Fréttablaðið - 03.10.2017, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI, ARNARBAKKA,
GLÆSIBÆ OG STAÐARBERGI
Guðmundar
Steingrímssonar
BAkþAnkAR
Það eru ákveðin rök fyrir því að Íslendingar ættu að hætta að miða tímatal sitt við
fæðingu Krists og miða frekar við
komu Costco. Við erum þá að upp-
lifa árið núll eftir Costco. (Eða árið
eitt, ef menn vilja taka það rifrildi).
Í samfélagi fákeppninnar hefur
koma Costco valdið ævintýra-
legum straumhvörfum.
Í fyrsta lagi. Ég tók til í búrinu
þegar Costco kom. Ég veit að
margir aðrir gerðu það líka. Vör-
urnar þurfa sitt pláss. Costco hefur
þannig haft jákvæð áhrif á skipulag
heimila og þroskað rýmisgreind.
Í öðru lagi. Staða heimilisins
varðandi klósettpappír hefur aldr-
ei verið betri. Þetta hefur góð áhrif
á heimilislífið. Fólk er rólegra.
Í þriðja lagi. Stærð innkaupa-
karfanna í Costco elur Íslending-
um auðmýkt. Þær eru svo stórar að
manni finnst maður hafa minnkað.
Eins er snjallt að láta stærstu
flatskjáina vera það fyrsta sem
mætir manni þegar maður kemur
inn. Þá er maður endanlega eins og
Hobbiti. Það er okkur öllum hollt.
Í fjórða lagi. Með Costco kom
urmull af nýjum umræðuefnum,
sem er kærkomið í fásinninu. Í stað
þess að tala um Sigmund Davíð er
hægt að tala um það hvað jarðar-
berin eru rosaleg eða afmæliskök-
urnar ódýrar eða hvort fólk hafi
smakkað túnfiskinn.
Í fimmta lagi. Ég hjó eftir því að
yfirmaður Costco sagði að versl-
unin væri að vinna með bændum
að því að bæta nautakjötið. Takið
eftir þessu: VINNA MEÐ?! Þetta er
ótrúlegt. Íslendingar hafa hingað
til annaðhvort rifist við bændur
eða rifist um bændur. Aldrei unnið
með.
Þetta er nýtt. Það er spurning
hvort það sé ástæða til að prófa
þetta líka með banka og trygginga-
félög. Nei, ég segi svona.
Árið núll
kæli- og
02–08 okt.
frystidagar
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
4
-0
B
8
0
1
D
E
4
-0
A
4
4
1
D
E
4
-0
9
0
8
1
D
E
4
-0
7
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K