Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 6

Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 6
Heilbrigðismál Helmingur, eða 51 prósent, þeirra sem afstöðu taka vill að nýr Landspítali verði á Hringbraut. Þá vill þriðjungur, eða 35 prósent, að hann verði á Vífils- stöðum en 14 prósent vilja að hann verði annars staðar. Þetta sýna nið- urstöður skoðanakönnunar Frétta- blaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Þeir sem telja að hann eigi að vera annars staðar sögðu flestir að hann ætti að vera í Fossvogi, nokkrir sögðu að hann ætti að vera einhvers staðar annars staðar í Reykjavík en enn aðrir sögðu að hann ætti að vera í Garðabæ. Áætlað er að framkvæmdir hefjist á vormánuðum 2018 við byggingu nýs spítala og er fullnaðarhönnun vel á veg komin. Útboð vegna hönn- unar á nýju rannsóknahúsi stendur yfir. „Nú líður senn að því að grunn- teikningar meðferðarkjarnans, sem er nýi spítalinn, verði sendar til skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar til umsagnar og samþykktar. Um er að ræða umfangsmikið verkefni, það stærsta á borði borgarinnar síðan Harpa var byggð,“ sagði Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Nýja Landspítal- ans, í blaði um Hringbrautarverk- efnið sem dreift var í gær. Stjórnmálamenn hafa haft ólíkar skoðanir á staðsetningu spítalans og hefur Framsóknarflokkurinn meðal annars gagnrýnt að reisa eigi spítalann við Hringbraut. „Ég tel að þessi staðsetning sem stjórnvöld eru búin að velja, séu hreinlega mistök,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Fram- sóknarflokksins, í viðtali við Bylgj- una í fyrradag. Hún segir umferð- aræðar miðsvæðis í borginni vera sprungnar. Könnun Fréttablaðsins var gerð þannig að hringt var í 1.354 manns þar til náðist í 800 samkvæmt lag- skiptu úrtaki 2. og 3. október. Svar- hlutfallið var 59,1 prósent. Þátttak- endur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvar vilt þú að nýr Landspítali sé staðsettur? Alls tóku 80 prósent afstöðu til spurningar- innar, 18 prósent sögðust óákveðin en 1 prósent svaraði ekki. – jhh Helmingur vill spítala við Hringbraut Lilja Alfreðsdóttir. 35% vilja að nýr spítali verði á Vífilsstöðum. – fáðu meira út úr fríinu Stökktu Hotel Agua Azul Marconfort Essence Hotel Melia Benidorm SÓL Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 84 3 77 SIKILEY BENIDORM BENIDORM BENIDORM Frá kr. 109.995 m/morgunmat Netverð á mann frá kr. 109.995 m.v. 2 í herbergi. 9. október í 10 nætur. Frá kr. 92.645 m/fullt fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 92.645 m.v. 2 í herbergi. 10. október í 7 nætur. Frá kr. 124.225 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 124.225 m.v. 2 í svítu. 13. október í 11 nætur. Frá kr. 94.895 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 94.895m.v. 2 í herbergi. 20. október í 7 nætur. Frá kr. 92.645 OKTÓBER á flugsæti m/gistingu FY RI R2 1 ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI Hotel Best Jacaranda TENERIFE Frá kr. 146.570 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 146.570 m.v. 2 í herbergi. 25. október í 12 nætur. FY RI R2 1 FY RI R2 1 SÍÐUSTU SÆTIN! Allt að 20.000 kr. afsláttur á mann Allt að 25.000 kr. afsláttur á mann Heilbrigðismál Sjúklingar komu rúmlega fimm hundruð þúsund sinnum til sérgreinalækna á samn- ingi við Sjúkratryggingar Íslands á síðasta ári og hefur komum til sérgreinalækna fjölgað jafnt og þétt síðustu ár. Birgir Jakobsson landlæknir segir þetta ekki vera til marks um heilbrigði íslenska kerfisins heldur þvert á móti. Útgjöld Sjúkratrygginga Íslands til sérgreinalækna vegna komu sjúklinga hafa frá árinu 2014 aukist um einn og hálfan milljarð. Rúm- lega tólf milljörðum var varið úr ríkissjóði til sérgreinalækna. „Við erum ekki að fylgja íslensk- um heilbrigðislögum þegar við segjum að heilsugæsla eigi að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis- kerfinu. Líkast til er ástæða þess að aðgengi að heilsugæslu hefur verið slæmt en það hefur lagast allavega á höfuðborgarsvæðinu að undan- förnu,“ segir Birgir. Á sama tíma og aukið fjármagn rennur til sérgreinalækna bendir Birgir á að aðhaldskröfur eru hertar hjá Landspítala. „Þessi aukning til sérfræðilækna er mjög óæskileg. Bendir það til þess að við höfum verið að forgangsraða þessari grein heilbrigðismála á kostnað opinberrar þjónustu, það er bara þannig. Skýrsla Ríkisendurskoð- unar bendir einmitt á það líka að fjármagn hefur stóraukist í þennan málaflokk á kostnað opinberu þjónustunnar.“ Að mati Birgis er verið að byggja upp heilbrigðisþjónustu sem er ekki skilvirk fyrir þá þjónustu sem sjúklingar þurfa á að halda og er óheppileg. Sérgreinalæknar ættu ekki að vinna í hlutastarfi í opinberu þjón- ustunni og vinna á sama tíma sjálf- stætt á eigin stofu. „Ég vil meina að sérfræðingar ættu í auknum mæli að veita þjón- ustuna á göngudeildum sjúkrahúsa þar sem teymisvinna fleiri sérfræð- inga á sér stað. Þeir eru betur í stakk búnir til að mæta þeim kröfum sem sjúklingar vilja í teymisvinnu með öðrum. Einn sérfræðingur er van- máttugur þegar þarf að ræða flókin vandamál.“ sveinn@frettabladid.is Enn fjölgar komum til sjálfstætt starfandi lækna Hálf milljón koma til sérgreinalækna utan opinbera kerfisins á síðasta ári. Greiðslur SÍ í málaflokkinn hafa hækkað um einn og hálfan milljarð. Klíníkin við Ármúla 9 er heilsumiðstöð í eigu þeirra lækna sem þar starfa. FréttAbLAðið/Ernir Þessi aukning til sérfræðilækna er mjög óæskileg. Birgir Jakobsson, landlæknir 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E A -7 A 2 8 1 D E A -7 8 E C 1 D E A -7 7 B 0 1 D E A -7 6 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.