Fréttablaðið - 18.09.2017, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
DORMA KYNNIR
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
90 x 200 cm 74.990 kr.
120 x 200 cm 89.990 kr.
140 x 200 cm 99.900 kr.
160 x 200 cm 114.990 kr.
180 x 200 cm 129.900 kr.
Simba dýnurnar eru fáan
legar í eftirtöldum stærðum
Komdu og
kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simbasleep.is
Ku n d a l i n i j ó g a hefur hjálpað mér mjög mikið. Sjálf hef ég verið að glíma við kvíða, streitu og stress,“
segir Lára Rúnarsdóttir en hún
ætlar að halda kvíðastjórn-
unarnámskeið fyrir unglinga frá
13-16 ára með kundalini jóga.
Námskeiðið byrjar á morgun fyrir
stelpur og er sex skipti. Strákanám-
skeiðið hefst tveimur dögum síðar.
Lára segir að börn og unglingar
þurfi að læra að losna við saman-
burðinn sem samfélagsmiðla-
stjörnur séu að búa til með fölskum
veruleika. Þar hentar jóga vel.
„Ég held að það sem veldur kvíða
og streitu hjá ungu fólki í dag sé
samanburðurinn við einhvern sem
er í hálfgerðum sýndarveruleika.
Þar kemur þessi líkams- og útlits-
dýrkun, samanburðurinn við næsta
mann og allar öfgarnar sem eru á
samfélagsmiðlum. Börn og ungling-
ar alast upp með þessu og þá þurfa
þau að læra tækni til að jarðtengja
sig og leita inn á við.“
Töluverð umræða hefur verið
um myndvinnslu sem íslenskir
áhrifavaldar hafa notað á myndir
af sér. Augu eru gerð óraunveruleg,
magavöðvar stækkaðir, kílóum
fækkað og svona mætti lengi telja.
Photoshop forritið getur látið jafn-
vel skjannahvíta konu líta út eins
og hún sé nýkominn frá Balí. Tak-
mörkin eru engin.
„Ég er að kenna krökkunum í
raun að heila sig og reyna að gefa
þeim tæki til að æfa sig, átta sig á
hvað og hver þau eru. Ég held að
samanburðurinn sé að ganga frá
okkur. Við erum að bera okkur
saman við Photoshop sem er erfitt.
Í kundalini jóga er unnið með lokuð
augu og leitað inn á við. Tengjast lík-
ama sínum og sýna styrkleika. Með
lokuð augun losnar fólk við saman-
burðinn á jógadýnunni og vinnur í
kröftugri öndun um leið.“
benediktboas@365.is
Erfitt að bera sig
saman við Photoshop
Lára Rúnarsdóttir heldur námskeið í kvíðastjórnun fyrir unglinga
með kundalini jóga. Íslenskar samfélagsmiðlastjörnur, sem nota
Photoshop, sýna falska mynd. Samanburðurinn gangi frá mörgum.
36,2 %
á aLdRinum 18-24 áRa mátu
andLEga hEiLsu sína annað
hvoRt sæmiLEga Eða LéLEga.
áRið 2007 voRu það 16,8
PRósEnt En 22,3 PRósEnt
áRið 2012.
Notkun þunglyndislyfja hefur
aukist verulega meðal stúlkna á
aldrinum fimmtán til nítján ára og
um 45 prósent í sama aldursflokki
drengja. „Við sjáum 85 prósent
aukningu í fjölda notenda,“ hefur
Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri
lyfjamála hjá Embætti land-
læknis, bent á og frá 2012-2016
hafi orðið rúmlega 120 prósent
aukning í fjölda dagskammta.
Rúmlega 15 prósent stúlkna hér
á landi á aldrinum 15-19 ára hafa
fengið ávísað þunglyndislyfjum
árið 2016. Á sama tíma var hlut-
fallið 6,2 prósent í Svíþjóð, þrjú
prósent í Noregi og 2,7 prósent í
Danmörku. „Rannsóknir sýna að
kvíði meðal barna og unglinga
eykst milli ára. Börn og unglingar
búa við stöðugt áreiti, kröfurnar
um að stunda nám af kappi auk
tómstunda eru miklar og nærveru
þeirra er krafist á samfélags-
miðlum flestum stundum. Því er
nauðsynlegt að búa yfir tækni til
þess að jarðtengja sig og hlúa að
huga og sál í gegnum hugleiðslu,
öndun og líkamsæfingar,“ segir
Lára.
Lára Rúnarsdóttir telur jóga framúrskarandi tæki til að átta sig á því hvað og hver maður er. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
1 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r22 l í f i ð ∙ f r É t t A b l A ð i ð
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
C
1
-3
1
7
0
1
D
C
1
-3
0
3
4
1
D
C
1
-2
E
F
8
1
D
C
1
-2
D
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K