Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 6
EFTIR HVERJU ERTU AÐ BÍÐA? 6 stöðvar · 3 sundlaugar · reebokfitness.is 6.540 KR. ENGIN BINDING Á MÁNUÐI Bandaríkin Árás Stephens Padd­ ock, 64 ára heimamanns, á gesti tónlistarhátíðar við Mandalay Bay hótelið í Las Vegas í Bandaríkjunum er sú mannskæðasta þar í landi í að minnsta kosti 68 ár. Paddock hóf skothríð af 32. hæð hótelsins niður á götu þar sem tónlistarhátíðin fór fram og drap að minnsta kosti 58 manns. Þá særði hann einnig 515 hið minnsta. Mannskæðasta árás sama tíma­ bils hafði til þessa verið árás Omars Mateen á hinsegin skemmtistaðinn Pulse í Orlando, Flórída, í fyrra. Myrti Mateen 49 og særði 58. Samanlögð tala særðra og myrtra eftir árás Paddocks er því að minnsta kosti 573 á meðan Mateen myrti og særði 107. Vefsíðan Gun Violence Archive, sem heldur utan um allar fjöldaskotárásir í Bandaríkjunum, hélt því fram í gær að árásin væri sú 273. í Bandaríkjunum í ár. Fjölda­ skotárásir eru skotárásir þar sem að minnsta kosti fjórir eru skotnir á sama stað og tíma. Paddock svipti sig lífi á hótelher­ bergi sínu á Mandalay Bay og er hann einn grunaður um verknaðinn. Samkvæmt lögreglunni í Las Vegas fannst fjöldi skotvopna á herbergi hans og er talið að Paddock hafi gist þar síðan 28. september. Lögregla hefur ekki sagst rannsaka árásina sem hryðjuverk, ástæður Paddocks fyrir árásinni séu enn óþekktar og hann ekki talinn tengj­ ast neinum hryðjuverkasamtökum. „Við höfum ekki hugmynd um gildi hans og skoðanir,“ sagði Joe Lomb­ ardo lögreglustjóri og bætti síðar við: „Það eru ákveðnir þættir sem tengj­ ast hryðjuverkum aðrir en örvingluð manneskja sem hugsar bara um að drepa fólk.“ Þrátt fyrir ummæli lögreglu­ stjórans lýstu hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamskt ríki yfir ábyrgð á árásinni. Á fréttasíðunni Amaq kemur ISIS því á framfæri að Paddock hafi verið hermaður sam­ takanna og hafi snúist til íslamstrúar fyrir nokkrum mánuðum. Í viðtali við CNN sagði Eric Padd­ ock, bróðir Stephens, að árásin hefði komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. „Hann var ekki trúaður, ópólit­ ískur. Hann var enginn byssuáhuga­ maður og ég skil ekki hvar hann fékk þessar byssur. Hann var bara gaur sem bjó í Mesquite, keyrði til Las Vegas til að spila fjárhættuspil. Hann gerði bara eitthvað. Borðaði burrito.“ Donald Trump Bandaríkjaforseti Hömlulaust ofbeldi í borg syndanna Hið minnsta 58 voru myrtir og 515 særðir þegar skotárás var gerð á hóteli í Las Vegas í gær. Árásin er sú mannskæðasta í áratugi í Banda- ríkjunum. Lögregla hefur ekki viljað skilgreina árásina sem hryðjuverk. Fimm Íslendingar voru á hótelinu Mandalay Bay og segjast skelkaðir en heilir. Stephen Paddock, 64 ára, skaut að tónleikagestum og tveimur klukkustundum síðar hafði hann svipt sig lífi. 1 | 2. október 2017 Stephen Paddock drap að minnsta kosti 58 á Mandalay Bay hótelinu í Las Vegas, Nevada 2 | 12. júní 2016 Omar Saddiqui Mateen drap 49 á hinsegin skemmti- staðnum Pulse í Orlando, Flórída 3 | 16. apríl 2007 Seung-Hui Cho drap 32 í Virginia Tech í Blacks- burg, Virginíu 4 | 14. desember 2012 Adam Lanza drap 27 í Sandy Hook grunn- skólanum í New- town, Connecticut 5 | 16. október 1991 George Hennard drap 23 í Luby's Cafeteria í Killeen, Texas 6 | 18. júlí 1984 James Huberty drap 21 á McDonald's í San Ysidro, Kaliforníu 7 | 1. ágúst 1966 Charl- es Joseph Whitman drap 18 í Texas-Háskóla í