Fréttablaðið - 03.10.2017, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 3 1 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7
FrÍtt
Eldborg 21. nóv.
kl. 19:30
harpa.is/stmartin #harpa
Academy
of St Martin in the Fields
Tónlistarstjóri
Joshua Bell
Miðasala í síma
528 5050 og á harpa.is
skipulagsMál Fimm manna fjöl-
skylda í Hafnarfirði bíður niður-
stöðu skipulags- og byggingarráðs
bæjarfélagsins í dag um hvort hún
fái að byggja nýtt draumahús í stað
annars sem úrskurðað hefur verið
ónýtt sökum veggjatítlna og myglu.
Draumurinn um nýja húsið við
Austurgötu 36 í miðbæ Hafnar-
fjarðar hefur að þeirra sögn strandað
á mótbyr frá ósveigjanlegu kerfi.
Anna Gyða Pétursdóttir og Ingvar
Ari Arason segja þá baráttu hafa
tekið verulega á og framlengt óþarf-
lega martröðina sem málið hefur
verið. Þau vilja reisa nýtt og hærra
steinhús í gömlum byggingarstíl.
– smj / sjá síðu 2
Fá svar í dag um veggjatítluhús
VinnuMarkaður Laun þeirra sem
hæstar hafa tekjurnar hækkuðu
mest á milli áranna 2014 og 2016,
sama hvort litið er til almenna eða
opinbera geirans. Þetta sýna nýjar
tölur Hagstofu Íslands um laun
landsmanna eftir starfsstéttum.
Sé litið til reglulegra heildar-
launa starfsmanna á almennum
vinnumarkaði hækkuðu þau að
meðaltali úr 552 þúsund krónum
í 638 þúsund, eða um 86 þúsund.
Lægsta tekjutíundin hefur hins
vegar aðeins hækkað um 55 þúsund
krónur á meðan sú hæsta hefur
hækkað um 126 þúsund krónur.
Í prósentum talið hefur sú lægsta
aftur á móti hækkað í launum um
17,8 prósent en sú hæsta um 14,8.
Mesti munur á hækkun lægstu
og hæstu tekjutíundarinnar er hjá
opinberum starfsmönnum ríkisins.
Lægstu laun hafa hækkað um 62
þúsund krónur, úr 335 þúsundum í
397 þúsund. Hins vegar hefur hæsta
tekjutíundin hækkað um 174 þús-
und krónur, farið úr 806 þúsundum
í 980 þúsund krónur að meðaltali.
Á tímabilinu hækkuðu laun hennar
um 21,6 prósent en lægsta tíundin
um 18,5 prósent.
„Prósentuhækkanir eru aflgjafi
misskiptingar í okkar þjóðfélagi,“
segir Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness,
og segir tölurnar sýna að prósentu-
hækkanir í komandi kjarasamn-
ingum sé leið ójöfnuðar.
„Það kemur ekki á óvart að hæstu
laun hækki meira í krónum talið
þar sem hækkun í prósentum hefur
hlutfallslega meiri krónutöluáhrif
á þann tekjuhóp en lægstu laun,“
segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. Hann telur skýringu
á þróun hæstu launa í hópi ríkis-
starfsmanna liggja fyrst og fremst
í ákvörðunum Kjararáðs sem hafi
hækkað laun æðstu embættis-
manna óeðlilega mikið á síðustu
misserum.
„Það var okkar upplegg í síðustu
kjarasamningum að hækka laun
í krónum talið en um það náðist
ekki sátt. Meðal annars vildu stórir
hópar innan opinberra starfsmanna
fara prósentutöluleiðina,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. – sa
Hæst launuðu fengu mestar hækkanir
Sé litið til krónutöluhækkunar launa frá 2014 til 2016 hækkuðu laun hæstu tekjuhópa sem nemur allt að þrefaldri hækkun lægst laun-
uðu. Verkalýðsforkólfar segja prósentuhækkanir í kjarasamningum auka á misskiptingu. SA telur ákvarðanir Kjararáðs vega þungt.
Fréttablaðið í dag
skoðun Bull er
bull, skrifar Jón
Baldvin Hanni-
balsson. 11
plús 2 sérblöð l Fólk l bÍlar
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
lÍFið Bandarísku leikararnir Jason
Schwartzman og Jake Johnson eru
staddir á Íslandi en þeir komu
með vél WOW air til landsins frá
Los Angeles í gær. Ekki er vitað
hvaða erindi þeir eiga á Íslandi
en heimildarmaður Frétta-
blaðsins sagði þá vini
virka hressa og káta í
fluginu. Schwartzman og Johnson
eiga báðir glæstan leiklistar-
feril að baki en Schwartzman
er einna þekktastur fyrir hlut-
verk sín í kvikmyndum Wes
Andersen. Johnson er þekkt-
astur fyrir að leika Nick Miller
í þáttunum New Girl.
– sþh / sjá síðu 20
Stórleikarar í Íslandsheimsókn
Lægstu laun opinberra
starfsmanna hækkuðu að
meðaltali um 62 þúsund á
tveimur árum.
Hið minnsta 58 voru myrtir og 515 særðir þegar skotárás var gerð frá hóteli í Las Vegas í gær. Árásin er sú mannskæðasta í áratugi í Bandaríkjunum. Lögregla rannsakar nú atburðinn en
árásarmaðurinn svipti sig lífi að voðaverkinu loknu. Íslendingar sem voru á staðnum segjast skelkaðir en héldu fyrst að um hvelli frá flugeldum væri að ræða. - sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
4
-0
B
8
0
1
D
E
4
-0
A
4
4
1
D
E
4
-0
9
0
8
1
D
E
4
-0
7
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K