Fréttablaðið - 22.09.2017, Síða 8
samfélag Það kann að vera mögu-
legt að fækka nauðgunarbrotum
með því að breyta nauðgunarákvæði
í almennum hegningarlögum og
efla forvarnir. Þetta kom fram í máli
Ragnheiðar Bragadóttur, prófess-
ors við lagadeild Háskóla Íslands, á
hádegisfyrirlestri Rannsóknarstofn-
unar í jafnréttisfræðum í gær.
Ragnheiður vakti athygli á því
að núgildandi nauðgunarákvæði
væri frá árinu 2007. Á árunum 2007
til ársins 2013 hefði sex sinnum
verið flutt frumvarp á Alþingi um
að afnema verknaðarlýsingu úr
nauðgunarákvæðinu. Ástæðan væri
sú að dómar vegna nauðgunar væru
of fáir.
Prófessorinn telur hins vegar að
með þeirri breytingu sem lögð var
til yrði ákvæðið of óljóst til þess að
uppfylla skilyrði um skýrleika refsi-
heimilda og hefði ekki orðið til þess
að fjölga dómum.
„Síðastliðið vor var skilgreining
á nauðgun út frá samþykki tekin
upp að nýju þegar fjórir þingmenn
Viðreisnar fluttu frumvarp um
breytingu á fyrstu málsgrein 194.
greinar,“ sagði Ragnheiður. Með
samþykkt frumvarpsins yrði betur
skilgreint hvenær samþykki er fyrir
hendi og hvenær ekki. „Þessi tillaga
er að mínu mati miklu betri en til-
lagan sem kom fram fyrir tíu árum,“
segir Ragnheiður.
Ragnheiður segir hugmyndir
síðastliðinna tíu ára um breytingar
á nauðgunarákvæðinu hafa haft það
að markmiði að fjölga sakfellingar-
dómum fyrir nauðgun. Reynsla Eng-
lendinga sýni að lágt sakfellingar-
vandamál sé líka vandamál þótt
að það sé byggt á skilgreiningum
nauðgunar út frá samþykki.
Sænskir sérfræðingar sem helst
hafa mælt með ákvæði, þar sem
samþykki er í forgrunni, telja ekki
endilega að það auki líkur á að
ákærum fjölgi. Hins vegar felist í því
staðfesting á jafnræði kynjanna og
kynferðislegum sjálfsákvörðunar-
rétti. Þeir telja sem sagt að þessi leið
sé ekki til þess fallin að fjölga sak-
fellingardómum heldur leiði hún til
færri brota. „Og kannski er það líka
aðalatriðið. Markmiðið hlýtur að
vera að fækka nauðgunarbrotum.
En til þess er svo margt annað sem
við þurfum að líta til en nauðgunar-
ákvæðið. Til dæmis öflugar forvarn-
ir,“ segir Ragnheiður.
jonhakon@frettabladid.is
SAMGÖNGU- OG
SVEITARSTJÓRNARRÁÐUNEYTIÐ
Samgönguráð
Samgönguþing 2017
28. september 2017
á Hótel Örk í Hveragerði
Dagskrá
Kl. 10:00 Bæjarstjóri Hveragerðis, Aldís Hafsteinsdóttir,
býður fundargesti velkomna
Ávarp Jóns Gunnarssonar ráðherra
samgöngu- og sveitarstjórnarmála
Kl. 10:15–11:15 Samgönguáætlun – staða
Formaður samgönguráðs, Ásmundur Friðriksson
Forsvarsmenn samgöngustofnana – pallborð
Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytið – Sigurbergur Björnsson
Vegagerðin – Hreinn Haraldsson
Samgöngustofa – Þórólfur Árnason
Isavia – Björn Óli Hauksson
Kl. 11:15 Framtíðarsýn í samgöngum
– Guðmundur Freyr Úlfarsson prófessor við HÍ
11:45 Hádegishlé
Kl. 12:20 Hvítbók: Ákvarðanataka í samgöngum
– dr. Gunnar Haraldsson hagfræðingur
Kl. 12:45 Flug sem almenningssamgöngur og mikilvægi þess fyrir
búsetugæði á landsbyggðinni
– Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar
Kl. 13:10 Góðar samgöngur, grunnur samkeppnishæfs samfélags
– Haukur Óskarsson tæknifræðingur
Kl. 13:25 Framkvæmdir á stofnvegum út frá höfuðborgarsvæðinu
– dr. Eyjólfur Árni Rafnsson verkfræðingur – kynning – umræður
Kl. 14:15 Málstofur
a. Umferðaröryggi – nýjar áskoranir og verkefni
b. Orkuskipti í samgöngum og loftslagið
c. Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu
d. Hafnamál og nýjungar í útgerð
Kl. 15:15 Kaffi
Kl. 15:30 Samantekt úr málstofum
Kl. 16:00 þinglok – léttar veitingar
Fundarstjóri er Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs
Garðabæjar
Boðið verður upp á ókeypis far með rafrútu á þingið. Farið verður frá
samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytinu við Sölvhólsgötu kl. 09:00 og
komið við á bensínstöðinni í Norðlingaholti um kl. 09:15.
