Fréttablaðið - 18.09.2017, Side 11
Superb er stærri, rúmbetri og útbúinn þægindamöguleikum sem gera aksturinn draumi líkastan. ŠKODA Superb kemur með fimm
ára ábyrgð og er nú tilkomumeiri og hlaðinn meiri tilfinningu en nokkru sinni fyrr. Komdu í reynsluakstur og gefðu gleðinni lausan tauminn.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
TILFINNINGIN HEFUR
SJALDAN VERIÐ
TILKOMUMEIRI
ŠKODA SUPERB. STÆRRI, RÚMBETRI OG ÞÆGILEGRI.
Verð frá aðeins 4.440.000 kr.
Við skulum ekki hafa hátt,
hér er margt að ugga.
Eg hef heyrt í alla nátt
andardrátt á glugga.
Þetta er vísa frá 16. öld um nátt-tröll á sveimi, sögð eftir Þórð Magnússon á Strjúgi en er í
rauninni úr þjóðardjúpinu enda eru
ljóðin sálarpækill sem geymir til-
finningar fólks um aldir. Í vísunni er
ótti aldanna. Þar endurspeglast hug-
arfar hræddrar og hrelldrar þjóðar,
fólks sem er varnarlaust gagnvart
ofbeldi. Bælum okkur, segir þessi
vísa: felum okkur, sussu-suss, látum
fara lítið fyrir okkur og óvætturinn
fyrir utan sér okkur þá kannski ekki.
Byltingin
Þetta hefur valdalausu alþýðufólki
verið innrætt hér öld af öld, konum
og börnum – að halda niðri sér and-
anum þar til hættan er liðin hjá. Og
að sjálfur geti maður ekkert gert
til að verjast ógnvaldinum, best að
bíða bara og láta ekki taka eftir sér.
Eina vörnin að vera ósýnilegur.
Þar til nú. Hægt og bítandi höfum
við upplifað byltingu á undanförn-
um árum – fólk kemur fram opin-
berlega og segir frá ofbeldi sem það
hefur orðið fyrir, í æsku eða á full-
orðinsárum. Í stað hvatningar til að
fela sig er ljósinu nú beint að óbóta-
mönnunum. Níðingar og nauðg-
arar standa allt í einu baðaðir ljósi
og skömm og ekki einu sinni sjálft
Flokksvaldið fær lengur verndað þá
fyrir afleiðingum gjörða sinna.
Og skyndilega er kynferðis ofbeldi
ekki lengur eins og hver önnur
hvimleið staðreynd lífsins sem við
verðum að láta okkur hafa – heldur
ólíðandi glæpur. Allt í einu eru
kynferðisglæpamenn ekki lengur
ólánsgrey sem hafa lent í þessari
ógæfu – heldur skal kynferðisglæpa-
maðurinn hvers manns níðingur
heita, eins og það er orðað í gömlum
textum. Bókstaflega.
Hægt og bítandi hefur þessi bylt-
ing breiðst út um samfélagið og nú
hefur það síðast gerst að hún hefur
velt ríkisstjórn úr sessi; og fengið sín
kjörorð eins og allar byltingar þurfa
að hafa: Höfum hátt.
Í fararbroddi hefur staðið fjöl-
skylda Nínu Rúnar Bergsdóttur;
systur hennar og foreldrar, og þau
hafa spurt þessarar spurningar sem
er jafn sjálfsögð og hún er sjaldgæf:
Af hverju?
Af hverju fær barnaníðingur
endurnýjuð lögmannsréttindi? Af
hverju fær barnaníðingur uppreist
æru? Af því að það er alltaf gert?
Rútína? Bara formsatriði? Af hverju?
Og af hverju skrifa „valinkunnir
menn“ umsagnir um að barna-
níðingar eigi skilið að fá „uppreist
æru“? Af hverju eru „valinkunnir
menn“ í felum – falinkunnir? Og
hvað þýðir þetta fornfálega orðalag
eiginlega, „uppreist æru“? Sæmd?
Falinkunnir menn
Maður sér ýmsa klóra sér í hausnum
yfir stjórnarslitunum. Ýmsir tala
eins og atburðarásin sé óskiljanleg,
snúist um smámál. Þeir virðast enn
ekki skilja hversu stórt þetta er.
Þetta átti sér líka aðdraganda.
Áður hafði Sigríður Andersen
reynt mjög á þolrifin hjá samstarfs-
flokkum sínum með verklagi sínu
við skipan dómara við Landsrétt
og rétt fyrir stjórnarslitin hafði hún
gengið fram í því að vísa úr landi
tveimur barnungum stúlkum, svo
að almenna hneykslun og undrun
vakti. Það eru takmörk fyrir því
hvað hægt er að umbera mikið hjá
fólki sem maður er að reyna að
vinna með. Og þolinmæðina þraut
þegar kom í ljós að Sigríður hafði
í júlímánuði upplýst Bjarna Bene-
diktsson um það að faðir hans skrif-
aði meðmæli með því að dæmdur
barnaníðingur fengi „uppreist æru“,
en Sjálfstæðismenn höfðu að öðru
leyti sveipað þessi meðmæli óskilj-
anlegri leynd, í orði kveðnu til að
vernda brotaþola níðinganna, jafn
glórulaust og það hljómar, en í raun
vildu þeir fela nöfnin. Hvers vegna í
ósköpunum ætti að ríkja leynd um
það, þegar valinkunnir menn skrifa
meðmæli með því að glæpamenn
skuli fá endurheimt gott mannorð?
Sé maður að leggja nafn sitt við eitt-
hvað – þá getur maður ekki látið
það nafn vera falið.
Málið snýst um vandaða og opna
stjórnsýslu sem starfar á gagnsæjan
hátt í þjónustu almennings en ekki
til að vernda útvalda og veltengda
menn. Meðal þess sem heyrðist úr
Dómsmálaráðuneyti sem rök fyrir
nafnleynd mannorðsábekinganna
var „áhugi fjölmiðla“. En sýni fjöl-
miðla áhuga á að vita eitthvað á
leyndin ekki að vera sjálfkrafa við-
bragð heldur einmitt löngunin til
að upplýsa. Það er vitneskjan og
upplýsingin sem hjálpar okkur til
að bæta samfélagið. Hér er margt
að ugga, en ekki upplýsingarnar,
ekki dagsljósið – nema maður sé
nátttröll.
Niðurfærsla æru
Allt í einu eru kynferðis-
glæpamenn ekki lengur
ólánsgrey sem hafa lent í
þessari ógæfu – heldur skal
kynferðisglæpamaðurinn
hvers manns níðingur
heita, eins og það er orðað í
gömlum textum.
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 1 8 . S e p T e M B e R 2 0 1 7
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
C
1
-2
2
A
0
1
D
C
1
-2
1
6
4
1
D
C
1
-2
0
2
8
1
D
C
1
-1
E
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K