Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 20
Volvo XC60 jepplingurinn hefur verið mest seldi bíll Volvo í nokkurn tíma svo það er mikilvægt fyrir Volvo að misstíga sig ekki við gerð nýrrar kynslóðar hans, sem nýlega var kynnt heimsbyggðinni. Nær þriðji hver bíll sem Volvo selur er af gerðinni XC60. Volvo hefur reyndar lukkast afar vel að útfæra nýja bíla sína undan- farið og hafa Volvo XC90 jeppinn og Volvo S/90 og V90 fólksbílar Volvo fengið fádæma góðar við- tökur síðan þeir voru kynntir af nýrri kynslóð. Það var því við góðu að búast í Barcelona þangað sem bílablaðamönnum var hóað saman til að reyna gripinn nýja í sumar. Þegar ný kynslóð Volvo XC90 jeppans var kynnt fyrir um tveimur árum þótti hann hrika- lega vel heppnaður og fallegur bíll og því var ef til vill ekki nema von að Volvo leitaði í sömu smiðju hvað útlit XC60 varðar og því er ekki að neita að nýr XC60 er dálítið sem smækkuð mynd hans. Svo sem ekki leiðum að líkjast. XC60 er ekki með nema 12 cm styttra milli hjóla en XC90 og hefur hjólhafið lengst um 9 cm á milli kynslóða á XC60. Bíllinn virðist allur stærri en forverinn og það sannast þegar inn í hann er komið. Mun lengra húdd ýtir undir þau áhrif að bíllinn sé all- miklu stærri. Fágun og fegurð við völd Líkt og með XC90 jeppann er fegurðin við völd í innanrými XC60, ekkert til sparað í efnisvali og sami skandínavíski mínímal- isminn svífur yfir vötnunum. Allt er svo fágað, vel frágengið og á svo réttum stað. Leður- innréttingin í bílnum ber með sér ríkmannlegan blæ og bæði framsætin og aftursætin eru frábær og veita framsætin fyrir- myndar stuðning. Höfuðpúðarnir í aftursætunum eru háir og eiga greinilega að vernda farþegana vel, en þegar kemur að öryggi gerir enginn betur en Volvo. Það er jú meiningin að árið 2020 látist enginn í Volvo-bíl og allt hvað varðar öryggisbúnaðinn í þessum bíl, sem og hverjum nýjum Volvo, Kostir og gallar VolVo XC60 l FjórhjóladriF l 2,0 lítra bensínVél og raFmótorar l 407 hestöFl eyðsla frá: 2,1 l/100 km í blönduðum akstri mengun: 49 g/km CO2 hröðun: 5,3 sek. hámarkshraði: 230 km/klst. Verð frá: 7.490.000 kr. Umboð: Brimborg l Útlit l innanrými l aksturseiginleikar l Hljóðlátur l Útsýni gegnum framrúðu l Plastnotkun í stokki milli framsæta AXARHÖFÐA 16 foliatec.is 5673322 LED Perur Bjóðum nú felgur á ameríska-pallbíla jeppa- Land Cruser og alla fólksbíla Gæðavottaðar álfelgur reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is Vélarúrvalið samanstendur af t5 og t6 bensínvélunum, 254 og 320 hestafla, t8 bensínvél með rafmótorum að auki, 407 hest- afla og D4 og D5 dísilvélunum, 190 og 230 hestafla. sam- tals 5 vélarkostir og allir tengdir við 8 gíra sjálf- skiptinguna. er í þá áttina. Volvo XC60 er á botnplötu sömu gerðar og í XC90 og fjöðrunarbúnaðurinn er svo til sá sami. Hægt er reyndar að fá loftpúðafjöðrun, en panta þarf slíkt sérstaklega. En það er fleira sem XC60 á sameiginlegt með XC90, en það eru vélarnar og í báðum gerðum er Aisin 8 gíra sjálfskipting með öllum vélar- gerðum og beinskipting ekki í boði. Fimm vélarkostir – mikil aksturshæfni Vélarúrvalið samanstendur af T5 og T6 bensínvélunum, 254 og 320 hestafla, T8 bensínvél með rafmótorum að auki, 407 hestafla og D4 og D5 dísilvélunum, 190 og 230 hestafla. Samtals 5 vélarkostir og allir tengdir við 8 gíra sjálf- skiptinguna. Með T8 Twin Engine drifrásinni er bíllinn aðeins 5,3 Með Volvo XC60 er kominn skæður keppinautur bíla eins og audi Q5, BMW X3, Mercedes Benz glC, Porsche Macan og lexus NX 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r i Ð j U d a g U r6 b í l a r ∙ F r é t t a b l a Ð i Ð Bílar 0 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 4 -2 9 2 0 1 D E 4 -2 7 E 4 1 D E 4 -2 6 A 8 1 D E 4 -2 5 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.