Fréttablaðið - 03.10.2017, Page 22
Kraftvélar fóru nýverið að bjóða Iveco Daily atvinnu-bíla með Achleitner fjór-
hjóladrifi. Um er að ræða mjög öfl-
ugt fjórhjóladrif þar sem bílarnir
eru með sídrifi og með millikassa
og háu og lágu drifi. „Við finnum
fyrir auknum áhuga á Iveco Daily
með Achleitner fjórhjóladrifi,
bílarnir eru með læsingum á
millikassa og læsingum á fram- og
afturdrifi. Auk þess sem þeir eru
búnir undirvagnsvörn og sjö senti-
metra upphækkun,“ segir Ívar Þór
Sigþórsson, sölustjóri atvinnubif-
reiða hjá Kraftvélum. Í Achleitner
fjórhjóladrifsútfærslunni er hægt
að velja á milli þess að hafa Daily
beinskiptan eða með átta gíra HI-
MATIC sjálfskiptingu frá ZF.
„Við erum nú þegar með í
pöntun og afhendingu Iveco Daily
sendi-, pall- og flokkabíla með
Achleitner fjórhjóladrifi,“ upp-
lýsir Ívar. Hann segist finna fyrir
því að viðskiptavinir þurfa á að
halda atvinnubílum með öflugu
fjórhjóladrifi. „Margir af okkar við-
skiptavinum eru að nota bílana við
mjög krefjandi aðstæður og í þeim
tilfellum henta hefðbundnir eind-
rifs – og fjórhjóladrifsbílar ekki
nægjanlega vel. Þar sem Achleitner
drifkerfið er með millikassa og
læsingum þá nýtast bílarnir við-
skiptavinum okkar mun betur.“
Ívar nefnir í því sambandi að
bæjarfélög eru að nota Iveco Daily
bílana í snjómokstur. „Það eru
rekstraraðilar sem þurfa að koma
vöru og þjónustu til skila við allar
aðstæður og þá skiptir máli að
hafa sterkbyggða bíla með öflugan
drifbúnað.“ Að sögn Ívars eru Iveco
Daily einu bílarnir í sínum flokki
sem byggðir eru á heilli grind og er
hægt að fá þá í mjög fjölbreyttum
útfærslum frá 3.500-7.200 kílóa
heildarþyngd.
Iveco Daily er hægt að fá með allt að 6,2 m palli.
Daily sendibíll er í boði með allt að 19,6 rúmmetra flutningsrými.
Daily vinnuflokkabíll með Achleitner fjórhjóladrifi tilbúinn í átök.
Kynning:
Reynast vel við
íslenskar aðstæður
Kraftvélar eru umboðsaðilar fyrir Iveco atvinnubíla sem
hafa reynst einstaklega vel við íslenskar aðstæður.
Í hvaða nýjum bílum skyldu 10 bestu vélar heims vera? Til að finna það út leggur bandaríski
bílavefurinn WardsAuto.com á sig
mikla vinnu á hverju ári og birtir í
kjölfarið lista yfir þær 10 bestu að
sínu mati. WardsAuto.com hefur
gefið út þennan lista frá árinu
1995, eða í 22 ár. Þær vélar sem
koma til greina á hverju ári þurfa
annaðhvort að vera glænýjar
eða að á þeim hafa verið gerðar
umtalsverðar breytingar. Lagt
er mat á afl þeirra, tog, eyðslu,
tækni sem notuð er, hversu mikið
og fagurt hljóð þær láta frá sér
og þær bornar saman við vélar
annarra framleiðenda með svipað
sprengirými. Þetta er fyrsta árið
sem engin af 10 bestum vélum
ársins er V8 vél og segja má að 6
strokka vélar hafi leyst þær fag-
mannlega af hólmi. Af þessum 10
vélum er notast við forþjöppur
í 7 þeirra og eiga þær greini-
lega stóran þátt í aflaukningu og
minni eyðslu þeirra. Bílarnir sem
vélar þessar eru í þetta árið eru
eftirfarandi:
BMW M240i – 3,0 lítra og 6 strokka
bensínvél með forþjöppu (335 hö.)
