hann segist vera með eigin
útfærslu á því að tempra súkkulaði
sem er bæði einföld og þægileg. „Ég
hannaði þetta fyrir leikmenn svo
allir geta gert þetta,“ segir Hall-
dór sem hvetur konur til að fara í
konditornám. „Það þarf að fjölga
í þessari grein,“ segir Halldór sem
á von á að mikið verði að gera í
súkkulaðinu fyrir jólin.
Sjá má myndband af því hvernig
hann temprar súkkulaðið á
Facebook-síðunni Konfektnám-
skeið Halldórs.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . S E p T E M B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
C
1
-4
0
4
0
1
D
C
1
-3
F
0
4
1
D
C
1
-3
D
C
8
1
D
C
1
-3
C
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K