Fréttablaðið - 08.08.2017, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
DORMA KYNNIR
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
90 x 200 cm 74.990 kr.
120 x 200 cm 89.990 kr.
140 x 200 cm 99.900 kr.
160 x 200 cm 114.990 kr.
180 x 200 cm 129.900 kr.
Simba dýnurnar eru fáan
legar í eftirtöldum stærðum
Komdu og
kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simbasleep.is
Hugmyndin er að vekja athygli á matar sóun og öllu því sem er að fara til spillis,“ segir Rakel Garðars-
dóttir spurð út í hver sé hugmyndin
á bak við viðburðinn ÓHÓF. „Sam-
tökin mín Vakandi, Hrefna Rósa
Sætran, Umhverfisstofnun og Gamla
bíó halda viðburðinn saman,“ segir
Rakel sem er stofnandi samtakanna
Vakandi.
Hrefna lofar góðri skemmtun
og gómsætum veitingum á ÓHÓFi
sem haldið verður þann 10. ágúst
nk. milli 5-7 og er opið öllum. „Við
ætlum að bjóða upp á Blóð-Maríu,
bæði áfenga og óáfenga. Með því
viljum við vekja athygli á því magni
af tómötum sem er sóað, t.d vegna
útlitsgalla og offramleiðslu, og sýna
hvernig má nýta tómatana betur,“
segir Hrefna. „Það gríðarlegt magn
af grænmeti sem sóað er á Íslandi,
og núna eftir komu Costco til lands-
ins enn þá meira,“ útskýrir Rakel.
„Auðvitað fagna ég samkeppni
en það er miklu betra fyrir alla, sér-
staklega umhverfið, að nota íslenskt
hráefni þar sem vegalengd frá rækt-
unarstað á disk er mun styttri. En
þar þurfa einhverjar reglugerðir og
annað að koma inn í upp á verðlag
því að íslenskt grænmeti er yfirleitt
dýrara. En í stóru myndinni finnst
mér íslenska grænmetið miklu
betra. Ekki bara á bragðið heldur er
alveg svakalega óumhverfisvænt að
flytja inn grænmeti með skipum, oft
yfir hálfan hnöttinn, sem knúin eru
áfram af óhreinni olíu. Fyrir utan
að vita ekkert hvar né hvernig það
grænmeti er ræktað. Við þurfum
líka að styðja við íslenska fram-
leiðslu ef við viljum hafa hana
í boði. Það væri ekki gott ef við
myndum drepa alla íslenska fram-
leiðslu vegna innflutnings .
Ég tek það þó fram að auðvitað
er samkeppni af hinu góða – en ég
persónulega vel alltaf íslenskt ef það
er kostur. Ég vil vita hvaðan minn
matur kemur, hver framleiddi hann
og að kolefnissporin séu ekki stór.
Ég vil bjarta framtíð fyrir komandi
kynslóðir.
Svo er uppistaðan í grænmeti
auðvitað vatn og íslenska vatnið
er þekkt um allan heim fyrir að
vera gott. Að sjálfsögðu ættum við
því að vera meðvituð um að velja
alltaf íslenskt fram yfir innflutt. Ég
skil alveg að fólk velji það sem er
ódýrara, en við verðum samt að taka
okkur á.“
Fólk að verða meðvitaðra
Spurðar nánar út í ÓHÓF og það
sem verður á boðstólum þar segir
Hrefna: „Við munum bjóða upp
á bruschettur, sem eru úr snittu-
brauði sem hefði annars lent í
ruslinu, og Blóð-Maríu, sem er úr
útlitsgölluðum tómötum og vodka
frá Foss Distillery sem er búinn til úr
afgangsmysu. Og þetta er allt fram-
reitt og framsett af Hrefnu Sætran
meistarakokki,“ bætir Rakel við.
