Fréttablaðið - 06.10.2017, Síða 28

Fréttablaðið - 06.10.2017, Síða 28
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Hörður Sigurjónsson man tímana tvenna í hótel- og veitingabransanum og hefur um leið fylgst með þróun jólahlaðborða hér á landi undan- farna áratugi. Rúm hálf öld er síðan hann byrjaði að læra til þjóns en það var árið 1966 á Hótel Sögu. Þar starfaði hann til ársins 1980 en þá færði hann sig um set og hóf störf á Broadway í Mjóddinni þar sem Ólafur Laufdal réð ríkjum. Næst hóf hann störf á Hótel Íslandi, einnig undir stjórn Ólafs, sem seinna meir breyttist í Broadway. Hann sneri svo aftur til baka á byrjunarreit þegar hann hóf loks störf hjá Hótel Sögu fyrir sex árum. Hann man vel eftir fyrstu árum jólahlaðborða en sá siður barst til landsins um 1980. „Ég man að það tók svolítinn tíma að kenna landanum að njóta þeirra með réttum hætti. Því þegar maður borðar af hlaðborði og vill virki- lega njóta þess sem í boði er, á að fara nokkrar ferðir og setja minna á diskinn í einu til að njóta vel.“ Nýir og klassískir réttir Á tæplega fjórum áratugum hafa jólahlaðborðin tekið ýmsum breytingum, ekki síst maturinn. „Það sem hefur alltaf verið vinsælt gegnum árin er t.d. síldin, en yfir- leitt er boðið upp á tvær til þrjár tegundir. Einnig má nefna reyktan og grafinn lax og roastbeef. Af kjötmeti hafa purusteikin, lamba- lærið og hangikjötið alltaf notið vinsælda. Það sem helst hefur bæst við á undanförnum árum eru grænmetisréttir, t.d. hnetu steik, og úrval eftirrétta hefur breyst mikið. Í upphafi var bara boðið upp á Ris à l’amande og kokteil ávexti. Í dag bjóða flestir stærri staðir upp á stórt og glæsi- legt eftirréttaborð með t.d. ferskum ávöxtum, marengs, alls konar útfærslum af kökum og 2-3 tegundum af ís.“ Enn vinsæl Þrátt fyrir að jólahlaðborðin hafi verið lengi við lýði finnst Herði staða þeirra sterk og fátt benda til annars en að þau haldi velli um ókomin ár. „Jólahlaðborðin, eins og þau eru í dag á stærri stöðunum með skemmtidagskrá, eru mjög vinsæl hjá stærri og minni fyrir- tækjahópum, sem koma saman og skemmta sér, borða góðan mat og fá sér snúning á eftir. Það breytist ekki neitt. Síðan eru minni veitingahúsin farin að bjóða upp á sérstaka jóla- matseðla sem eru ekki þessi eiginlegu jólahlaðborð heldur jólatengdir réttir í nýstár- legum útfærslum. Það hefur komið mjög vel út hjá mörgum stöðum.“ Honum hlýnar um hjartaræt- urnar þegar hann rifjar upp gömlu góðu árin. „Það sem stendur helst upp úr í minningunni er að tími jólahlaðborða var skemmtilegur tími ársins í skammdeginu. Þá komu fjölskyldur, vinir og vinnu- félagar saman til að njóta góðra veitinga og skemmta sér.“ Hörður Sigurjónsson hefur starfarð í hótel- og veitingabrans- anum í 51 ár. Tveir matreiðslumenn í Súlnasal á Hótel Sögu á sjöunda áratug síðustu aldar. Hljómsveit Ragnars Bjarna- sonar lék undir á mörgum jóla- hlaðborðum áður fyrr. Starri Freyr Jónsson starri@365.is 2 KYNNINGARBLAÐ 6 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RjÓLAHLAÐBoRÐ Jólahlaðborð Fjörukráarinnar Hefst 17. nóvember og stendur til 9. desember www.fjorukrain.is - Pantanir: birna@fjorukrain.is vikingvillage - Fjörukráin og Hótel vikingFylgstu með okkur á facebook 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E A -7 F 1 8 1 D E A -7 D D C 1 D E A -7 C A 0 1 D E A -7 B 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.