Fréttablaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 2
Veður
Gengur í sunnan 8-13 með rign-
ingu, en hægari og úrkomulítið
fram eftir degi um landið austan-
vert. Suðvestlægari um kvöldið.
Hiti 9 til 15 stig. sjá síðu 18
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
Stöðug umferð frá Eyjum til lands
Herjólfur og Akranes fluttu gesti þjóðhátíðar til Landeyjahafnar í allan gærdag. Herjólfur byrjaði snemma nætur en Akranes fór sína fyrstu ferð
klukkan sjö um morgunn. Flugfélagið Ernir flaug á milli lands og Eyja en einnig flugu minni vélar frá Eyjum á Bakka. Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson
sAMFÉLAG Útihátíðir verslunar-
mannahelgarinnar fóru flestar far-
sællega fram. Undantekningu var
að finna á Flúðum þar sem ölvun og
vímuefni voru áberandi. Þá komu
upp nokkur kynferðisbrotamál.
Í Vestmannaeyjum fór hin árlega
Þjóðhátíð fram. Lögreglan áætlar
að hátíðin í ár hafi líklega verið sú
fjölmennasta frá upphafi en þegar
mest var voru gestir um 16 þúsund.
Nokkuð var um ölvun og um fimm-
tíu fíkniefnamál komu upp.
Að sögn Jóhannesar Ólafssonar,
yfirlögregluþjóns í Vestmannaeyj-
um, var meira um harðari fíkniefni
nú en fyrri ár. Ein líkamsárás var
kærð til lögreglu.
Í tilkynningum frá lögreglu yfir
helgina kom fram að tvö kynferðis-
brotamál hefðu komið upp sem
teldust upplýst. Lögreglan upplýsir
ekki um brot sem enn eru til rann-
sóknar og því möguleiki að þau hafi
verið fleiri.
Á Flúðum kom fólk saman til að
skemmta sér. Aðfaranótt laugardags
og sunnudags fór hins vegar meira
fyrir vímu, ölvun og slagsmálum
heldur en skemmtun. Lögregla
þurfti ítrekað að skakka leikinn og
tjaldsvæðið var hið ósnyrtilegasta.
Síðasta kvöldið var mun rólegra en
hin tvö fyrri.
Tvö kynferðisbrot voru tilkynnt í
umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi
um helgina. Þá höfðu alls fimm leit-
að á neyðarmóttöku fyrir þolendur
kynferðisofbeldis. Algengt er að þol-
endur leiti ekki strax á neyðarmót-
tökuna heldur komi þegar nokkrir
dagar hafa liðið frá verknaðinum.
Á Akureyri fór fjölskylduhátíðin
Ein með öllu fram, á Bolungarvík
Um 50 fíkniefnamál á
borð lögreglu í Eyjum
Minnst fimm kynferðisbrotamál voru tilkynnt lögreglu um nýliðna verslunar-
mannahelgi. Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum er sú fjölmennasta til þessa. Sextán
þúsund manns voru þar samankomnir þegar mest var. Umferðin gekk vel.
Herjólfsdalur var þéttsetinn en áætlað er að ríflega 16 þúsund manns hafi
verið í honum þegar mest var. Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson
FjöLMiðLAr Sænski fréttaskýringa-
þátturinn Uppdrag granskning sem
afhjúpaði aflandsfélagseign Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, er til-
nefndur til Emmy-verðlauna.
„Herra forsætisráðherra, hvað get-
urðu sagt mér um félag sem nefnist
Wintris?“ spurði fréttamaðurinn
Sven Bergman þáverandi forsætis-
ráðherra í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu í viðtalinu afdrifaríka.
Eftir að viðtalið við Sigmund
Davíð var birt sagði hann af sér
embætti forsætisráðherra. Ríkis-
stjórnin sat áfram en alþingiskosn-
ingum var flýtt. Bjarni Benedikts-
son, þáverandi fjármálaráðherra,
og Ólöf heitin Nordal, þáverandi
innan ríkisráðherra, voru einnig
nefnd í skjölunum.
Í frétt á vef sænska ríkissjón-
varpið kemur fram að þátturinn sé
tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
í flokki dægurmála. – kk
Panama-þáttur
fær tilnefningu
LöGreGLuMáL Maður í annarlegu
ástandi reyndi ítrekað að komast
inn á Barnaspítala Hringsins við
Hringbraut um klukkan fimm í
gærmorgun. Maðurinn neitaði að
fara er öryggisverðir höfðu afskipti
af honum. Hann neitaði jafnframt
að gefa lögreglu upp kennitölu sína
og vildi ekki framvísa skilríkjum.
Maðurinn var handtekinn og vist-
aður sökum ástands í fangageymslu
lögreglu. Þetta kemur fram í dagbók
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þá voru afskipti höfð af konu í
miðbæ Reykjavíkur þar sem hún
var að kasta af sér vatni á tröppum
Alþingishússins. Konan var kærð
fyrir brot á Lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavíkurborg. – kó
Vildi inn á
Barnaspítala
BANDAríKiN Læknar hafa borið
kennsl á karlmann sem lét lífið í
árásunum á tvíburaturnana í New
York þann 11. september 2001.
Maðurinn er 1.641. fórnarlambið
sem borin hafa verið kennsl á eftir
hryðjuverkaárásirnar, en alls létu
2.753 manns lífið í árásunum.
Nafn mannsins hefur ekki verið
birt að ósk fjölskyldu hans.
Sérfræðingar á vegum New York-
borgar hafa á undanförnum árum
beitt sérstakri tækni til þess að vinna
erfðaefni úr þeim líkamsleifum sem
hafa fundist. Í frétt breska ríkisút-
varpsins segir að enn eigi eftir að
bera kennsl á líkamsleifar yfir fjöru-
tíu prósenta þeirra sem létu lífið í
árásunum fyrir sextán árum. – kij
Enn að bera
kennsl á látna
Enn á eftir að bera kennsl á líkams-
leifar fjölmargra. Fréttablaðið/EPa
voru nýir Evrópumeistarar í mýrar-
bolta krýndir og á Egilsstöðum
sóttu fjölskyldur unglingalandsmót
UMFÍ. Á öllum stöðum var skemmt-
anahald til fyrirmyndar að sögn lög-
reglumanna á stöðunum.
Að hátíðarhöldum loknum
þurfti fólk að koma sér aftur til
síns heima. Umferðin gekk víðast
hvar hægt en örugglega fyrir sig.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út skömmu eftir hádegi í gær
eftir að húsbíll valt á Steingríms-
fjarðarheiði. Tveir voru í bílnum
og kastaðist annar út úr bílnum
við veltuna. Flogið var með báða
á Landspítalann í Fossvogi. Ekki er
vitað nánar um líðan þeirra.
Mikið umferðareftirlit var í Land-
eyjahöfn en engum var hleypt undir
stýri nema sá hinn sami blési fyrst
hjá lögreglu. Um tuttugu voru stöðv-
aðir fyrir ölvunarakstur og nokkrir
voru beðnir um að fá sér kaffi og
doka örlítið áður en lagt væri í hann.
johannoli@frettabladid.is
8 . á G ú s t 2 0 1 7 Þ r i ð j u D A G u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A ð i ð
0
8
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
6
E
-F
7
A
4
1
D
6
E
-F
6
6
8
1
D
6
E
-F
5
2
C
1
D
6
E
-F
3
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K