Rakel og Hrefna eiga það sam-
eiginlegt að pæla mikið í matarsóun
og nýtingu hráefnis. „Hrefna er einn
af okkar bestu kokkum og á vinsæl
veitingahús. Það skiptir miklu máli
fyrir samtök eins og mín að ná til
veitingahúsa, verslana, matreiðslu-
manna og annarra sem eru að sýsla
með mat. Hrefna er búin að vera lengi
mjög framarlega í því í að nýta hráefni
vel og er alltaf með flottar pælingar.“
Rakel segir fólk almennt vera
orðið meðvitaðra um matarsóun.
„Fólk pælir miklu meira í þessu en
það fylgja samt ekki alltaf aðgerðir.
Það þarf að fara í alvöru aðgerðir.
Við erum enn þá að henda alveg
geggjuðu magni af mat og nýta það
illa – en umræðan er farin af stað.
Vonandi munum við bráðlega sjá
tölur yfir sóun fara minnkandi.“
„Við sem rekum veitingahús erum
stanslaust að reyna að finna lausnir
og erum mjög meðvituð – en þetta
liggur líka hjá neytandanum, að
panta sér í takt við svengd,“ útskýrir
Hrefna en hún vill líka hvetja fólk til
að vera ófeimið við að óska eftir að
taka afgangana með heim.
Maturinn á ekki að enda í ruslinu
Spurðar hvort þær lumi á ein-
hverjum ráðum fyrir einstaklinga
sem vilja leggja sitt af mörkum og
minnka sóun í heiminum segir
Rakel: „Við þurfum bara öll að vera
meðvituð um það sem við erum að
kaupa inn og passa að kaupa ekki
of mikið. Að fara betur með það
sem við kaupum, það er náttúrlega
algjör lykill. Og ef við kaupum of
mikið þá er mikilvægt að að frysta
og nota afgangana.“
„Maturinn á aldrei að enda í rusla-
tunnunni þannig að það er gott að
skoða vel í ísskápinn áður en maður
fer að versla,“ segja þær, „og ef fólk
hefur ekki tíma til að skipuleggja
innkaupin þá er ekkert mál að
smella mynd af innihaldi ísskápsins
og skoða hana svo í búðinni,“ bætir
Rakel við.
„Þetta skiptir svo ofboðslega
miklu máli. Þetta snertir okkur
kannski ekki persónulega núna því
við erum með nægan mat fyrir fram-
an okkur. En það eru börnin okkar
og komandi kynslóðir sem munu
eiga í vandræðum ef við förum ekki
að fara betur með hráefnið.
Mold er sem dæmi afar dýrmæt
auðlind sem við verðum að fara
betur með en það getur tekið nátt-
úruna 1.000 ár að mynda 1-2 sentí-
metra þykkt lag af mold en aðeins
nokkra daga að eyða þessari mold.
Við getum heldur ekki gefið okkur
að vatn verði endalaust til þótt það
sé nóg af því á Íslandi sem stendur.“
gudnyhronn@365.is
Efna til hófs til að
vekja athygli á óhófi
Rakel Garðarsdóttir og Hrefna Rósa Sætran eiga það sameiginlegt
að vilja vekja fólk til umhugsunar um matarsóun. Þær verða af því
tilefni með viðburðinn ÓHÓF á Petersen svítunni í næstu viku.
Í ÓHÓFi Rakelar og Hrefnu verður boðið upp á Blóð-Maríu úr útlitsgölluðum tómötum. FRÉTTABLAÐIÐ/LAUFEy
ÞEtta SnERtiR
okkuR kannSki Ekki
pERSónulEGa núna Því við
ERum mEð næGan mat fyRiR
fRaman okkuR. En Það ERu
böRnin okkaR oG komandi
kynSlóðiR SEm munu EiGa í
vandRæðum Ef við föRum
Ekki að faRa bEtuR mEð
HRáEfnið.
8 . á g ú s t 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A g U R22 l í f I Ð ∙ f R É t t A B l A Ð I Ð
0
8
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
6
F
-0
6
7
4
1
D
6
F
-0
5
3
8
1
D
6
F
-0
3
F
C
1
D
6
F
-0
2
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K