Fréttablaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 16
Á hinni fornfrægu Silver-stone kappakstursbraut á Englandi er árlega haldin keppni háskólanema í hönnun og gerð kappakstursbíla. Bílarnir þreyta ýmis próf og keppa sín á milli ásamt því að liðin þurfa að halda fyrirlestra um önnur verk- fræðileg verkefni tengd hönnun, kostnaði og viðskiptum. Tekin eru saman stig úr öllum flokkum í lokin og sigurvegari krýndur. Um 2.000 nemendur frá yfir 90 háskólum frá 30 löndum kepptu þetta árið. Fyrir Íslands hönd keppti liðið Team Sleipnir sem er skipað verkfræði- og tæknifræði- nemendum Háskólans í Reykja- vík. Bíll þeirra, RU17, fór í gegnum skoðanir og athuganir án mikilla vandræða og fékk þátttökurétt í hinum fjölmörgu kappaksturs- greinum sem keppt er í, en það tókst alls ekki öllum liðum. Fyrst var keppt í „Skid Pad“ þar sem keyrt er í form tölustafsins 8 til að sýna fram á grip og stöðugleika bílsins og lenti Team Sleipnir í 20. sæti. Athuguð var hröðun þar sem Team Sleipnir endaði í 16. sæti. Ekið var á braut í kapp við klukk- una og hafnaði Team Sleipnir í 17. sæti í þeirri grein. Síðasta og jafnframt erfiðasta keppnin var þolakstur þar sem keyrðir voru 22 hringir í braut á meðan aðrir bílar voru í brautinni á sama tíma. Tekið var tillit til heildar- tíma sem og bensínnotkunar og endaði RU17 í 11. sæti. Bíllinn sló aldrei feilpúst og hafnaði Team Sleipnir í 15. sæti í það heila sem er magnaður árangur. Fyrsta sætinu landaði Cardiff Univer- sity sem er jafnframt fyrsti sigur bresks háskóla í sögu keppninnar. Var þetta einungis í annað skiptið sem Team Sleipnir tók þátt í keppninni en liðið náði 74. sæti í fyrra, 15. sæti í ár og liggur leiðin nú aðeins upp á við. Team Sleipnir náði 15. sæti í Formula Student í Bretlandi Við forprófanir á bíl Team Sleipnir á Silverstone. Keppnisbíll Team Sleipnir á fullri ferð í þolaksturshluta keppninnar. Var þetta einungis í annað skiptið sem Team Sleipnir tók þátt í Formula Stud- ent keppninni en liðið náði 74. sæti í fyrra, 15. sæti í ár og leiðin liggur aðeins upp á við. www.visir.is/bilar Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Auglýsingar: Atli Bergmann atlib@365.is, Sími 512 5457 Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Bílar 8 . Á g ú s t 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A g U R2 B í l A R ∙ F R É t t A B l A Ð I Ð Bílar Porsche úr þolakstri og snýr sér að Formula E Keppnislið Porsche í þolakstursmótaröðinni. Það fór eins og í stefndi að Porsche lýsti því yfir að fyrir-tækið hygðist hætta þátttöku í þolaksturskeppni og snúa sér alfarið að þátttöku í Formula E rafmagnsbílakeppnisröðinni. Þessi stefnubreyting er samstiga breyttu viðhorfi og framleiðslu Porsche, sem og móðurfyrirtækis þess, Volkswagen sem alla áherslu leggja nú á þróun og framleiðslu rafmagnsbíla og tengiltvinnbíla. Það er ekki eins og Porsche hætti þátttöku sinni í þolakstri með skít og skömm, þvert á móti, en Porsche hefur til að mynda unnið Le Mans þolaksturskeppnina þrjú ár í röð og vann þolakstursmóta- röðina árið 2015 og 2016. Porsche hefur þegar hafið hönnun síns fyrsta keppnisbíls í Formula E. Mercedes Benz hefur einnig lýst yfir þátttöku í Formula E móta- röðinni. 0 8 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 6 F -1 5 4 4 1 D 6 F -1 4 0 8 1 D 6 F -1 2 C C 1 D 6 F -1 1 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.