Chevrolet Volt – 1,5 lítra bensínvél
sem hleður rafmagni á rafmótora
bílsins (149 hö.)
Chrysler Pacifica Hybrid – 3,6 lítra
og 6 strokka Pentastar V6 bensínvél
(260 hö.)
Ford Focus RS – 2,3 lítra og 4
strokka bensínvél með forþjöppu
(350 hö.)
Honda Accord Hybrid – 2,0 lítra og
4 strokka bensínvél (212 hö.)
Hyundai Elantra Eco – 1,4 lítra og 4
strokka bensínvél með forþjöppu
(128 hö.)
Infinity Q50 – 3,0 lítra og 6 strokka
bensínvél með 2 forþjöppum (400
hö.)
Mazda CX-9 – 2,5 lítra og 4 strokka
bensínvél með forþjöppu (250 hö.)
Mercedes Benz C300 – 2,0 lítra og 4
strokka bensínvél með forþjöppu
(241 hö.)
Volvo V60 Polestar – 2,0 lítra og 4
strokka bensínvél með forþjöppu
og keflablásara (362 hö.)
Mynd: Vélin í Infinity Q50 er 400
hestöfl.
10 bestu vélarnar
Í fyrsta skiptið engin V8 vél og sjö
þeirra með forþjöppu.
Lincoln, lúxusbílaarmur Ford hefur ekki gengið sem best í sölu bíla sinna á þessum áratug
og hefur verið með að meðaltali um
0,6% markaðshlutdeild á banda-
rískum bílamarkaði þennan áratug.
Lincoln má muna fífil sinn fegurri,
en fyrirtækið var með 1,5% hlut-
deild árið 1991 og var alltaf vel yfir
1% markinu 15 síðustu ár síðustu
aldar.
Nú er þó ljós í myrkrinu því nýr
Lincoln Continental selst mjög
vel enda þar mjög fagur bíll á ferð.
Margir hafa heillast af útliti hans
og heimsótt sýningarsali Lincoln
í kauphugleiðingum en komist að
því að sú útfærsla hans sem freistar
er of dýr og fyrir vikið hafa margir
þeirra keypt ódýrari gerðir Lincoln
bíla.
Continental er dýr
Þannig hefur Continental dregið
til sín viðskiptavini sem í upphafi
ætluðu ekki að kaupa minni gerðir
Lincoln-bíla en endað á því að
kaupa einhvern þeirra. Grunnútgáfa
Lincoln Continental kostar 45.925
dollara en dýrasta og best búna gerð
hans kostar heila 82.000 dollara.
Margir þeir sem ætluðu að fjárfesta í
Continental hafa endað á að kaupa
MKZ fólksbílinn eða MKC jeppann.
Sala Lincoln jókst um 3,2% á fyrstu
8 mánuðum ársins á tíma þar sem
lúxusbílamarkaðurinn hefur staðið
í stað á milli ára. Lincoln Continen-
tal selst líka mjög vel í Kína og hefur
það hjálpað Lincoln mikið. Hjá
sumum af sölustöðum Lincoln í
Bandaríkjunum eru bílastæðin full
af notuðum BMW 7-línu bílum sem
kaupendur Lincoln Continental bíla
hafa sett uppí kaupin.
Lincoln slær í gegn
Viðskiptavinir sem ætluðu að kaupa Continental kaupa á
endanum ódýrari Lincoln-bíla. Setja BMW upp í kaupin.
Lincoln Continental árgerð 2018.
3 . o K t ó b e r 2 0 1 7 Þ r i Ð J U D A g U r8 b Í L A r ∙ F r É t t A b L A Ð i Ð
Bílar
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
4
-2
E
1
0
1
D
E
4
-2
C
D
4
1
D
E
4
-2
B
9
8
1
D
E
4
-2
A
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K