Fréttablaðið - 08.08.2017, Page 30

Fréttablaðið - 08.08.2017, Page 30
Fyrsti maðurinn, sem datt í hug hugmyndafræðin á bak við sjálfrennireiðina, var einn frægasti Ítali allra tíma, Leonardo da Vinci. Árið 1478 teiknaði hann hugmyndina að fyrsta bílnum sem drifinn var áfram af fjöður sem trekkja þurfti upp áður en í ferð skyldi halda, en ferðin yrði þó aðeins 40 metra löng áður en trekkja þyrfti fjöðrina upp aftur. Snilldin við hönnun hans var framúrstefnuleg stýring sem hægt var að forstilla fyrir ferðina, þ.e.a.s. að bíllinn myndi beygja til hægri eða vinstri eftir ákveðið marga metra. Það mætti segja að þetta hafi einnig verið fyrsta hugmyndin að forritanlegu tæki. Brunahreyfillinn Fyrstu eiginlegu bílarnir voru gufudrifnir, ópraktískir, stórir og þungir. Árið 1852 hönnuðu Ítalirnir Eugenio Barsanti og Felice Matteucci fyrsta brunahreyfilinn, sem svipar til þeirra véla sem við þekkjum í bílum í dag. Rétt fyrir aldamótin 1900 hófu fyrstu ítölsku bílaframleiðendurnir störf undir nokkrum áhrifum frá frönskum brautryðjendum. Fyrsti fram- leiðandinn er talinn vera Stefanini- Martina árið 1896 en á þessum tíma voru allir bílaframleiðendur mjög litlir og framleiðsla lítil enda voru bílar í þá daga algjör mun- Land ofurbíla og hönnunar Á síðustu þremur árum hefur á þessum vett- vangi verið fjallað um þátt Japans, Þýskalands, Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands í bíla- sögu heimsins og rétt að ljúka þessu greinasafni á hönnunarlandinu Ítalíu enda hafa margir ítalskir bílar orðið öðrum frægari vegna hönnunarinnar. Ítalía Sindri Snær Thorlacius aðarvara. Um aldamótin 1900 voru margir minni bílaframleiðendur á Ítalíu sem hurfu ýmist í heimsstyrj- öldunum tveimur eða í kreppunni á áttunda áratug síðustu aldar. Stóru merkin urðu til Það var ekki fyrr en FIAT var stofnað af fjárfestum með öldunga- ráðsmanninum Giovanni Agnelli í fararbroddi árið 1899 í Tórínó að hjólin fóru að snúast af alvöru. Þremur árum síðar vann FIAT sinn fyrsta kappakstur með aðstoð öku- þórsins Vincenzo Lancia sem síðar átti eftir að stofna sitt eigið fyrir- tæki. FIAT náði skjótt árangri og árið 1910 var það með yfirhöndina á markaðnum á Ítalíu og hefur haft hana síðan ásamt því að hafa verið eitt stærsta iðnaðarveldi heims á sínum tíma. Lancia Automobiles var stofnað árið 1906 af ökuþórunum Vin- cenzo Lancia og Claudio Fogolin. Lancia þótti framúrstefnulegur framleiðandi og var leiðandi í þróun ýmiss búnaðar. Bílar þeirra voru fyrst um sinn dýrir lúxusbílar. Í fyrri heimsstyrjöldinni reyndust stríðsvélar sem Lancia framleiddi ótrúlega sigursælar. ALFA (Anonima Lombarda Fabbr ica Automobili) var stofnað í Mílanó árið 1910 sem undir- merki franska bílaframleiðandans Darracq. Strax ári síðar sendi ALFA tvo bíla í Targa Florio kapp- aksturinn og þar með hófst mikil kapp aksturs saga fyrirtækisins. Giuseppe Campari, Enzo Ferrari og Ugo Sivocci. Sá síðastnefndi var hæfileikaríkur og tæknilegur öku- þór en þótti einkar seinheppinn. Til að sporna við ólukku lét hann árið 1923 setja mynd af fjögurra blaða smára á hvítum bakgrunni á hlið rauða bílsins. Sivocci vann þennan kappakstur sem var fyrsti alþjóðlegi sigur Alfa Romeo. Fjögurra blaða smárinn átti eftir að vera merki Alfa Romeo í kappakstri allt til þessa dags. Scuderia Ferrari var stofnað í Modena árið 1929 sem kappakst- urslið undir stjórn Enzo Ferrari sem notaðist einungis við bíla frá Alfa Romeo. Enzo Ferrari var sigursæll ökuþór