Fréttablaðið - 04.09.2017, Side 42
Í dag
15.30 Dell Championship Golfst.
15.50 Armenía - Danmörk Sport
15.50 Aserbaíd. - S. Mar. Sport 3
16.50 Ísland - Albanía Sport 2
17.20 Þór/KA - Stjarnan Sport 4
18.35 England - Slóvakía Sport
18.35 Þýskal. - Noregur Sport 3
18.35 N-Írland - Tékkl. Sport 5
20.45 HM markasyrpa Sport 5
Pepsi-deild kvenna:
17.30 Breiðablik - ÍBV
18.35 Þór/KA - Stjarnan
Nýjast
Undankeppni HM 2018
A-riðill
Holland - Búlgaría 3-1
Davy Pröpper 2, Arjen Robben - Georgi
Kostadinov.
Hvíta Rússland - Svíþjóð 0-4
Emil Forsberg, Christoffer Nyman, Marcus
Berg, Andreas Granqvist.
Frakkland - Lúxemborg 0-0
Staðan: Frakkland 17, Svíþjóð 16, Holland
13, Búlgaría 12, Lúxemborg 5, Hvíta-Rús. 5.
B-riðill
Færeyjar - Andorra 1-0
Gilli Sörensen.
Lettland - Sviss 0-3
Haris Seferovic, Blerim Dzemaili, Ricardo
Rodríguez.
Ungverjaland - Portúgal 0-1
André Silva.
Staðan: Sviss 24, Portúgal 21, Ungverjaland
10, Færeyjar 8, Andorra 4, Lettland 3.
D-riðill
Georgía - Írland 1-1
Shane Duffy - Valeri Kazaishvili.
Wales - Austurríki 1-0
Ben Woodburn.
Serbía - Móldóva 3-0
Mijat Gacinovic, Aleksandar Kolarov,
Aleksandar Mitrovic.
Staðan: Serbía 15, Írland 13, Wales 11,
Austurríki 8, Georgía 4, Moldóva 2.
G-riðill
Spánn - Ítalía 3-0
Isco 2, Álvaro Morata.
Ísrael - Makedónía 0-1
Goran Pandev.
Albanía - Liechtenstein 2-0
Odise Roshi, Ansi Agolli.
Staðan: Spánn 19, Ítalía 16, Albanía 10,
Ísrael 9 Makedónía 6, Liechtenstein 0.
H-riðill
Grikkland - Belgía 1-2
Zeca - Jan Vertonghen, Romelu Lukaku.
Eistland - Kýpur 1-0
Matthias Käit.
Gíbraltar - Bosnía 0-4
Edin Dzeko 2, Kenan Kodro, Senad Lulic.
Staðan: Belgía 22, Bosnía 14, Grikkland 13,
Kýpur 10, Eistland 8, Gíbraltar 0.
I-riðill
Finnland - Ísland 1-0
Alexander Ring.
Úkraína - Tyrkland 2-0
Andriy Yarmalenko 2.
Króatía - Kósovó 1-0
Domagoj Vida.
Staðan: Króatía 16, Úkraína 14, Ísland 13,
Tyrkland 11, Finnland 4, Kósovó 1.
finnland 1 - ísland 0 tampere-völlurinn í tampere, finnlandi
Aron Einar eftir leik
„Við vorum ekki nægilega fljótir
upp í sókn þegar við
unnum boltann
og þeir úr
stöðum. Við
áttuðum okkur
alltof seint
á því, í seinni
hálfleik þar sem við
reyndum að keyra þetta
upp. Við vorum því miður aðeins
of passívir,“ sagði landsliðsfyrir-
liðinn Aron Einar Gunnarsson
eftir tapið fyrir Finnum.
„Draumurinn um HM 2018
er ekkert úr sögunni en þetta
verður erfitt núna. Við þurfum
að halda haus. Það er annar
leikur á þriðjudaginn og við
þurfum þrjú stig þar.“
Íslenska liðið hefur ekki
haldið hreinu á útivelli í
fjórum leikjum í undan-
keppni HM 2018.
KRÓATÍA 1 – 0 ÍSLAND
Frammistaða Íslands (4-4-2)
Hannes Þór Hallórsson 5
Birkir Már Sævarsson 5
(59. Rúrik Gíslason 3)
Kári Árnason 5
*Ragnar Sigurðsson 6
Hörður Björgvin Magnússon 5
Jóhann Berg Guðmundsson 4
Aron Einar Gunnarsson 5
Emil Hallfreðsson 4
(59. Björn B. Sigurðarson 5)
Birkir Bjarnason 4
Gylfi Þór Sigurðsson 4
Alfreð Finnbogason 4
(88. Jón Daði Böðvarsson -)
Maður leiksins:
Ragnar Sigurðsson
Átti fínan leik í
hjarta íslensku
varnarinnar eins
og svo oft áður.
Mark Finna kom
beint úr auka-
spyrnu en fyrir utan
það fengu þeir ekki mörg færi. Það
var ekki fyrr en Ísland varð manni
færri sem vörnin opnaðist. Sama
hversu mikið eða lítið Ragnar spilar
fyrir sitt félagslið skilar hann alltaf
sínu fyrir íslenska landsliðið.
1-0 Alexander Ring (8.).
