Fréttablaðið - 04.09.2017, Side 6
Dómsmál Ekki er útilokað að ljósi
verði varpað á nýjar hliðar Guð-
mundar- og Geifinnsmáls við með-
ferð málsins í Hæstarétti. Þetta segir
Unnar Steinn Bjarndal sem Hæsti-
réttur skipaði nýverið verjanda
Sævars Ciesielskis.
Ákæruvaldið vinnur nú að sam-
antekt þeirra gagna sem verða lögð
fyrir Hæstarétt, í samráði við verj-
endur. Að því loknu verða aðilum
málsins gefnir frestir til að leggja
fram greinargerðir og tímasetning
málflutnings í Hæstarétti verður
ákveðin þegar hún liggur fyrir.
„Við erum að tala um marga mán-
uði,“ segir Davíð Þór Björgvinsson,
sérstakur saksóknari, um tímann
sem undirbúningur fyrir málflutn-
ing muni taka.
Unnar Steinn hefur fylgst með
allri umfjöllun um Geirfinnsmál í
gegnum tíðina.
„Málið er auðvitað þess eðlis að
það grípur flesta mjög sem kynna
sér það,“ segir Unnar og bætir við
að það sé vel skiljanlegt að fólk sem
kynni sér málið dragist mjög ákaft
að því. „Málið hefur mikið aðdrátt-
arafl enda mjög margslungið og
dularfullt,“ segir Unnar og bendir
á að málið hafi líka margar hliðar
sem komi þessum málarekstri ekki
beinlínis við. „En það er ekki þar
með sagt að það séu ekki hliðar á
málinu sem verða dregnar fram
undir rekstri málsins sem hafa ekki
komið fram áður.“
„Þetta er mikið magn gagna og
þýðingarmikil málskjöl hlaupa á
þúsundum blaðsíðna,“ segir Unnar
og bætir við að ekki sé útilokað
að frekari gagnaöflun fari fram af
hálfu verjenda. „Það er alveg ljóst að
margvísleg gögn geta enn ratað inn
í málið jafnvel þótt liðinn sé langur
tími og því ekki hægt að útiloka að
það verði varpað ljósi á nýjar hliðar
málsins.“
Unnar segist finna til sérstakrar
ábyrgðar sem verjandi Sævars.
„Það er erfitt að ímynda sér mörg
mál hérlendis þar sem jafnmikið
er undir fyrir réttarríkið og tiltrú
almennings á refsivörslukerfinu
og í þessu máli. Ég hef það á til-
finningunni að allir sem eiga aðild
að rekstri þessa máls finni til auk-
innar ábyrgðar vegna þess. Fyrst og
fremst fyrir sakborningana sjálfa og
aðstandendur þeirra en líka fyrir
þjóðina alla,“ segir Unnar Steinn.
Sævar lést árið 2011 án þess að sjá
árangur af áratugabaráttu sinni fyrir
endurupptöku málsins.
„Tilfinning mín fyrir hans mála-
rekstri er sú að þarna fór maður
sem barðist fyrir sakleysi sínu allt
til síðasta dags. Ég mun leggja mig
allan fram við að berjast fyrir þeim
málstað sem Sævar barðist fyrir og
margir trúðu á og það geri ég auð-
vitað líka,“ segir Unnar Steinn.
Aðspurður um hvers sé að vænta
í málarekstrinum og hvort vænta
megi einhvers konar uppgjörs máls-
ins, segir Unnar:
„Það er mikið undir í þessu máli,
enda ljóst að málið hefur legið lengi
á þjóðinni og ég trúi því að við
eigum, sem þjóðfélag í réttarríki að
læra af því sem fór úrskeiðis í máls-
meðferðinni hingað til. En fyrst
þarf auðvitað að ná fram afdráttar-
lausri niðurstöðu um sakleysi sak-
borninganna. Um það snýst mála-
reksturinn sem er fram undan.“
adalheidur@frettabladid.is
Nýjar hliðar Geirfinnsmáls hugsanlegar
Sævar Ciesielski barðist fyrir endurupptöku mála sinna þar til hann lést árið 2011. mynd/Bragi guðmundSSon
Ég hef það á tilfinn-
ingunni að allir sem
eiga aðild að rekstri þessa
máls finni til aukinnar
ábyrgðar.
