Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 32
Ég ætla sannarlega
að taka til matar
míns á jólahlaðborðinu,
enda hef ég heyrt að besti
jólamaturinn sé á Grand.
Svo er ég týpan sem spara
mig til að hafa nóg maga-
mál fyrir eftirréttina.
Fyrir mér eru þeir aðal-
réttirnir, svo ég verð
örugglega dugleg þar.
Hindberjamúsin
var í fínu glasi og
loks kom gullhringur upp
með skeiðinni. Uppi varð
fótur og fit og allir í
salnum klöppuðu.
Þetta verður gamaldags sjarmi enda eru jólin tími hefða og fallegt að hafa hlutina gamal-
dags,“ segir söngkonan Jóhanna
Guðrún sem ætlar að syngja
jólalög sem allar kynslóðir geta
tengt sig við á jólahlaðborði Grand
Hótel Reykjavík.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
syng á svona stóru jólahlaðborði
en mér finnst það spennandi.
Það er allt svo smart á Grand og
greinilega mikill hiti fyrir þessu
hlaðborði,“ segir Jóhanna Guðrún
og vísar til þess að nú þegar er upp-
selt á mörg jólakvöldanna á Grand
Hótel Reykjavík.
„Við erum spennt að byrja og
búin að fínpússa prógrammið sem
verður í klassískum fíling. Jólalögin
koma úr öllum áttum og eiga sam-
eiginlegt að hreyfa við manni og
vera hlaðin töfrum. Sjálf ólst ég upp
við jólalög systkinanna Ellyar og
Vilhjálms, Mahaliu Jackson, Celine
Dion og Frank Sinatra, en uppá-
haldsjólalag mitt úr dagskránni er
Hvít jól með Elly og Vilhjámi,“ segir
jólabarnið Jóhanna Guðrún.
„Ég elska jólin, og þegar jólin
eru búin bíð ég spennt eftir næstu
jólum. Aðdragandi jólanna er lang-
ur hjá mér því söngvertíðin byrjar
í október, sem mér finnst sjarmer-
andi og notalegt. Ég hef yndi af
jólabakstri og finnst meira að segja
jólahreingerningin skemmtileg.
Jólalög óma um heimilið og ég
elska að skreyta jólatréð. Svo bíð
ég auðvitað spennt eins og barn
eftir aðfangadagskvöldi og sam-
verunni með stórfjölskyldunni,
sem mér finnst það yndislegasta
við jólin; að fólk gefi sér tíma fyrir
hvert annað.“
Jóhanna Guðrún er tónlistar-
kona í fullu starfi og fullbókuð í
nóvember og desember. Þá er hún
kórstjóri barna- og unglingakórs
Vídalínskirkju ásamt unnusta
sínum, Davíð Sigurgeirssyni, sem
einnig er kórstjóri Gospel Jóns
Vídalín sem keppir nú í sjónvarps-
þættinum Kórar Íslands.
En þótt jólalögin verði í aðal-
hlutverki á Grand Hótel Reykjavík
segist Jóhanna ekki svíkjast undan
að syngja sín vinsælustu lög; Is it
true og Mamma þarf að djamma.
„Bæði eru sígild óskalög sem
ég hef líka gaman af að syngja. Ég
hlakka því mikið til þess að syngja
á Grand og ætla sannarlega að taka
til matar míns á jólahlaðborðinu,
enda hef ég heyrt að besti jóla-
maturinn sé á Grand. Ég elska malt
og appelsín, sem kemur mér alltaf í
jólaskap, sem og rauðkál, brúnaðar
kartöflur, og kalkún með góðri fyll-
ingu og sósu. Svo er ég týpan sem
spara mig til að hafa nóg magamál
fyrir eftirréttina. Fyrir mér eru þeir
aðalréttirnir, svo ég verð örugglega
dugleg þar,“ segir hún brosmild.
Gamaldags sjarmi og jólatöfrar
Söngkonan Jóhanna Guðrún syngur sígild og sjarmerandi jólalög yfir borðhaldi á jólahlaðborði
Grand Hótel Reykjavík. Hennar eftirlætis jólalag er Hvít jól með systkinunum Elly og Vilhjálmi.
Jóhanna Guðrún er svo heilluð af jólunum að hún elskar meira að segja jólahreingerninguna.
Úlfar Finnbjörnsson er nýr yfirmatreiðslumeistari á Grand Hótel Reykjavík.
Hér er ég heimalningur og kominn heim,“ segir Úlfar Finnbjörnsson og er strax
farinn að leika sér í eldhúsinu.
Hann er nýtekinn við sem yfir-
matreiðslumeistari á Grand Hótel
Reykjavík þar sem hann starfaði á
árum áður sem matreiðslumaður
og hefur undanfarin sjö ár staðið
fyrir vinsælu villibráðarhlaðborði.
Glæsilegt jólahlaðborð Grand
Hótel Reykjavík er margfrægt fyrir
frábært úrval jólalegra sælkera-
rétta og nú þegar er uppbókað á
nokkur kvöld.