Austin, Texas 8 | 2. desember 2015 Syed Rizwan Farook og Tashfeen Malik drápu 14 í San Bernardino, Kaliforníu 9 | 20. ágúst 1986 Patrick Henry Sherrill drap 14 í Edmond, Oklahoma 10 | 5. nóvember 2009 Nidal Malik Hasan drap 13 í Fort Hood, Texas 11 | 3. apríl 2009 Jiverly Wong drap 13 í Bing- hamton, New York 12 | 20. apríl 1999 Eric Harris og Dylan Klebold drápu 13 í Columbine-skóla í Littleton, Colorado 13 | 18. febrúar 1983 Fai Mak, Benjamin Ng og Wai-Chiu Ng drápu 13 í Wah Mee-klúbbnum í Seattle, Washington 14 | 25. septem- ber 1982 George Banks drap 13, þar á meðal 5 börn sín, í Wilkes- Barre, Pennsylv- aníu 15 | 5. september 1949 Howard Unruh drap 13 í Cam- den, New Jersey 16 | 16. september 2013 Aaron Alexis drap 12 í herskipahöfninni í Washington 17 | 20. júlí 2012 James E. Holmes drap 12 í kvik- myndahúsi í Aurora, Colorado 18 | 29. júlí 1999 Mark Barton drap 12, meðal annars konu sína og tvö born í Atlanta, Georgíu 19 | 10. mars 2009 Michael McLendon drap 10, þar á meðal móður, ömmu, frænku og frænda, í Kinston Alabama vottaði fórnarlömbum samúð sína í gær. „Ég samhryggist fjölskyldum fórnarlamba árásarinnar í Las Vegas innilega. Megi guð blessa ykkur.“ Slíkt gerði fjöldi bandarískra stjórn­ málamanna einnig, til að mynda fyrrverandi forsetarnir Barack Obama og Bill Clinton. Í ræðu sinni í Hvíta húsinu sagði Trump að árásin hefði verið hel­ ber illska. „Við getum ekki skilið sársauka fjölskyldnanna eða missi þeirra. Við biðjum fyrir fjölskyldum hinna látnu, við erum til staðar fyrir ykkur.“ Demókratar vestanhafs kröfðust þess jafnframt að skotvopnalöggjöf landsins yrði hert, líkt og þeir hafa ætíð gert þegar stórar skotárásir eru gerðar, þó án mikils árangurs. „Harmleikir eins og þessi í Las Vegas hafa gerst of oft. Við verðum að taka umræðuna um hvernig er hægt að koma í veg fyrir byssuofbeldi. Við þurfum að gera það núna,“ sagði Elizabeth Warren, öldungadeildar­ þingmaður flokksins. Að minnsta kosti fimm Íslend­ ingar, sem allir eru starfsmenn fyrir­ tækisins NetApp, voru á Mandalay Bay hótelinu í fyrrinótt þegar árásin var gerð. Jón Þorgrímur Stefánsson fram­ kvæmdastjóri segir þrjú þeirra hafa verið á veitingastað á hótelinu þegar árásin hófst. „Við héldum fyrst að um flugelda væri að ræða, fórum út á svalirnar og sáum þá fyrst hvað var í gangi. Þetta var hræðilegt að sjá og upplifa,“ segir Jón. Hann segir sérsveitina hafa komið inn á hótelið með gríðarlegum látum. „Hún lét alla leggjast á grúfu og vera þannig í langan tíma,“ segir Jón og bætir því við að allir í íslenska hópnum séu heilir. „Skelkuð en heil.“ Soffía Theodóra Tryggvadóttir segir lífsreynsluna óhugnanlega og virkilega óþægilega en hún var uppi á herbergi þegar árásin hófst. „Sérsveitin ruddist inn til mín fyrir um klukkutíma, beinandi að mér byssum til að vita hvort ég væri að fela einhvern,“ segir Soffía en Frétta­ blaðið talaði við hana í gærmorgun. thorgnyr@frettabladid.is Mannskæðustu skotárásir í Bandaríkjunum frá 1949 1 2 4 5 6 8 7 9 10 11 12 17 13 3 18 19 14 15 16 Vitni að voðaverk- unum í Vegas voru skiljanlega í áfalli Samanlögð tala særðra og myrtra eftir árás Paddocks er því að minnsta kosti 573. 3 . o k t ó B e r 2 0 1 7 Þ r i Ð J U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð 0 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 4 -3 7 F 0 1 D E 4 -3 6 B 4 1 D E 4 -3 5 7 8 1 D E 4 -3 4 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.