Fréttablaðið - 04.09.2017, Blaðsíða 18
skref og sumar konur sem ég vinn
með nefndu að þær hefðu áhuga á
að fara í Hússtjórnarskólann.“
Gaman og gefandi
En hvað finnst Vilborgu skemmti-
legast við að prjóna? „Það er
slakandi, mjög skemmtilegt,
skapandi og gefandi. Mér finnst
gaman að gefa öðrum það sem
ég hef prjónað. Ég hef prjónað
sængurgjafir og jólagjafir fyrir
vini og vandamenn og finnst það
persónuleg gjöf. Ég prjóna líka
fyrir basar sem Kristniboðsfélag
kvenna heldur ávallt í nóvember
og ágóðinn rennur til góðs mál-
efnis. Svo er líka nytsamlegt að geta
prjónað vettlinga, sokka og hlý föt
sem nýtast til dæmis á son minn
á leikskólanum og sambýlismann
minn sem er leiðsögumaður.“
Aðspurð segist Vilborg ekki vera
komin á það stig að hanna sjálf
flíkurnar sem hún prjónar. „Ég er
aðeins farin að fikra mig áfram
við að teikna upp mynstur og
prjóna eftir þeim. Ég hef hannað
og prjónað eina fullorðinspeysu og
eina barnapeysu. Yfirleitt finn ég
uppskriftir á netinu eða í blöðum
og skoða prjónasíður á samfélags-
miðlum. Á Instagram fylgist ég til
dæmis með hanneoorlien, peti-
teknit, mammastrikk, barnehag-
estrikk og knittingforlove. Svo er
ég með „Strikkere“ á SnapChat. Það
eru stelpur í Noregi sem skiptast
á að vera með snappið. Þær eru
með mismunandi þema í hverri
viku, svo sem byrjendaprjón,
leikskólaprjón og vettlinga- eða
húfuprjón. Þá sýna þær hvað þær
eru að prjóna eða hafa prjónað og
koma með ýmis góð ráð. Ég hef
gaman af því að fylgjast með þessu
og fæ hugmyndir og innblástur að
verkefnum.“
Vilborg skellir upp úr þegar hún
er spurð hvort hún hafi hugsað sér
að sýna prjónaskap á SnapChat.
„Ja, það er reyndar aldrei að vita
nema ég helli mér út í það. Hver
veit?“
Vilborg notar lausan tíma til
að prjóna og er alltaf með nokkur
verkefni í gangi í einu, enda lítur
hún á prjónaskap sem skemmtun
en ekki kvöð. „Ég prjóna yfir
sjónvarpinu eða þegar ég hlusta á
rólega tónlist eða hljóðbók. Mér
finnst gott að enda daginn á því að
prjóna,“ segir Vilborg að lokum.
Frá því að Vilborg Guðlaugs-dóttir lærði að prjóna hefur hún verið óstöðvandi og
prjónað hverja flíkina á fætur ann-
arri. „Prjónaáhuginn hafði lengi
blundað með mér en ég hafði ekki
þor til að demba mér út í handa-
vinnu af fullri alvöru. Ég var viss
um að ég gæti ekki prjónað og það
óx mér í augum að lesa og prjóna
eftir uppskriftum. Ég hafði af og
til hugsað um að fara í Hússtjórn-
unarskólann og þá aðallega út
af handavinnunni. Vinkona mín
ákvað að fara í skólann og úr varð
að ég gerði það líka,“ segir Vil-
borg, sem æfði fótbolta í átta ár og
spilaði með yngri landsliðunum
fyrir hönd Íslands. „Ég æfði lengst
af með Val og um nokkurt skeið
með Þrótti en lagði fótboltaskóna
á hilluna fyrir nokkrum árum.“
Vilborg hafði áður lokið námi
í hjúkrunarfræði og unnið við
sitt fag um nokkurt skeið en fór í
hlutastarf í eina önn svo hún gæti
tekið námið við Hússtjórnarskól-
ann föstum tökum. „Flestir fara í
skólann strax að loknu stúdents-
prófi og ég var því töluvert eldri
en bekkjarsystkin mín, en ég lét
það ekki stöðva mig. Ég lærði ekki
aðeins handavinnu heldur margt
mjög hagnýtt sem hefur komið
sér vel í hversdagslífinu og við
heimilishald. Ég lærði líka að vera
óhrædd við að prófa mig áfram við
að prjóna. Maður lærir mest á því
að reka sig á, þurfa að prjóna áfram
og rekja upp þegar villur verða,“
upplýsir Vilborg, sem er mjög
ánægð með námið.
Það myndaðist góður vinskapur
á milli bekkjarsystkinanna og
Vilborg kynntist einni af sínum
nánustu vinkonum í skólanum. „Ég
varð ekki vör við annað en að fólki
fyndist gott hjá mér að taka þetta
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Vilborg er alltaf með nokkur verkefni í gangi í einu og hefur verið óstöðvandi frá því hún lærði að prjóna. MYND/VILHELM
Vilborg fær hugmyndir í blöðum og á
samfélagsmiðlum eins og SnapChat.
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Opið 8-22
LEIÐSÖGUNÁM
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS,
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00,
Martha Jensdóttir
kennari.
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myn-
dum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal
að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
• Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
• Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
• Mannleg samskipti.
• Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald-
snám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir
kennari.
- Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið -
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyri þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
lei sögn erlendra og innle dra fe ðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni o margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrú sloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tí a var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á fer aleiðsögn e a ekki.
Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466
pið 8-22
I
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS,
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00,
Martha Jensdóttir
kennari.
nit iðað og ske tilegt ná fyrir þá, sem vilja ky nast Íslandi í máli og myn-
du . Námið er opið öllu þeim, sem áhuga hafa á að læra hver ing standa skal
að leiðsögn erlendra og innlendra ferðam nna um Ísland.
Stuðst r við nám krá menntamálaráðuneyt sins m viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
• Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
• Saga landsins, jar f æði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
• Ma nleg samskipti.
• Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldná , auk þes sem farið er í vettvangsferðir.
msögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögu ám við Ferðamálas óla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald-
snám. Þett nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir
kennari.
- Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið -
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8- 2
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
U sögn:
S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskól Íslands. Námið stóð
vel u dir væntingum þar se fjölmargir ke ar komu að kennslun i og
áttu þeir a ðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og
ekki síst að vekja mig til umhugsu ar um þá auðlind sem la dið okkar er
og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og
fróðir hver á sínu sviði og áttu auðv lt með að koma efninu ti skila.
Námi efur mikla atvinn möguleika og spennandi tí r eru framundan.
Guðrún Helga
Bjarnadóttir,
Vestmannaeyjum
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Vilborg er
dugleg að prjóna
á son sinn, sem
er á þriðja ári.
Svarthöfði að
hætti Vilborgar.
Hún hannaði
þetta mynstur.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . S E p T E M B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-A
2
8
0
1
D
A
6
-A
1
4
4
1
D
A
6
-A
0
0
8
1
D
A
6
-9
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K