Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 27
Kjötsúpa með miklu grænmeti er holl og góð. Hvað er betra þegar kólnar í veðri en sjóðheit kjötsúpa? Þessa súpu er einfalt að gera og hún er líka góð upphituð daginn eftir. Uppskriftin miðast við sex. 700 g beinlaust lambakjöt 1½ dl vatn ½ blaðlaukur, skorinn í sneiðar 1 laukur, smátt skorinn 2 gulrætur, smátt skornar 2 sneiðar sellerírót, smátt skornar 1 lítil gulrófa, smátt skorin 2 steinseljurætur, smátt skornar 4 kartöflur, smátt skornar 3 súputeningar Salt og pipar Ferskt timjan Skerið kjötið í bita. Sjóðið vatn og setjið kjötið út í það. Látið sjóða þar til froða myndast en hún er tekin burt. Látið malla áfram í eina klukkustund. Setjið allt grænmetið út í pottinn ásamt súputeningum. Sjóðið þar til grænmetið verður mjúkt. Bragðbætið með salti og pipar. Setjið ferskt, smátt skorið timjan saman við í lokin. Einföld og góð kjötsúpa Kaffidrykkja eykur langlífi og bætir heilsuna. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar, stórrar rannsóknar þar sem úrtakið var 20 þúsund manns. Þeir sem drukku að minnsta kosti fjóra kaffibolla á dag voru 64 prósentum ólíklegri en þeir sem sjaldan eða aldrei drukku kaffi til að deyja ótímabærum dauða. Munurinn jókst eftir 45 ára aldur. Niðurstöðurnar eru í samræmi við aðrar nýlegar rannsóknir sem sýna fram á að kaffidrykkja lengi lífið, og skiptir þá engu hvort kaffið inniheldur koffín eða ekki. Kaffibaunir eru hlaðnar andoxunarefnum og önnur verða til þegar kaffibaunin er brennd. Það segja læknar að dragi úr líkum á sjúkdómum eins og sykursýki 2, lifrarsjúkdómum, Alzheimer­ sjúkdómnum, húðkrabbameini og ristilkrabbameini. Hollur er sopinn Spínat, grænkál, sellerí og fleira grænmeti virðist oft ekki ofarlega á listanum yfir uppáhaldsfæðu krakka. Þá er ráð að demba því út í silkimjúkan þeyting sem inniheldur ávexti enda ávextir oftar vinsælli og sjá hvort spínatið renni þá ekki ljúf­ lega niður. Það er líka gott trix að leyfa krökkunum sjálfum að moka hráefnum í blandarann og ýta á takkann og fylgjast með hvaða litur tekur þeytinginn yfir. Hér er uppskrift að afar frísklegum morgundrykk sem hægt er að virkja krakkana í að búa til. Grænn og frískandi morgunþeytingur 2 appelsínur, afhýddar 1 banani, þroskaður ½ bolli mjólk, möndlumjólk, hrís- mjólk eða sojamjólk ½ bolli grísk jógúrt 2 bollar spínat Lúka af ísmolum Dembið öllu í blandarann og þeytið þar til allt er orðið mjúkt og drykkurinn fagurgrænn. Krakkavænn spínatdrykkur  Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is E F LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ön nu n Velkomin í okkar hóp! Skráning í síma 581 3730 eða jsb@jsb.is Komdu þú getur þetta líka! Næstu námskeið hefjast 8. október Frábær árangur á yfirstandandi TT námskeiðum Tölurnar tala skýru máli! Mótun BM Áhersla lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsburð. Mótandi æfingar fyrir kvið, rass- og lærvöðva. Fit Form 60 og 75 ára+ Alhliða líkamsrækt sem stuðlar að auknu þreki, þoli, liðleika og frábærri líðan. Opna kerfið 1-2-3 Bjóðum röð af 30 mínútna krefjandi tímum í opna kerfinu. Einkaþjálfun Þjálfarar JSB eru fagmenn og vita nákvæmlega hvað þarf til að ná settum markmiðum og aðstoða við aðhald ef þess er óskað. Kynntu þér fjölbreytt úrval af námskeiðum og opnum tímum á jsb.is Krafturinn, gleðin og ánægjan ekki síður FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 . o k tó b e r 2 0 1 7 0 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 4 -2 E 1 0 1 D E 4 -2 C D 4 1 D E 4 -2 B 9 8 1 D E 4 -2 A 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.