Fréttablaðið - 03.10.2017, Síða 26
Tesla hefur áður hætt
framleiðslu ódýrustu
gerðar Model S bílsins.
Tyrkland / Ísland 6. okt. Kl. 18:45 − Ísland / Kosóvó 9. okt. Kl. 18:45
4 dekk frá 24.000.-
Öll helstu fólksbíla og Jeppadekk
Fjölbreytt þjónusta
ÁFRAM ÍSLAND
Vaxtalaust í allt að 6 mánuði
DREIFÐU GREIÐSLUNUM
SKEMMTILEGA ÓDÝR
OPIÐ: VIRKA DAGA 10 - 19 - HELGAR 12 - 16
Nýbýlavegur 2 Kópavogi
Sími: 578 7474 - www.dekkverk.isDaimler, móðurfyrirtæki Mercedes Benz, hefur fjárfest í ísraelska fyrir
tækinu StoreDot sem er að þróa
rafhlöður sem má fullhlaða á fimm
mínútum. StoreDot hefur tekist að
safna 6,4 milljarða fjárfestingum
til þróunar þessara rafhlaða frá
aðilum eins og Samsung og Roman
Abramovitsj eiganda Chelsea og
nú Benz. StoreDot kallar þessar
byltingarkenndu rafhlöður Flash
Battery og er þeim ætlað að leysa
af hólmi lithium ion tæknina í
framleiðslu rafhlaða. Mercedes
Benz hefur þá trú að þessar nýju
rafhlöður muni í komandi framtíð
verða í rafmagnsbílum sínum.
Daimler hefur ekki lagt í vana sinn
að fjárfesta mikið utan heima
landsins Þýskalands og ætti það að
sýna hve mikla trú fyrirtækið hefur
á þessari nýju tækni StoreDot.
Benz fjárfestir í
hleðslutækni
Það er þekkt að bílafyrirtæki sem
tilheyra sömu bílafjölskyldu noti
sömu íhluti, svo sem undirvagna.
Bæði Dodge og Maserati tilheyra
Fiat Chrysler bílafjölskyldunni
og þar á bæ hefur verið ákveðið
að Dodge Charger muni fá sama
undirvagn og er nú undir Maserati
Ghibli bílnum. Til stóð reyndar
að margir af bílum Fiat Chrysler
Automobiles myndu fá undir
vagninn frá Alfa Romeo Giorgio,
en það verður ekki í tilfelli Dodge
Charger. Bæði Dodge Charger
og Challenger munu fá andlits
lyftingu á núverandi kynslóð
árið 2019 og ný kynslóð þeirra
beggja verður kynnt árið 2021.
Það verður þá sem Dodge Charger
mun fá sama undirvagn og Mase
rati Ghibli bíllinn. Dodge Journey
bíllinn mun fá sama undirvagn og
Alfa Romeo Giorgio og mun hann
koma á markað árið 2019 og verða
framleiddur á Ítalíu og sá bíll mun
fá sömu vélar og finnast núna í Alfa
Romeo Stelvio sportjeppanum.
Bílgerðum Dodge verður fækkað
á næstunni og mun bílar eins og
Dart og Viper hverfa af sjónar
sviðinu.
Dodge Charger
fær undirvagn
Maserati Ghibli
Daimler fjárfesti utan Þýskalands.
Dodge Charger
Hjá Tesla hefur tekin ákvörðun um
að hætta framleiðslu núverandi
ódýrustu gerðar Model S bílsins,
þ.e. Tesla Model S 75. Áfram verður
hægt að panta Tesla Model S 75D
bílinn en hann er fjórhjóladrifinn
og kostar 74.500 dollara, en sá
afturhjóladrifni kostaði 69.500
dollara. Síðasti mögulegi pönt
unardagur á Model S 75 var 24.
september. Einhverjir gárungar
hafa bent á að þessi ákvörðun
Tesla sé úthugsuð á þann veg
að gefa viðskiptavinum aðeins
nokkra daga til kaupa á þessari
ódýrustu gerð Model S til að hressa
við sölutölurnar rétt fyrir lokun
þriðja ársfjórðungs þessa árs. Með
þeirri ákvörðun Tesla að hætta
með einu afturhjóladrifnu útgáfu
Model S stendur aðeins Model 3
bíllinn eftir með afturhjóladrifi.
Tesla hefur áður hætt fram
leiðslu ódýrustu gerðar
Model S bílsins, eða Model
S 65, sem þá var með
aflminnstu gerð rafhlaða
sem í boði var þá í Model
S. Frá því var Model S 75
með minnstu rafhlöðuna,
en nú er það Model S 85
með 85kWh rafhlöðu.
Tesla hættir framleiðslu Model S 75
Tesla bíll á
fleygiferð.
3 . o k T ó B e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r12 B í l A r ∙ F r É T T A B l A Ð I Ð
Bílar
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
4
-3
C
E
0
1
D
E
4
-3
B
A
4
1
D
E
4
-3
A
6
8
1
D
E
4
-3
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K