Lagt verður af stað til Reykjavíkur frá Hótel Örk kl. 17:00. Komið verður
við á bensínstöðinni í Norðlingaholti á leiðinni að samgöngu- og
sveitar stjórnarráðuneytinu. Þangað verður komið um kl. 18:00.
Þátttakendur eru beðnir að skrá sig með því að senda tölvupóst á
netfangið: kristin.hjalmarsdottir@srn.is.
Þátttakendur eru jafnframt beðnir að taka fram hvort þeir þiggja far
með rútu á þingstað.
Fyrir þig í Lyfju
15% afsláttur
af öllum Nicotinell Fruit pakkningum
Nicotinell Classic/Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til
meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Gildir út september 2017
Nicotinell Fruit 15%_Lyfja 5x10 copy.pdf 1 16/08/2017 17:03
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Markmiðið hlýtur að
vera að fækka brotum
Aukin áhersla á samþykki í nauðgunarákvæði almennra hegningarlaga gæti
dregið úr brotum. Frumvarp um slíkt var lagt fram á þingi í vor en ekki sam-
þykkt. Lagaprófessor telur gagnslaust að afnema verknaðarlýsingu úr ákvæðinu.
Ragnheiður segir frumvarp Viðreisnar draga samþykki fram í dagsljósið. Það
sé auðskiljanlegt og geti hugsanlega fyrirbyggt brot. FRéttablaðið/Hanna
Þessi tillaga er að
mínu mati miklu
betri en tillagan sem kom
fram fyrir tíu árum.
Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor
1. málsgrein 194. greinar í nú-
gildandi lögum
Hver sem hefur samræði eða
önnur kynferðismök við mann
með því að beita ofbeldi, hót-
unum eða annars konar ólög-
mætri nauðung gerist sekur um
nauðgun og skal sæta fangelsi ekki
skemur en 1 ár og allt að 16 árum.
Til ofbeldis telst svipting sjálf-
ræðis með innilokun, lyfjum eða
öðrum sambærilegum hætti.
1. málsgrein 194. greinar sam-
kvæmt tillögu Viðreisnar
„Hver sem hefur samræði eða
önnur kynferðismök við mann án
samþykkis hans gerist sekur um
nauðgun og skal sæta fangelsi ekki
skemur en 1 ár og allt að 16 árum.
Samþykki telst liggja fyrir ef það
er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki
telst ekki liggja fyrir ef það er
fengið með ofbeldi, hótunum eða
annars konar ólögmætri nauðung,
eða með því að beita blekkingum
eða hagnýta sér villu viðkomandi
um aðstæður. Til ofbeldis telst
svipting sjálfræðis með innilokun,
lyfjum eða öðrum sambærilegum
hætti.“
1. málsgrein 194. greinar án
verknaðarlýsingar
„Hver sem gerist sekur um
nauðgun skal sæta fangelsi ekki
skemur en 2 ár og allt að 16 árum.
Ólíkar tillögur að 194. grein hegningarlaga
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 f Ö s t U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
0
-5
4
2
4
1
D
D
0
-5
2
E
8
1
D
D
0
-5
1
A
C
1
D
D
0
-5
0
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K