Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 8
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við embætti Sýslumannsins á höfuð
borgarsvæðinu vegna kosninga til Alþingis sem fram fara 28. október
2017 fer eingöngu fram í verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi á
2. hæð vesturenda frá og með laugardeginum 7. október 2017. Þar
verður opið alla daga milli kl. 10:00 og 22:00.
Á kjördag laugardaginn 28. október verður opið milli kl. 10:00 og 17:00
fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Spánn Fyrirhuguð sjálfstæðisyfir
lýsing Katalóna er í hættu. Stjórn
lagadómstóll Spánverja setti í gær
lögbann á fund katalónska þingsins
sem fara átti fram á mánudag og
sagði fundinn, og efni hans, brot á
stjórnarskrá Spánar.
Úrskurðurinn kom í kjölfar þess
að Sósíalistaflokkur Katalóníu
kærði ákvörðunina, ekki stjórnvöld
í Madrid. Flokkurinn er einkar and
vígur aðskilnaði frá Spáni.
Í úrskurði stjórnlagadómstólsins
kom fram að ef katalónska þingið
fengi að lýsa yfir sjálfstæði myndi
það brjóta á rétti þingmanna Sósíal
istaflokksins. Dómstóllinn úrskurð
aði kosningar síðasta sunnudags,
sem ofbeldi af hálfu lögregluþjóna
setti svartan blett á, einnig ólög
legar. Sú ákvörðun kom þó í kjölfar
kæru frá spænsku ríkisstjórninni.
Um níutíu prósent kusu með sjálf
stæði á sunnudaginn en kjörsókn
var rúmlega fjörutíu prósent.
Samkvæmt CNN er líklegt að
spænsk stjórnvöld myndu bregðast
við einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu
með því að svipta héraðið öllum
sjálfsstjórnarrétti.
Óvissan um framtíð bæði Kata
lóníu og Spánar hefur þó áhrif víðar
en á katalónska þinginu. Verð hluta
bréfa í spænsku kauphöllinni hefur
lækkað um nærri fimm prósent
frá því á sunnudag og hafa fá ríki í
heiminum átt jafnslæma viku þegar
kemur að verði hlutabréfa.
Kenneth Rapoza, viðskiptablaða
maður Forbes, túlkar tíðindin sem
svo að markaðsöflin séu að veðja
á að Katalónía verði sjálfstætt ríki.
Það kæmi sér illa fyrir Spán og
spænsk fyrirtæki þar sem Kata
lónía er næstfjölmennasta og eitt
auðugasta hérað Spánar.
Bankinn Sabadell, sem er með
höfuðstöðvar í Katalóníu, greindi
frá því í gær að verið væri að skoða
hvort hentugast væri að flytja bank
ann til einhvers annars héraðs á
Spáni vegna ástandsins. Var stjórn
fyrirtækisins kölluð óvænt saman í
gær til að ræða málið. Spænska dag
blaðið El País greindi frá því eftir
fundinn að ákveðið hefði verið að
flytja höfuðstöðvarnar til Alicante.
Slíkt hið sama hugleiðir Caixa
Bank, sem er með höfuðstöðvar
í Barcelona. Samkvæmt BBC er
helsta ástæða þessara vangaveltna
bankanna sú að ef Katalónía klyfi
sig frá Spáni myndu katalónsk fyrir
tæki ekki starfa innan evrusvæðis
ins né undir yfirsjón Seðlabanka
Evrópu.
Í samtali við CNN vildi talsmaður
CaixaBank ekki tjá sig um mögulega
flutninga en sagði að ráðist yrði í
nauðsynlegar aðgerðir þegar þeirra
væri þörf. Bankinn stefndi að því
að vernda hagsmuni viðskiptavina
sinna, hluthafa og starfsmanna.
Jafnframt segir í úttekt miðilsins
að takist Katalónum að kljúfa sig
frá Spáni sé líklegt að dyrnar að Evr
ópusambandinu lokist og öryggis
net sem eru til staðar fyrir banka
innan Evrópusambandsins geti
ekki verndað katalónska banka.
thorgnyr@frettabladid.is
Mikil óvissa um
framtíð Katalóníu
Stjórnlagadómstóll Spánar bannar katalónska þinginu að funda. Til stóð að
lýsa yfir sjálfstæði á mánudag. Úrskurðurinn kom í kjölfar kæru katalónskra
sósíalista, ekki spænskra yfirvalda. Markaðir veðja á að Katalónía fái sjálfstæði.
Ekki eru allir Katalónar á því að sjálfstæði sé góð hugmynd. Mótmælendur
veifuðu spænskum fánum í Barcelona í gær. Nordicphotos/AFp
Bandaríkin Repúblikanar í báðum
deildum bandaríska þingsins vilja
skoða hvort rétt væri að banna
byssuaukahlut sem lætur sjálfvirk
skotvopn skjóta hraðar. Slíkan auka
hlut notaði Stephen Paddock sem
myrti og særði á sjötta hundrað í Las
Vegas síðustu helgi.
Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, sagði í viðtali í gær
að það væri nauðsynlegt að skoða
málið. „Ég vissi ekki einu sinni að
þetta væri til fyrr en um síðustu
helgi. Við erum að átta okkur á
þessum búnaði,“ sagði Ryan.
John Cornyn, öldungadeildar
þingmaður flokksins, kallaði eftir
nefndarfundum um búnaðinn. „Mér
finnst undarlegt að það sé ólöglegt
að breyta hálfsjálfvirkum byssum
í sjálfvirkar en að þessi búnaður
sé ekki bannaður. Ég á fjölmargar
byssur, ég nota þær á veiðum og í
íþróttum og mér finnst það sjálfsögð
réttindi mín sem Bandaríkjamanns.
En ég skil ekki þennan búnað.“
Paddock festi búnaðinn á tólf
riffla. Svo virðist sem árásin hafi
verið skipulögð í þaula en í gær sagði
lögreglustjóri Las Vegas að Paddock
hafi líklega undirbúið flóttaleið frá
vettvangi árásarinnar. Aðspurður
hvort morðinginn hafi verið einn
að verki svaraði lögreglustjórinn:
„Maður verður að draga þá ályktun
af sönnunargögnum í málinu að
hann hafi fengið hjálp á einhverjum
tímapunkti.“ – þea
Opnir fyrir því að banna byssuaukahlut
paul ryan, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins. FréttABlAðið/EpA
6 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F Ö S t U d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
A
-8
D
E
8
1
D
E
A
-8
C
A
C
1
D
E
A
-8
B
7
0
1
D
E
A
-8
A
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K