Skot (á mark): 11 (6) – 14 (2). Horn: 6 – 5. Rangstöður: 0 – 1.
fótbolti Glæsimark Alexanders
Ring með skoti beint úr aukaspyrnu
réði úrslitum í leik Finnlands og
Íslands í Tampere í undankeppni
HM á laugardaginn.
Markið kom strax eftir átta mín-
útna leik. Þrátt fyrir að hafa nægan
tíma og vera miklu meira með bolt-
ann tókst íslenska liðinu ekki að
brjóta finnsku vörnina á bak aftur.
Ísland fékk fá færi í leiknum og átti
aðeins tvo skot á finnska markið.
Landsliðsþjálfarinn Heimir Hall-
grímsson reyndi að breyta gangi
mála með tvöfaldri skiptingu á 59.
mínútu. Sautján mínútum síðar
fékk annar varamannanna, Rúrik
Gíslason, að líta sitt annað gula
spjald og þar með rautt fyrir brot í
kjölfar þess að hann missti boltann
klaufalega frá sér.
Eftir brottreksturinn opnuðust
stór svæði í vörn Íslendinga sem
Finnar voru nálægt því að nýta
sér. Mörkin urðu þó ekki fleiri og
finnska liðið fagnaði sínum fyrsta
sigri í undankeppninni.
„Þetta var jafn leikur. En þeir voru
yfir í baráttunni, sérstaklega í fyrri
hálfleik. Þeir mættu grjótharðir til
leiks og felldu okkur svolítið á eigin
bragði,“ sagði Reynir Leósson þegar
Fréttablaðið leitaði álits hans á
leiknum og frammistöðu íslenska
liðsins í honum.
Engir aukvisar
Þótt uppskera finnska liðsins í
undankeppninni hafi verið rýr er
ýmislegt í það spunnið. Íslendingar
fengu svo sannarlega að kynn-
ast því, bæði í leiknum á Laugar-
dalsvelli fyrir ári, þar sem Finnar
komust tvisvar yfir en enduðu á því
að tapa 3-2, og í Tampere á laugar-
daginn.
„Finnar eru ekki lélegir í fótbolta,
það er langur vegur frá. Engu að
síður erum við með töluvert betra
lið og töluvert betri leikmenn í
flestum leikstöðum. Á okkar degi
eigum við að vinna finnska liðið,“
sagði Reynir.
Heimir hélt sig við sama byrjun-
arlið og í sigrinum á Króatíu í júní.
Emil Hallfreðsson var við hlið Arons
Einars Gunnarssonar á miðjunni
og Gylfi Þór Sigurðsson aðeins fyrir
aftan Alfreð Finnbogason í fram-
línunni. Reynir hefði viljað sjá Gylfa
spila með Aroni á miðjunni, eins og
hann hefur gert undanfarin ár, og
annan framherja með Alfreð.
Bestir með Gylfa á miðjunni
„Mér fannst við of varfærnir. Ég
hefði viljað hafa Gylfa neðar á vell-
inum, til að komast fyrr í boltann.
Mér finnst íslenska liðið virka best
þegar hann spilar inni á miðjunni
með Aroni. Miðað við leikstílinn
okkar, og hvernig Kári [Árnason]
og Ragnar [Sigurðsson] spila út úr
vörninni, finnst mér við verða að
vera með stærri mann með Alfreð
frammi. Við erum oft að lyfta bolt-
anum fram og það er ekki leikurinn
fyrir Alfreð og Gylfa,“ sagði Reynir.
„Ég hefði viljað sjá Jón Daða
[Böðvarsson] eða Björn Bergmann
[Sigurðarson] byrja leikinn. Við
erum ekkert verri varnarlega með
þá. Þeir eru báðir duglegir og vinnu-
samir. Það er auðvelt að vera vitur
Strákarnir slógu feilnótu í Finn landi
Ísland þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir Finnlandi í Tampere í undankeppni HM á laugardaginn. Íslenska liðið datt fyrir vikið niður í 3. sæti
I-riðils og þarf því nauðsynlega að vinna Úkraínu þegar liðin mætast á morgun. Reynir Leósson var ekki sáttur með byrjunarliðið gegn Finnum.
Gylfi Þór Sigurðsson var að vonum sár og svekktur þegar hann gekk af velli eftir 1-0 tap íslenska landsliðsins gegn því finnska á laugardaginn. Ísland þarf núna nauðsyn lega að vinna Úkraínu. FRéTTABLAðIð/ERNIR
Heimir eftir leik
„Þetta var verðugur andstæð-
ingur hér í dag og
það er engin
skömm að tapa
hér en auð-
vitað eru allir
drullu svekktir,“
sagði landsliðs-
þjálfarinn Heimir
Hallgrímsson eftir leikinn gegn
Finnum.
„Þetta ræðst ekki fyrr en í
lokaumferðinni, lið eiga eftir að
tapa stigum og það eru margir
leikir eftir innbyrðis. Líklegast er
baráttan um fyrsta sætið töpuð
en það er aldrei að vita. Menn
verða að gjöra svo vel að rífa sig
upp og mæta af krafti í Úkraínu-
leikinn.“
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
6
-8
9
D
0
1
D
A
6
-8
8
9
4
1
D
A
6
-8
7
5
8
1
D
A
6
-8
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K