Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 2
Veður Í dag verða austan 8 til 13 metrar á sekúndu, en 13 til 18 allra syðst á landinu. Það er útlit fyrir rigningu nokkuð víða, en þurrt norðanlands. sjá síðu 22 Minningartónleikar á Gauknum Hljómsveitin Great Grief var á meðal þeirra sem spiluðu á Gauknum í gær á tónleikum sem báru heitið Stopp. Markmið tónleikanna var að stöðva fáfræði og fordóma gagnvart geðsjúkdómum og fólk sem mætti var hvatt til að sýna samhug, hlusta á hugvekju, njóta tónleikanna og minnast þeirra sem fallið hafa frá. Frítt var á tónleikana en frjálsum framlögum var safnað til styrktar sjálfsvígsforvarnarsamtökunum Pieta. Fréttablaðið/Ernir sAMFÉLAG Þrír Siglfirðingar ræða nú við yfirvöld í Fjallabyggð um að hefja hinsegin fræðslu í skólum bæjarfélagsins. Aðstandendur verk- efnisins vonast til þess að hægt verði að hefja kennslu á þessu skólaári. „Þetta byrjaði eiginlega með því að síðastliðin þrjú ár höfum við hringt niður á bæjarstjórnarskrif- stofur til að biðja um að flagga hinsegin fánanum í tengslum við hinsegin daga. Þá komumst við að því að slíkir fánar eru ekki til í bæjarfélaginu,“ segir Hólmfríður Ósk Norðfjörð, einn aðstandenda verkefnisins. Í vor gekk Hólmfríður að eiga Birgittu Þorsteinsdóttur en auk þeirra stendur Sunna Björk Vals- dóttir að baki fræðslunni. Báðar eru þær uppaldir Siglfirðingar og hafa búið þar stærstan hluta ævi sinnar. Fyrir athöfnina fengu þær hin- segin fánann lánaðan frá mennta- skólanema í bænum og var honum flaggað fyrir utan kirkjuna. „Eftir þá athöfn komu ofboðslega margir til okkar og spurðu okkur um hitt og þetta og meðal annars hvort við værum ekki til í að vera með hinsegin fræðslu fyrir börn og unglinga,“ segir Hólmfríður. Ekkert slíkt hafi verið í boði í Fjallabyggð síðastliðin ár. „Það eru allavega tveir transstrákar sem búa hérna og svo eru mjög margar lesbíur hérna einnig. Fræðsl- an hefur hins vegar ekki verið mikil,“ segir Hólmfríður. „Ég starfa sjálf í skólanum og fæ stundum spurningar á borð við hvers vegna önnur okkar sé ekki með bindi. Þá kemur í ljós að þetta er málefni sem er ekkert endi- lega rætt á öllum heimilum.“ Hólmfríður telur að það væri gott að einhver úr byggðarlaginu stæði að fræðslunni. Það sé afar mikil- vægt að börn og unglingar geti haft einhvern til að ræða við um það sem þau séu að upplifa. Meðal annars hafi verið rætt um, sé áhugi fyrir slíku, að þegar námsefnið og verkefnið er tilbúið að bjóða einn- ig upp á fræðslu í sveitarfélögum í nágrenninu. Hún viti þó til þess að einhver fræðsla hafi verið í Dal- víkurbyggð undanfarin ár. Nýr deildarstjóri fræðslu-, frí- stunda- og menningarmála, Ríkey Sigurbjörnsdóttir, tók við á árinu og var verkefninu vísað til meðferðar hennar á fundi bæjarráðs í vikunni. „Við vonumst til þess að hægt verði að hefja fræðslu á þessu skólaári,“ segir Hólmfríður að lokum. johannoli@frettabladid.is Vilja hinsegin fræðslu í skólum Fjallabyggðar Þrír íbúar Siglufjarðar vonast til þess að unnt verði að bjóða upp á hinsegin fræðslu í bæjarfélaginu fyrir lok þessa skólaárs. Lítið hefur verið um slíka fræðslu undanfarin ár. Verkefnið er sem stendur í vinnsluferli með fræðslustjóra. Stefnt er á að hefja hinsegin fræðslu seinna á árinu. Fréttablaðið/StEFán kæli- og Frí Heimsending á öllum kæli- og frystitækjum 02–08 okt. frystidagar Það eru allavega tveir transstrákar sem búa hérna og svo eru mjög margar lesbíur hérna einnig. Fræðslan hefur hins vegar ekki verið mikil. Hólmfríður Ósk Norðfjörð, einn aðstandenda verkefnisins Viðskipti Björn Ingi Hrafnsson er orðinn eigandi eins rótgrónasta veitingahúss miðborgarinnar, Arg- entínu steikhúss. Þetta staðfesti hann í samtali við Fréttablaðið. Arg- entína steikhús var fyrr á þessu ári flutt yfir á kennitölu félagsins Bos ehf. sem stofnað var í febrúar síðast- liðnum. Steikhúsið var áður í eigu félagsins Potts ehf. sem Kristján Þór Sigfússon átti en hann hafði verið annar eigenda Argentínu nánast frá upphafi, eða frá árinu 1990. Eftir að Bos ehf. var stofnað af KPMG undir nafninu AB596 ehf. tók hæstaréttarlögmaðurinn  Sig- urður G. Guðjónsson  við félag- inu nokkrum dögum síðar. Nafni þess var breytt í Bos ehf., Sigurður skráður stjórnarmaður og prókúru- hafi þess  og dóttir hans, Edda Sif Sig urðar dóttir, ráðin framkvæmda- stjóri samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár. Sigurður þvertekur fyrir að hafa nokkra aðkomu að félaginu í dag en staðfestir að hafa komið að því að kaupa eignir Arg- entínu á sínum tíma. Engar tilkynn- ingar um breytingar á stjórn félags- ins hafa þó verið tilkynntar. Félagið Pottur var svo úrskurðað gjaldþrota í mars en taprekstur hafði verið á Argent- ínu  undanfarin ár  og skulda- byrðin þung. Kristján Þór segir að aðkomu hans að Argentínu sé nú lokið.  – smj Björn Ingi kaupir Argentínu steikhús björn ingi Hrafnsson. BAndAríkin Kvikmyndaframleið- andinn Harvey Weinstein hefur á þrjátíu ára skeiði margoft verið sakaður um kynferðislega áreitni. New York Times greindi frá þessu í gær. Fram kemur að á þessu tíma- bili hafi Harvey, sem framleiddi til dæmis Shakespeare in Love, samið við að minnsta kosti átta konur um skaðabótagreiðslur. Í fréttinni kemur fram að tugir fyrr- verandi og núverandi starfsmanna Weinsteins hafi vitað af gjörðum hans og að allir starfsmenn væru látnir skrifa undir samninga sem  banna þeim að gagnrýna forsvarsmenn fyrirtækisins opinberlega. Ein kvennanna sem saka Wein- stein um kynferðislega áreitni er leikkonan Ashley Judd. „Konur hafa talað um Harvey sín á milli lengi. Nú er kominn tími til að eiga samtalið fyrir augum almennings,“ hefur blaðið eftir Judd. – þea Hulunni svipt af áreitni Weinsteins 6 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F Ö s t u d A G u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A ð i ð 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E A -5 2 A 8 1 D E A -5 1 6 C 1 D E A -5 0 3 0 1 D E A -4 E F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.