Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 8
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • nydogun@nydogun. is Þann 4. október kl. 20 í safnaðarheimili Háteigskirkju fjallar Hrannar Már um eigin reynslu af sorg og hvað hefur hjálpað honum að lifa með sorginni. Einnig mun Nicolas tala um hvernig hann hefur öðlast frelsi þrátt fyrir að vera faðir fíkils. Kynntir verða stuðningshópar fyrir aðstandendur þeirra sem látist hafa af völdum fíknar. Ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar á www.sorg.is Samtal um fíknidauða H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Frumkvöðla- og nýsköpunarmennt Rannís býður til opinnar málstofu um frumkvöðla- og nýsköpunarmennt mánudaginn 9. október kl. 13-17 í sal Samiðnar, Borgartúni 30, 6. hæð. Þrír eistneskir sérfræðingar kynna slíka kennslu í sínu landi og farið verður yfir sviðið hérlendis. Að lokum verður efnt til samræðna um hvað þjóðirnar tvær geta lært hvor af annarri. Umræðurnar fara fram á ensku. Nánari upplýsingar og skráning á www.rannis.is Málstofa 9. október AÐA L S K I P U L AG K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R 2 0 1 3 – 2 0 3 0 Keflavíkurflugvelli, 25. september 2017 F.h. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar. Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og Landhelgisgæslan f.h. utanríkisráðuneytisins samþykktu þann 1. apríl 2016 tillögu að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030. Skipulagstillaga var auglýst 12. janúar til 23. febrúar 2016. Alls bárust 17 umsagnir og athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu og þar af voru 7 aðilar sem gerðu engar athugasemdir. Skipulagsnefnd fellst á afgreiðslu á framkomnum athugasemdum. Brugðist var við ábendingum og ákveðnar breytingar gerðar auk þess sem breytingar voru gerðar vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við afgreiðslu á auglýstri og samþykktri tillögu m.a. um farþegaspá, byggingarheimildir og áfangaskiptingu þeirra. Samþykkt tillaga með lagfæringum hefur verið send til Skipulagsstofnunar, umhverfis- ráðherra og utanríkisráðherra til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar. spánn Ísland myndi ekki taka afstöðu til mögulegrar sjálfstæðis- yfirlýsingar Katalóníu nema með aðkomu Alþingis, segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og telur ekki æskilegt að starfsstjórn taki sjálfstæða afstöðu í málum eins og þessu, að svo stöddu. Aðspurð segir Jóna Sólveig Elínardóttir, for- maður utanríkismálanefndar, að nefndin hafi ekki komið saman vegna málsins. „Evrópusambandið er aumingi og gerir ekki neitt og getur ekkert gert,“ segir Jón Baldvin Hannibals- son, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem hefur verið með annan fótinn á Spáni undanfarin ár. Jón er ekki bjartsýnn á framhaldið. Madrid hafi haft um tvær leiðir að velja. Annars vegar viðræður að siðaðra manna hætti eða valdbeitingu. „Nú eru þeir búnir að brenna brýr að baki sér með því að siga gömlu fasistalögreglunni á íbúa Kata- lóníu og þar með eru þeir búnir að eyðileggja sinn málstað og það má þakka fyrir ef þetta endar ekki í blóðugri borgarastyrjöld aftur.“ Jón segir nauðsynlegt að skilja sjálfstæðisþrá Katalóníumanna í sögulegu ljósi og bendir á að Spán- verjar hafi aldrei gert tímabil fas- ismans upp, heldur hafi þeir haldið sig við sáttmála gleymskunnar. „Í honum fólst að láta hina dauðu grafa hina dauðu; gleyma fortíðinni og einblína bara á nýja framtíð lýð- ræðislegs Spánar.“ Jón segir þennan sáttmála vera að trosna upp núna. „Það er varla til sú fjölskylda á Spáni sem ekki hefur átt um sárt að binda vegna Franco, og PP [Þjóðar- flokkurinn] er náttúrulega bara arf- taki fasistanna,“ segir Jón og bætir við: „Lögreglan, kirkjan, herinn og landeigendaklíkan. Það er PP og þeir eru harðir á því að það má ekki opna grafir fortíðarinnar og þess vegna eru sárin ógróin.“ Jón Baldvin telur einu færu leið- ina vera að alþjóðasamfélagið þrýsti á og beiti sér fyrir samningum og bendir á að að Evrópusambandið (ESB) var stofnað til að halda frið á stríðshrjáðu meginlandi Evrópu. „Þar af leiðir að ESB á auðvitað í ljósi þessa uppruna og eðlis banda- lagsins að hlutast til um að koma á friði og samningum,“ segir Jón, en er ekki vongóður um að bandalagið beiti áhrifum sínum. „Þeir geta í besta falli boðist til að miðla málum. Ég veit ekki einu sinni hvort þeir hafa döngun í sér til þess. Lögfræðingarnir munu segja nei, Spánn er fullgilt aðildarríki og það er engin miðstjórn í Evrópu- sambandinu sem hefur heimild til að blanda sér í málefni aðildarríkja. Valdamestu ríki Evrópusambands- ins eru gömul nýlenduríki og ég á nú ekki von á að þau beiti sér fyrir milligöngu Evrópusambandsins í málinu.“ adalheidur@frettabladid.is Evrópa ekki líkleg til stórræða í Katalóníu Aðkomu Alþingis þarf til að Ísland taki afstöðu í málefnum Katalóníu, segir utanríkisráðherra. Evrópusambandið er aumingi, segir Jón Baldvin Hannibals- son, fyrrverandi ráðherra, sem hefur litla trú á gömlu nýlenduríkjum Evrópu. Stúdentar mótmæltu lögregluofbeldi í Barcelona í gær. Framferði stjórnvalda í Madrid hefur verið mótmælt um alla Evrópu. Stjórnvöld í Katalóníu segjast enn vilja ná friðsamlegu samkomulagi við þau í Madrid. FréttaBlaðið/EPa Evrópusambandið er aumingi og gerir ekki neitt. Þeir geta í besta falli boðist til að miðla málum. Ég veit ekki einu sinni hvort þeir hafa döngun í sér til þess. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð 0 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 4 -3 3 0 0 1 D E 4 -3 1 C 4 1 D E 4 -3 0 8 8 1 D E 4 -2 F 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.