Fréttablaðið - 04.09.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.09.2017, Blaðsíða 20
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Þó að þér finnist eins og ekkert sé að þér (nema að þú sért vonlaus) og að enginn geti hjálpað þér, þá er fjöldi fólks sérhæfður í háskóla í mörg ár til þess einmitt að hjálpa þér. Ljúffengar pylsur, skinkur, ætiþistlar, sveppir og fleira góðgæti ættað frá Ítalíu. Skemmtilegir forréttaplattar sem henta fyrir alls konar tilefni, stór og smá. Ítölsk matargerð nýtur mikillar hylli um allan heim og þar er Ísland engin undantekning. Fyrr á þessu ári opnuðu ítölsku hjónin Massimo og Katia sælkeraverslun undir nafninu Massimo og Katia Gourmet italiano við Laugaveg 163 í Reykjavík þar sem þau selja ljúf- fengar ítalskar matvörur frá ýmsum héruðum Ítalíu. „Við bjóðum m.a. upp á extra virgin ólífuolíu úr hand- tíndum ólífum með aðeins 0,32 pró- sent sýrustig. Þessi olía hentar frá- bærlega vel sem salatdressing, með kjöti og fiski og súpum svo dæmi séu tekin. Einnig seljum við gott úrval af grænum og svörtum ólífum, ýmsar gerðir af ljúffengum gæðasveppum í ólífuolíu, grillaða ætiþistla í olíu og sneidd eggaldin samkvæmt gömlum hefðum frá Puglia sem er í suður- hluta landsins,“ segir Massimo. Osturinn og áleggin eru heldur ekki langt undan að sögn Katia. „Að sjálfsögðu seljum við hinn fræga ítalska Parmigiano Reggiano ost, mortadella-pylsuna sem inniheldur meðal annars pistasíuhnetur og er mjög vinsælt álegg á Ítalíu, auk ýmissa tegunda af skinkum frá Emilia Romagna sem er í norð- austurhluta landsins.“ Meðal annarra ljúffengra vara nefna þau kryddaðar Salsiccia Napoli pylsur, ítalska gæðakaffið frá Kimbo sem kemur frá Napólí, vel kryddaða salamipylsu, góm- sæt chili-, ætiþistla- og ólífumauk sem er frábært að smyrja ofan á brauð, ansjósur frá Suður- Ítalíu og reykta prosciutto-skinku frá Norður-Ítalíu. „Þess má geta að allar kjötvörur frá okkur koma frá dýrum sem hafa verið alin við mannúð- legar aðstæður og innihalda engin óæskileg aukaefni.“ Hjónin leggja mikinn metnað í að bjóða upp á gott verð og persónu- lega þjónustu. „Einnig má nefna að við seljum skemmtilega forrétta- platta sem er frábær kostur fyrir þá sem hafa ekki tíma eða vilja koma fjölskyldu eða félögum sínum á óvart, til dæmis í tengslum við partí, afmælisveislur, fundi eða einfald- lega sem ljúffengt snakk. Fyrir þá viðskiptavini sem þekkja ekki nógu vel ítalskar gæðavörur er öllum vel- komið að koma og smakka á þeim vörum sem þeir vilja kynnast.“ Nánari upplýsingar má finna á Facebook undir Massimo og Katia Gourmet italiano og símanúmerið er 588-9898. Töfrar ítalska eldhússins Sælkeraverslunin Massimo og Katia Gourmet italiano býður upp á ljúffengar ítalskar sælkeravörur. Kvíði getur verið lamandi og rænt bæði lífsgleði og framkvæmdaorku. nordicphoToS/geTTy Nú fer að hausta, sumarfríið og björtu næturnar á undan-haldi og veturinn, skuld- bindingarnar og myrkrið taka við. Margir kvíða vetrinum og vilja helst breiða upp fyrir haus og fara ekki fram úr fyrr en í vor. Hér eru nokkrar ráðleggingar sem hver um sig getur sefað kvíða að einhverju marki og saman hafa þær enn jákvæðari áhrif. Prófaðu, en í guðs bænum ekki ætla þér um of. Að sigrast á kvíða er eins og að borða fíl, taktu einn bita, eina mínútu eða eina ráðleggingu í einu og andaðu djúpt á milli. Andaðu djúpt Dragðu andann og finndu hvernig lungun fyllast og maginn lyftist. Andaðu svo frá þér og finndu hvernig axlirnar slakna, hálsinn opnast og hnúturinn í maganum minnkar. Einbeittu þér að andar- drættinum og ekki því sem þú kvíðir. Fáðu knús Farðu í nudd eða snyrtingu og leyfðu öðrum að fara um þig mjúkum og græðandi höndum. Eða fáðu þína nánustu til að faðma þig eða klóra þér á bakinu. Góð og gefandi snerting gefur öryggistil- finningu sem dregur úr streitu og kvíða. Farðu út í náttúruna Í dagsferð, göngutúr, jafnvel bara út í garð. Dragðu að þér ilminn í loftinu, finndu fyrir jörðinni undir fótum þínum, reyndu aðeins á þig. Það er ábyggilegt að þér líður betur á eftir. Farðu snemma í háttinn Svefnlaus heili fer á yfirsnúning og sér óvini í öllum hornum. dragðu úr neyslu á koffíni, áfengi, sykri og unnum mat- vörum Þeir sem þjást af kvíða leita gjarna í mat, drykk eða örvandi efni til að slá á kvíðann en það er sennilega það vitlausasta sem hægt er að gera. Sá sem kýlir orkuna upp á örvandi efnum kemur jafnhratt niður og lendir jafnvel á verri stað en lagt var upp frá. Mundu að tilfinningar eru ekki staðreyndir Þegar þér líður illa og finnst þú ömurlegasta manneskja á jarðríki er alls ekki víst að allir séu á sömu skoðun. Mundu að þú ert ekki tilfinningar þínar heldur sá eða sú sem upplifir þær og að kvíðinn heili getur talið þér trú um alls konar vitleysu. Farðu til sálfræðings Þó að þér finnist eins og ekkert sé að þér (nema að þú sért vonlaus) og að enginn geti hjálpað þér, þá er fjöldi fólks sérhæfður í háskóla í mörg ár til þess einmitt að hjálpa þér og þeim sem líður eins og þér líður. Nýttu þér það. Svitnaðu! Áreynsla og líkamsrækt setur af stað vellíðunarferli í líkamanum sem skilar sér í minni kvíða. Auk þess veitir hreyfing alls kyns boð- efnum útrás sem annars safnast upp og valda vanlíðan. Taktu á móti kvíðanum Ekki berjast á móti þegar kvíðinn kemur heldur skaltu leyfa honum að koma, eins og jarðskjálfta eða öldu að strönd. Ef þú gerir það þá nær kastið hápunkti og dvínar svo en ef þú reynir að streitast á móti styrkist kvíðinn og eflist. Taktu á móti kvíðaöldunni með andar- drætti og mundu: einnig þetta líður hjá! ekki láta kvíðann stjórna þér Haustið og yfirvofandi vetur veldur mörgum kvíða en það er mikilvægt að læra að höndla kvíð- ann því lífið þarf ekki að stjórnast af honum ef þú nærð að taka í taumana í tíma. 4 KynningArBLAÐ FÓLK 4 . S e p T e M B e r 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 0 4 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 6 -B 6 4 0 1 D A 6 -B 5 0 4 1 D A 6 -B 3 C 8 1 D A 6 -B 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.