Fréttablaðið - 06.10.2017, Page 24
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
NAME IT Kringlunni og Smáralind
Við fögnum
afmæli!
Bjóðum afmælislínu
á frábæru verði.
Glaðningur og uppákomur
fyrir börnin um helgina.
Hlökkum til að sjá þig!
Minnum einnig á
Kauphlaup í Smáralind
og Kringlukast í
Kringlunni um helgina.
Góð tilboð!
Bolur: 990
Peysa: 1.990
Buxur: 2.990
Ísland er lifandi land, bæði jarðfræðilega og líffræðilega séð,“ segir Finnur Ingimarsson,
forstöðumaður Náttúrufræðistofu
Kópavogs. Hann þekkir vel til áhuga
barna á jarðfræði landsins, sem
hægt er að skoða og fræðast um í
Náttúrufræðistofunni.
„Ísland er jarðfræðiundur og
með mest spennandi löndum
jarðar þegar kemur að jarðfræði. Sú
vitneskja, að búa á svo sérstökum
stað á jörðinni, kyndir undir áhuga
barnanna að kynnast landinu sínu
og jarðfræði þess. Landið er enda í
sífelldri mótun og með því að koma
í Náttúrufræðistofuna til að hand-
fjatla gripi og skoða viðburði úr
jarðsögu Íslands fá börnin nýja sýn á
landið sitt,“ segir Finnur.
Á Náttúrufræðistofunni má sjá
sýningar á fuglum, spendýrum,
krabbadýrum, skeldýrum og fiskum,
auk jarðfræði, og er ætlunin að
koma þeim í nútímalegri búning á
komandi misserum.
„Við byrjuðum á að endurgera
grunnsýningu um jarðfræði Íslands
sem segir frá myndun landsins og
útskýrir bæði jarðfræði og sögu á
myndrænan hátt.“
Opnun jarðfræðisýningarinnar
verður klukkan 15 á morgun, laugar-
dag, og stendur til klukkan 17.
„Meðal nýjunga eru kort sem
segja frá landmótun og mismunandi
bergtegundum, meðal annars hraun
sem runnið hafa á nútíma. Þar skipa
nýjustu hraunin á Fimmvörðuhálsi
og Holuhraun sinn sess og hægt
að snerta hraunmola úr þessum
stóru gosum. Bæði þessi gos vöktu
heimsathygli og flest börn muna
eftir þeim úr fréttum, sem gerir allt
enn áhugaverðara og skemmtilegra,“
segir Finnur.
Á komandi misserum munu
bætast við fleiri möguleikar til að
miðla fróðleik og upplýsingum með
lifandi hætti.
„Sjálfum finnst mér merkilegast
að atburðir jarðfræðinnar eru alltaf
að gerast og kenna okkur meira. Við
erum til dæmis að skilja betur að
eldstöðvar eru eins og menn, hver
með sinn karakter.“
Sýningarhönnun er í höndum
Axels Hallkels Jóhannessonar og
grafík í höndum margmiðlunarfyrir-
tækisins Gagaríns. Um smíðavinnu
og prentun sáu Merking og Verk-
stæðið. Formleg opnun jarðfræði-
sýningarinnar verður klukkan 15 á
morgun, laugardag, og mun Ármann
Kr. Ólafsson opna hana.
Hús Náttúrufræðistofunnar, þar
sem Bókasafn Kópavogs er einnig
til húsa, verður opnað klukkan 11
en þessi viðburður er hluti af Fjöl-
skyldustundum menningarhúsanna
í Kópavogi.
„Það verður æ vinsælla meðal
fjölskyldna að eiga notalegar stundir
hér í menningarhúsunum okkar og
njóta menningarviðburða af ýmsu
tagi,“ segir Finnur.
Í Gerðarsafni munu listamenn-
irnir Einar Garibaldi og Kristján
Steingrímur Jónsson opna mynd-
listarsýningar sínar klukkan 16
sama dag.
„Báðir eru listamennirnir með til-
vísun í jörðina í verkum sínum. Stutt
er á milli húsa og huggulegt þegar
kólna fer að koma inn úr kuldanum
til að lesa, dunda sér og fræðast um
bókmenntir, listir og jarðvísindi,“
segir Finnur.
Náttúrufræðistofa Kópavogs er í
Hamraborg 6a. Sjá nánar á natkop.is
Stórmerkilegt jarðfræðiundur
Ísland er náttúruundur í sífelldri mótun sem gaman er að fræðast um. Á morgun opnar Náttúru-
fræðistofa Kópavogs heillandi jarðfræðisýningu sem er spennandi upplifun fyrir alla fjölskylduna.
Finnur Ingimarsson, forstöðumaður
Náttúrufræðistofunnar. MYND/STEFÁN
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
A
-9
7
C
8
1
D
E
A
-9
6
8
C
1
D
E
A
-9
5
5
0
1
D
E
A
-9
4
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K