Fréttablaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Sólveig ætlar enn að snara og hanga í kaðli þegur hún verður 92 ára – og eitthvað lengur. Mynd/ERnIR
Sólveig stundaði skíðaíþróttina á yngri árum en eftir að hún hætti því leitaði hún
lengi að hreyfingu sem hentaði
henni. „Ég prófaði að sjálfsögðu
eróbikk og pallaleikfimi, body
pump og fleira. Fór síðan að lyfta
lóðum og hlaupa á bretti. En fyrir
sex árum kynntist ég crossfit og þá
var ekki aftur snúið. Mér fannst ég
næstum frelsuð.“
Hvaða líkamsrækt stundar þú
í dag? „Í dag er ég í crossfit sem er
hrikalega skemmtilegt. Á hverjum
degi eru nýjar áskoranir enda er
ég í fullu starfi sem CF þjálfari í
CrossFit Reykjavík þar sem iðk
endur mínir eru frá 6 ára og alveg
upp í 70 ára. Svo koma lítil kríli
innan við eins árs þrisvar í viku
með foreldrum sínum í foreldra
crossfit,“ svarar Sólveig sem sér um
allt unglingastarf á stöðinni. „Stór
hópur af 10 til 12 ára og 13 til 16
ára unglingum æfir hjá okkur og
það finnst mér mjög skemmtilegur
aldur.“
Sólveig æfir sjálf fimm til sex
sinnum í viku.
Hver er uppáhaldsæfingin þín?
„Uppáhaldsæfingin mín er snörun
(önnur ólympíska lyftan) og kaðla
klifur.“
Hver er besta teygjan? „Ég byrja
líklegast oftast á því að teygja létt
á mér með spiderman og djúpri
hnébeygjustöðu, til að liðka mig í
mjöðmum.“
Þegar kemur að mataræði segist
Sólveig borða eins hreina fæðu
og hún mögulega geti og forðast
sykur og sætuefni. „Ég hef í huga
magn og gæði kolvetnis, próteins
og fitunnar þegar ég set saman
máltíðirnar mínar. Mér líður vel af
þessari fæðu og síðan ég tók til hjá
mér þá fæ ég aldrei ,,pylsuputta“
eins og ég kallaði það og útbelgdan
maga, sem hefur líklega stafað af
því að ég borðaði eitthvað sem ég
bara þoldi ekki.“
Er eitthvað sem þú neitar þér um?
„Í raun er ég ekki að neita mér um
neitt sem mig langar í. Ég hef til
dæmis ekki drukkið gos síðan ég
var í menntaskóla og er afar vand
lát á sælgæti eða slikkerí. En hef
verið sykurlaus síðan í mars og mér
finnst það bara ekkert mál, þegar
ég tek svona skurk. Í staðinn fæ ég
mér ber og rjóma meðan aðrir fá
sér köku, ís eða nammi.“
Hvernig er dæmigerður mat-
seðill?
„Morgunmatur: Gróf hafragrjón,
kókosflögur, rúsínur, möndlur og
væn sletta af hreinu skyri og mjólk.
Einn bolli af góðu pressukaffi. Ef ég
verð rosa svöng fyrir hádegismat
fæ ég mér oft banana og möndlur.
Hádegismatur: Túnfiskur/egg og
fullt af grænmeti og alltaf avókadó.
Eftir æfingu um þrjúleytið fæ ég
mér próteinsjeik eða skyrboost
sem ég bý mér til sjálf.
Kvöldmatur: Samanstendur
oftast af kjúklingi/fiski/ommilettu,
sætum kartöflum og fullt af salati.“
Hvað borðar þú fyrir og eftir
æfingu? „Ég æfi oftast eftir hádegis
tímana mína svo hádegismaturinn
stendur með mér þangað til. Ég er
alveg laus við það að sturta í mig
einhverjum göróttum drykkjum og
drekk bara vatn. Ég held að enginn
hafi gott af svona svakalega miklu
magni af koffeini eins og margir
af þessum drykkjum innihalda og
fólk drekkur í tíma og ótíma. Og ég
verð alveg úthverf ef unglingarnir
mínir sem æfa hjá mér í CFRvk
voga sér að koma með svona
drykki á æfingu.“
Sólveig segist ekki narta mikið
milli mála. „En það kemur þó
fyrir og þá er nærtækast að grípa í
ávöxt, hnetur eða möndlur. Núna
er ég með æði fyrir brokkólíi og ef
ég á sýrðan rjóma þá finnst mér
geggjað að dýfa kálinu í hann.
Meðan ég var í skólanum og lá með
nefið ofan í skólabókunum fékk
ég mér líka stundum popp sem ég
poppa upp úr kókosolíu og það
finnst mér sjúklega gott.“
Áttu einhver góð heilsuráð? „Góð
heilsa samtvinnast í líkama og sál
og því ættum við að umgangast
eins mikið af jákvæðu og skemmti
legu fólki og við mögulega getum.
Okkur líður betur og við verðum
betri manneskjur. Fólk er gert til
að hreyfa sig en ekki sitja meiri
hluta dags. Því verðum við að
hreyfa okkur svo að við verðum
ekki aumingjar. Nauðsynlegt er að
hafa gaman af því sem við ætlum
að gera, leiðinleg líkamsrækt gerir
lítið gagn því við gefumst örugg
lega upp innan tíðar. En hafa ber í
huga að styrktaræfingar eru mjög
mikilvægar fyrir vöðva og bein
þótt við séum orðin fjörgömul.
Þess vegna ætla ég að snara og
hanga í kaðli þegar ég verð 92 ára
og eitthvað lengur.“
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
ALLT FYRIR
HEIMILIÐ
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
• Nýtt útlit, öfl ugri og hljóðlátari
• Stiglaus hraðastýring ásamt
pulse rofa og 5 prógrömmum
• Uppskriftabók fylgir
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Pro750 galdurinn á
bak við ferskt hráefni
Fólk er gert til að
hreyfa sig en ekki
sitja meirihluta dags. Því
verðum við að hreyfa
okkur svo að við verðum
ekki aumingjar.
2 KynnInGARBLAÐ FÓLK 8 . ág ú S t 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U dAG U R
0
8
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
6
F
-0
1
8
4
1
D
6
F
-0
0
4
8
1
D
6
E
-F
F
0
C
1
D
6
E
-F
D
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K