„Þeim sem einu sinni hafa
gætt sér á jólakrásum jólahlað-
borðsins þykir engin jól nema að
mæta á Grand. Það er því gott að
panta sér borð tímanlega,“ segir
Úlfar. „Reynslan tryggir dásam-
lega bragðupplifun, stemningin er
hátíðleg og fjörug; og við náum að
sameina reynslu og ungan anda,“
segir Úlfar, og víst er að salarkynni
hótelsins eru skreytt hátt og lágt,
sem skapar ævintýralega umgjörð
utan um töfrandi samfundi fjöl-
skyldna, vina og vinnufélaga yfir
jólalegum mat og drykk.
Úlfar ætlar að slá um sig á jóla-
hlaðborðinu á Grand og bæta við
nýjum dýrindisréttum í bland við
hefðbundna jólarétti.
„Borðin munu sem endranær
svigna undan hangikjöti, rifja-
steikum, jólaskinkum, síldar- og
laxaréttum og ómótstæðilegum
eftirréttum, sem öllum þykir
ómissandi á jóladiskinn, en þó
er hangikjöt og hangikjöt ekki
það sama. Við verðum með grafið
hangikjöt, þurrkað, tvíreykt og í
alls kyns hátíðlegum búningi, og
með bleikju, urriða og heitreyktan,
íslenskan ál sem er herramanns-
matur og nátengdur jólahaldi á
Norðurlöndunum,“ segir Úlfar.
Rammíslensk tilþrif
Úlfar er einn af fremstu kokkum
Íslands og virtur á sínu sviði. Hann
er margverðlaunaður, búinn að
vera í kokkalandsliðinu og hefur
skrifað fjölda matreiðslubóka.
Hann segir áherslubreytinga að
vænta með nýjum manni í brúnni.
„Ég er nú þekktur fyrir að vera
rammíslenskur í matargerð og
hafa íslenskt hráefni í öndvegi. Við
komum til með að tína sveppi og
jurtir úr náttúrunni og nota meira
af villibráð á matseðli. Ég vil helst
hafa matinn í sauðalitunum, nota
íslenskt lambakjöt og íslenskan
fisk, og er ekkert í kengúrum eða
sebrahestum. Ég kæri mig ekki
um að láta flytja mat yfir hálfan
hnöttinn sem hægt er að kaupa
hér, enda er íslenskt hráefni það
albesta.“
Í eldhúsinu með Úlfari vinna
ungir og frískir kokkar í bland við
reyndari kokka sem leggja saman
reynslu og hæfileika á vogar-
Dýrðlega grand jólahlaðborð
Á Grand Hótel Reykjavík er matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson byrjaður að undirbúa hátíð í
bæ með glæsilegu jólahlaðborði og víst að jólagleðin nær hámarki í fegurð og góðgæti á Grand.
skálarnar. Útkoman er dásamlegir
jólaréttir.
„Jólahlaðborð Grand Hótel
Reykjavík er staðurinn til að vera á.
Hér vinnur framúrskarandi hæfi-
leikafólk og fáir sem kunna betur
þá list að gleðja munn og maga.
Við lærum hvert af öðru og í eld-
húsinu verður til einkar spennandi
upplifun fyrir bragðlaukana.“
Úlfar rifjar upp skemmtilega
sögu frá jólahlaðborði í eina tíð.
„Það var hérna á Grand í gamla
daga þegar þjóðþekktur maður,
sem hafði komið í hlaðborðið
með huggulegri dömu, kemur inn
í eldhús. Herramaðurinn tók upp
gullhring og bað mig að setja hann
ofan í eftirrétt sem hann ætlaði að
sækja til mín eftir matinn. Þegar
þau eru búin í aðalréttunum
blikkar hann mig og sækir hind-
berjamús í fínu glasi en fær sér ekk-
ert sjálfur heldur horfir á konuna
borða. Svo kom upp hringur með
skeiðinni og uppi varð fótur og
fit og mikið húllumhæ, og allir í
salnum klöppuðu,“ segir Úlfar um
þetta eina skipti sem hann hefur
lent í bónorði í glasi. „Það var eftir-
minnilegt og óskaplega gaman.“
Stórglæsilegt jólahlaðborð
Grand Hótel Reykjavík verður allar
helgar frá og með 17. nóvember til
15. desember. Verð 10.900 krónur
á mann.
Grand Hótel Reykjavík er í Sigtúni
38. Tryggðu þér borð á grand.is/
jol eða á jolahladbord@grand.
is – í síma 514 8000. Villibráðar-
hlaðborðið verður í boði helgarnar
21.-22 og 28.-29. október.
6 KYNNINGARBLAÐ 6 . o K tó B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RJóLAHLAÐBoRÐ
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
A
-5
7
9
8
1
D
E
A
-5
6
5
C
1
D
E
A
-5
5
2
0
1
D
E
A
-5
3
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K