Fréttablaðið - 04.09.2017, Síða 8
Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is
Rekstrarland er hluti af Olís
TILBOÐ Á GRILLUM
Char-Broil aukahlutir á 40% afslætti.
25-40%
AFSLÁTTUR
1.–15.
SEPTEMBER
40% CHAR-BROIL 220BGrillflötur 416x435 mm
Tveir brennarar
35.940 KR.
VERÐ ÁÐUR 59.900 KR.
CCG
As a christian church known by many from our internet page
ccg.org, we know there is conciderable interest for our litter-
ature in Iceland. Because of this we would like to conduct a
seminar for interested persons this autumn.
If anyone would like to meet with us, please contact us at
secretary@ccg.org
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
Ölfus Bæjaryfirvöld í Ölfusi geta
ekki svarað hver kostnaður sveitar-
félagsins verður vegna framkvæmda
við nýtt iðnaðarhverfi þangað sem
flytja á fiskþurrkun Lýsis í Þor-
lákshöfn. Ljóst er að kostnaðurinn
verður í upphafi nokkru hærri en
innheimt lóðargjöld þar sem ekkert
annað fyrirtæki hefur sóst eftir lóð.
Ölfus og Lýsi sömdu í október í
fyrra um að fyrirtækið þyrfti innan
fimm mánaða að taka ákvörðun um
hvort það myndi byggja nýja fisk-
þurrkunarverksmiðju á iðnaðar-
svæðinu vestan Þorlákshafnar eða
loka eldri verksmiðju sinni í bænum
fyrir júní 2018. Íbúar í Þorlákshöfn
höfðu þá um langt skeið kvartað
undan ólykt af starfseminni en Lýsi
hefur leyfi til að framleiða 40 tonn af
hráefni á sólarhring í bænum.
Mun sveitarfélagið sjá um gatna-
gerð að lóð Lýsis og stofnlögn frá-
veitu, og fyrirtækið ekki þurfa að
greiða umfram 20 milljónir króna í
gatnagerðargjöld. Einnig á að leggja
veitur fyrir heitt vatn, kalt vatn, frá-
veitu út í sjó, rafmagn og ljósleiðara
og er nú unnið að hönnun og kostn-
aðargreiningu. Þær framkvæmdir
munu ekki einungis nýtast nýja iðn-
aðarsvæðinu heldur einnig bjóða
upp á möguleika á hringtengingu á
heitu og köldu vatni í Þorlákshöfn.
„Það liggur ekki endanlega fyrir
hver kostnaður verður við stofn-
framkvæmdir. Veitulagnaleiðin er
um fjórir kílómetrar í heild og koma
veituaðilar á mismunandi stöðum
inn á hana. Stofnlögn fráveitu er
um 500 metrar. Við gerum okkur
grein fyrir því að framkvæmda-
kostnaður í upphafi verður nokkru
hærri en gjaldtakan af Lýsi sem er
eðlilegt þegar nýtt hverfi er skipu-
lagt og tekið í gagnið. Væntum þess
að samfélagsáhrifin verði mikil og
jákvæð og við munum með mark-
vissum hætti auglýsa lóðir á svæð-
inu á næstunni,“ segir Gunnsteinn
R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, í
skriflegu svari til Fréttablaðsins.
„Þó svo ekki sé búið að úthluta
þarna fleiri lóðum finnum við fyrir
áhuga á svæðinu. Vegna þessa er
ekki hægt að segja að sveitarfélagið
verði sérstaklega að ráðast í kostnað
vegna uppbyggingar Lýsis í hverfinu
því allt sem framkvæmt er af hálfu
sveitarfélagsins mun nýtast við
áframhaldandi uppbyggingu,“ segir
Gunnsteinn. Bæjarstjórinn bætir við
að í fyrsta áfanga framkvæmdanna
verði lagður 120 metra vegur inn í
hverfið, að lóð Lýsis, sem verði svo
lengdur í áföngum eftir því sem iðn-
aðarhverfið byggist upp.
Guðmundur Oddgeirsson, bæjar-
fulltrúi Ö-listans, sat hjá er sam-
komulagið við Lýsi var samþykkt.
„Ég er enn á því að Lýsi eigi að loka
fiskþurrkuninni þegar í stað enda er
umhverfissóðaskapurinn sem við-
gengst með því að dæla ólofti yfir
heimili íbúa og gesti Þorlákshafnar
með öllu ólíðandi. [...] Ekki á að
gefa neinn afslátt af starfsleyfisskil-
yrðum,“ bókaði Guðmundur þá.
sveinn@frettabladid.is
Fiskþurrkun ein í nýju
iðnaðarhverfi Ölfuss
Ekki er ljóst hver kostnaður Ölfuss verður vegna nýs iðnaðarhverfis þangað sem
flytja á fiskþurrkunarverksmiðju Lýsis í Þorlákshöfn. Hann verður í fyrstu hærri
en innheimt lóðargöld þar sem önnur fyrirtæki hafa enn ekki óskað eftir lóð.
Framkvæmdir við fiskþurrkunarverksmiðju Lýsis hófust í maí. Hún á að vera tilbúin haustið 2018. FréttabLaðið/ViLHeLm
Gunnsteinn r.
Ómarsson,
bæjarstjóri Ölfuss
sKÁK Jóhann Hjartarson hóf í gær
þátttöku á Heimsbikarmótinu í
skák en hann tapaði fyrir tékkneska
ofurstórmeistaranum David Navara.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2000
sem Íslendingur er meðal kepp-
enda.
Mótið fer fram í Tblisi, höfuðborg
Georgíu. Jóhann, sem tók settið af
hillunni fyrir skemmstu, vann sér
inn þátttökurétt með því að verða
Norðurlandameistari fyrr á þessu
ári.
Alls taka 128 skákmenn þátt en
meðal keppenda eru flestir af allra
sterkustu skákmönnum heimsins.
Keppt er eftir útsláttarfyrirkomu-
lagi. Keppendur tefla tveggja skáka
einvígi og verði jafnt að því loknu er
teflt til þrautar með styttri umhugs-
unartíma.
Jóhann hafði hvítt í gær gegn
hinum feiknasterka Navara. Vitað
var fyrir fram að á brattan var að
sækja. Í dag verður það svart og
hefst umferðin klukkan 11. Landi
Jóhann eigi sigri er þátttöku hans
lokið á mótinu. – jóe
Jóhann á heimsbikarmóti
Jóhann nýbúinn að leika 1. c4 gegn Navara. CHeSS.COm/maria emeLiaNOVa
4 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N u D A G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-C
0
2
0
1
D
A
6
-B
E
E
4
1
D
A
6
-B
D
A
8
1
D
A
6
-B
C
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K