Fréttablaðið - 03.10.2017, Page 8
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is • www.sorg. is • nydogun@nydogun. is
Þann 4. október kl. 20 í safnaðarheimili Háteigskirkju
fjallar Hrannar Már um eigin reynslu af sorg
og hvað hefur hjálpað honum að lifa með sorginni.
Einnig mun Nicolas tala um hvernig hann
hefur öðlast frelsi þrátt fyrir að vera faðir fíkils.
Kynntir verða stuðningshópar fyrir aðstandendur
þeirra sem látist hafa af völdum fíknar.
Ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar á www.sorg.is
Samtal um
fíknidauða
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Frumkvöðla- og
nýsköpunarmennt
Rannís býður til opinnar málstofu um frumkvöðla-
og nýsköpunarmennt mánudaginn 9. október kl. 13-17
í sal Samiðnar, Borgartúni 30, 6. hæð.
Þrír eistneskir sérfræðingar kynna slíka kennslu í sínu
landi og farið verður yfir sviðið hérlendis. Að lokum verður
efnt til samræðna um hvað þjóðirnar tvær geta lært hvor
af annarri.
Umræðurnar fara fram á ensku.
Nánari upplýsingar og skráning
á www.rannis.is
Málstofa 9. október
AÐA L S K I P U L AG
K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R
2 0 1 3 – 2 0 3 0
Keflavíkurflugvelli, 25. september 2017
F.h. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar
Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og Landhelgisgæslan f.h. utanríkisráðuneytisins
samþykktu þann 1. apríl 2016 tillögu að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030.
Skipulagstillaga var auglýst 12. janúar til 23. febrúar 2016. Alls bárust 17 umsagnir
og athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu og þar af voru 7 aðilar sem gerðu engar
athugasemdir. Skipulagsnefnd fellst á afgreiðslu á framkomnum athugasemdum.
Brugðist var við ábendingum og ákveðnar breytingar gerðar auk þess sem breytingar
voru gerðar vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við afgreiðslu á auglýstri og
samþykktri tillögu m.a. um farþegaspá, byggingarheimildir og áfangaskiptingu þeirra.
Samþykkt tillaga með lagfæringum hefur verið send til Skipulagsstofnunar, umhverfis-
ráðherra og utanríkisráðherra til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta
snúið sér til skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar.
spánn Ísland myndi ekki taka
afstöðu til mögulegrar sjálfstæðis-
yfirlýsingar Katalóníu nema með
aðkomu Alþingis, segir Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra og
telur ekki æskilegt að starfsstjórn
taki sjálfstæða afstöðu í málum eins
og þessu, að svo stöddu. Aðspurð
segir Jóna Sólveig Elínardóttir, for-
maður utanríkismálanefndar, að
nefndin hafi ekki komið saman
vegna málsins.
„Evrópusambandið er aumingi
og gerir ekki neitt og getur ekkert
gert,“ segir Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrverandi utanríkisráðherra,
sem hefur verið með annan fótinn
á Spáni undanfarin ár. Jón er ekki
bjartsýnn á framhaldið. Madrid hafi
haft um tvær leiðir að velja. Annars
vegar viðræður að siðaðra manna
hætti eða valdbeitingu.
„Nú eru þeir búnir að brenna brýr
að baki sér með því að siga gömlu
fasistalögreglunni á íbúa Kata-
lóníu og þar með eru þeir búnir að
eyðileggja sinn málstað og það má
þakka fyrir ef þetta endar ekki í
blóðugri borgarastyrjöld aftur.“
Jón segir nauðsynlegt að skilja
sjálfstæðisþrá Katalóníumanna í
sögulegu ljósi og bendir á að Spán-
verjar hafi aldrei gert tímabil fas-
ismans upp, heldur hafi þeir haldið
sig við sáttmála gleymskunnar. „Í
honum fólst að láta hina dauðu
grafa hina dauðu; gleyma fortíðinni
og einblína bara á nýja framtíð lýð-
ræðislegs Spánar.“ Jón segir þennan
sáttmála vera að trosna upp núna.
„Það er varla til sú fjölskylda á
Spáni sem ekki hefur átt um sárt að
binda vegna Franco, og PP [Þjóðar-
flokkurinn] er náttúrulega bara arf-
taki fasistanna,“ segir Jón og bætir
við: „Lögreglan, kirkjan, herinn og
landeigendaklíkan. Það er PP og
þeir eru harðir á því að það má ekki
opna grafir fortíðarinnar og þess
vegna eru sárin ógróin.“
Jón Baldvin telur einu færu leið-
ina vera að alþjóðasamfélagið þrýsti
á og beiti sér fyrir samningum og
bendir á að að Evrópusambandið
(ESB) var stofnað til að halda frið
á stríðshrjáðu meginlandi Evrópu.
„Þar af leiðir að ESB á auðvitað í
ljósi þessa uppruna og eðlis banda-
lagsins að hlutast til um að koma á
friði og samningum,“ segir Jón, en
er ekki vongóður um að bandalagið
beiti áhrifum sínum.
„Þeir geta í besta falli boðist til
að miðla málum. Ég veit ekki einu
sinni hvort þeir hafa döngun í sér til
þess. Lögfræðingarnir munu segja
nei, Spánn er fullgilt aðildarríki og
það er engin miðstjórn í Evrópu-
sambandinu sem hefur heimild til
að blanda sér í málefni aðildarríkja.
Valdamestu ríki Evrópusambands-
ins eru gömul nýlenduríki og ég á
nú ekki von á að þau beiti sér fyrir
milligöngu Evrópusambandsins í
málinu.“
adalheidur@frettabladid.is
Evrópa ekki líkleg til
stórræða í Katalóníu
Aðkomu Alþingis þarf til að Ísland taki afstöðu í málefnum Katalóníu, segir
utanríkisráðherra. Evrópusambandið er aumingi, segir Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrverandi ráðherra, sem hefur litla trú á gömlu nýlenduríkjum Evrópu.
Stúdentar mótmæltu lögregluofbeldi í Barcelona í gær. Framferði stjórnvalda í Madrid hefur verið mótmælt um alla
Evrópu. Stjórnvöld í Katalóníu segjast enn vilja ná friðsamlegu samkomulagi við þau í Madrid. FréttaBlaðið/EPa
Evrópusambandið
er aumingi og gerir
ekki neitt. Þeir geta í besta
falli boðist til að miðla
málum. Ég veit ekki einu
sinni hvort þeir hafa döngun
í sér til þess.
Jón Baldvin
Hannibalsson,
fyrrverandi
utanríkisráðherra
3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
4
-3
3
0
0
1
D
E
4
-3
1
C
4
1
D
E
4
-3
0
8
8
1
D
E
4
-2
F
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K