þangað til árið 1931 þegar hann ákvað að hætta keppni út af komu sonar síns, Dino, í heiminn. Scuderia Ferrari þýðir „Hesthús Ferrari“ en Enzo Ferrari sá um að vera styrktar aðili, umboðsmaður og liðsstjóri fjölda ökuþóra. Alfa Romeo átti erfitt í kreppunni uppúr 1930 og sagði sig frá kappakstri árið 1933. Scuderia Ferrari tók þá við kappakstursliði Alfa Romeo. Árið 1938 vildi Alfa Romeo breyta nafn- inu á liðinu í Alfa Corse sem lagðist illa í Enzo. Hann var látinn fara með því skilyrði að hann myndi ekki keppa í kappakstri eða gefa út bíl næstu fjögur árin undir eigin nafni. Það breytti því hins vegar ekki að hann fór strax í að láta hanna fyrsta bílinn sinn frá grunni, Tipo 815, sem bar þá nafnið AAC (Auto Avio Costruz ioni). Stund milli stríða Árið 1918 yfirgaf Claudio Fogolin Lancia og tók mikla fjárhæðir með sér úr fyrirtækinu. Vincenzo Lancia hafði miklar áhyggjur af því að hann væri að missa tök á fyrirtækinu. Hann þurfti að endur- skipuleggja verksmiðjur sínar eftir heimsstyrjöldina og hefja fram- leiðslu bíla sem fyrst og þurfti það að ganga vel ef hann ætlaði að geta borgað starfsfólki sínu laun. Fyrst kom út Lancia Kappa sem var skref í rétta átt en árið 1922 kom út Lambda sem breytti iðnaðinum. Í fyrsta sinn varð til grindarlaus fólksbíll þar sem styrkurinn var allur í yfirbyggingunni og einnig var hann með sjálfstæða framfjöðr- un ásamt fleiri nýjungum. Vin- cenzo fékk heimsókn frá Banda- ríkjamanni að nafni Flocker sem gaf honum hugmynd. Hann vildi fara í útrás á bandaríska markað- inn. Hann lét hönnuði og verka- menn sína hætta öllum störfum og einbeita kröftum sínum að hönnun og smíði risastórs lúxus- bíls með V8 vél. Af honum seldust í kringum 1.700 eintök en Lancia dró sig út af Bandaríkjamarkaði Maserati var stofnað árið 1914 í Bologna af fimm bræðrum sem báru ættarnafnið Maserati. Fyrst um sinn smíðuðu þeir kapp- akstursbíla fyrir önnur fyrirtæki. Það var ekki fyrr en árið 1926 sem Maserati sendi frá sér bíl undir eigin nafni. Það ár vann Maserati hinn fræga Targa Florio kapp- akstur og komst á kortið sem kapp akstursbílaframleiðandi. Árið 1937 seldu bræðurnir fyrir- tækið manni að nafni Adolfo Orsi en héldu áfram að vinna í verk- smiðjunni í áratug þangað til þeir héldu á önnur mið. Maserati var ofarlega skrifað í kappakstri og vann m.a. Indianapolis 500 árin 1939 og 1940. Fyrri heimsstyrjöld Eins og hjá öllum þjóðum sem tóku þátt í heimsstyrjöldunum tveimur sneru flestir bílaframleiðendur sér að framleiðslu hergagna, hvort sem það voru byssur, flutningabílar, jeppar, skriðdrekar eða flugvélar, á meðan styrjaldirnar stóð yfir. Árið 1915 tók maður að nafni Nicola Romeo við ALFA og breytti nafni þess í Alfa Romeo. Fyrst um sinn voru Alfa Romeo bílar fyrst og fremst kappakstursbílar og sport- bílar fyrir þá ríku. Þeir höfðu alla bestu ökuþórana á sínum snærum og má þar nefna Antonio Ascari, Lamborghini Countach sem þykir ein fallegasta bílahönnun sögunnar. Frægari plakatbíl er erfitt að finna. Eftir stríð urðu litlir og hagkvæmir bílar mjög vinsælir. Fiat Nuova seldist í um fjórum milljónum eintaka. Fitat 500 a topolino bíllinn stórkostlegi sem kostaði 8.900 lírur. 8 . á g ú s t 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A g U R8 B Í l A R ∙ F R É t t A B l A Ð I Ð Bílar 0 8 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 6 F -2 9 0 4 1 D 6 F -2 7 C 8 1 D 6 F -2 6 8 C 1 D 6 F -2 5 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.