Unnar Steinn
Bjarndal, verjandi
Sævars Ciesielskis
Verst vætunni
Líberísk kona sést hér á gangi um stræti miðborgar Monróvíu, höfuðborgar Líberíu. Sökum votviðris hefur hún klætt sig í ruslapoka til að varna því
að klæði hennar verði gegnsósa. Gífurleg rigning hefur verið á vesturströnd Afríku frá því í júní. Ekki liggur fyrir hve margir hafa farist í vætunni, og
afleiddum atburðum, sem herjað hafa á Gana, Níger, Síerra Leóne og önnur lönd á svæðinu, en ljóst er að þeir skipta hundruðum. FrÉTTaBLaðið/EPa
Undirbúningur fyrir
málsmeðferð í Hæsta-
rétti er í fullum gangi.
Margvísleg ný gögn geta
enn ratað inn í málið.
Mikið undir fyrir rétt-
arríkið segir verjandi
Sævars.
sJáVARÚTVEGUR Rannsóknarnefnd
samgönguslysa (RNSA) ítrekar í
nýrri skýrslu sinni að þegar verði
hafin endurskoðun á reglum um
losunar- og sjósetningarbúnað um
borð í íslenskum skipum. Þetta er í
annað sinn á þessu ári sem slík tillaga
er send Samgöngustofu í öryggissátt.
Fyrir helgi birti nefndin niður-
stöðu sína úr rannsókn á banaslysi
sem varð í maí í fyrra þegar Brekk-
unesi ÍS 110 hvolfdi á Vestfjarðar-
miðum. Færið var vont og hafði
skipstjóri, og jafnframt eini skipverji,
strandveiðibátsins hætt sér á svæði
sem aðrir bátar vildu eigi fara á. Talið
er að alda hafi komið á bátinn en
áverkar á hinum látna og ummerki
á bátnum benda til þess. Enginn var
til frásagnar um atvik.
Sjálfvirkur sleppibúnaður Brekk-
unessins virkaði ekki en hann var á
um 2,5 metra dýpi meðan báturinn
var á hvolfi. Við prófun virkaði hann
á 3,5 metra dýpi.
Sjálfvirkur sleppibúnaður virkaði
heldur ekki sem skyldi þegar Jóni
Hákoni hvolfdi á svipuðum stað í
júlí 2015. Einn fórst í því slysi og þrír
komust lífs af við illan leik. RNSA
ítrekar eina tillögu sína sem gerð
var í niðurlagi skýrslu um atvikið en
henni var skilað í febrúar.
„Nefndin telur óásættanlegt að
gúmmíbjörgunarbátar losni ekki
frá skipum ef þeim hvolfir,“ segir
í skýrslunni. „[Þ]egar verði hafin
endurskoðun á reglum um losunar-
og sjósetningarbúnað um borð í
íslenskum skipum og heildarúttekt
á þeim búnaði sem er í notkun í dag.“
– jóe
Rannsaki
sleppibúnað
Sjálfvirkur sleppibún-
aður fyrir björgunarbát
virkaði ekki er skipstjóri
handfærabátsins Brekkuness
ÍS 110 fórst á Vestfjarðar-
miðum í maí í fyrra.
4 . s E p T E m b E R 2 0 1 7 m á N U D A G U R6 f R é T T i R ∙ f R é T T A b l A ð i ð
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-A
C
6
0
1
D
A
6
-A
B
2
4
1
D
A
6
-A
9
E
8
1
D
A
6
-A
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K