Fréttablaðið - 06.10.2017, Page 38
12 KYNNINGARBLAÐ 6 . o K tó B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RjóLAhLAÐBoRÐ
Víða er til siðs að fara í leiki á jóla-
hlaðborðum, sérstaklega á smærri
vinnustöðum, í fjölskyldum og
vinahópum. Hér er einn sem vekur
alltaf lukku og leiðir gjarnan af sér
ærsl og skemmtileg læti:
Allir þátttakendur mæta með
eina innpakkaða gjöf og stilla
upp á miðju borði. Einn til tveir
teningar eru látnir ganga manna á
milli (fer eftir fjölda þátttakenda)
og má sá sem fær sex velja pakka
úr miðjunni. Þegar allir pakkarnir
eru búnir er gert hlé á leiknum.
Þá er skeiðklukka sett í gang og er
valkvætt hve langur tími er gefinn.
Gjarnan er þó miðað við fimm til
tíu mínútur. Þátttakendur taka
svo til við að kasta á ný og má sá
sem fær sex velja álitlegan pakka
úr höndum annars þátttakanda.
Þegar tíminn er úti sitja því ein-
hverjir eftir með marga pakka á
meðan aðrir sitja með engan.
Oft er það svo að stærstu pakk-
arnir eru eftirsóttastir og færist
gjarnan mikið fjör í leikinn þegar
menn eltast við þá. Þeir þurfa þó
ekki endilega að innihalda flott-
ustu gjöfina og er auðvelt að villa
um fyrir þátttakendum með því að
hafa umbúðirnar sem allra girni-
legastar.
Skemmtilegur
pakkaleikur
Öll höfum við labbað út úr verslun
með flík eða fylgihlut sem á
aldrei nokkurn tíma við nema á
aðfangadagskvöld. Á jólahlaðborði
gefst fágætt tækifæri til að nýta
þessar gersemar og skemmta sér og
öðrum með klæðaburði og fylgi-
hlutum. Kjólar með piparköku- og
piparmyntustafamynstri, forljótar
en samt svo dásamlegar jólapeys-
ur, eyrnalokkar úr jólakúlum eða
vanilluhringjum og batterísseríur
alls staðar þar sem hægt er að
koma þeim við, allt þetta mun létta
lund þeirra sem sækja hlaðborðið
með þér og þú verður mest töff, já
mest töff af öllum. Og ekki gleyma
bindinu með dónalega snjókall-
inum sem þú fékkst í skóinn.
Jólafín á
jólahlaðborði
jólaeyrnalokkar bæta, hressa og
kæta.
Jólahlaðborðin eru fremur ný af nálinni hér á landi en þau eiga rætur sínar að rekja
til Danmerkur þar sem löng hefð
er fyrir svokölluðum julefrokost.
Jólahlaðborðin voru í fyrstu með
nokkuð dönskum blæ en þau hafa
þróast og breyst í tímans rás og
sennilega hefur fjölbreytnin aldrei
verið meiri en einmitt í ár. Sumt
þykir þó ómissandi á jólahlaðborð
og þar er síld og hangikjöt fremst í
flokki. Samkvæmt vefnum www.
timarit.is var jólahlaðborð auglýst í
fyrsta sinn í desember árið 1981 og
birtist sú auglýsing í Alþýðublaði
Hafnarfjarðar. Þar auglýsir Gafl-inn
girnilegt jólahlaðborð og kemur
fram að leikin verði jólalög og von
sé á jólasveinum í heimsókn að
heilsa upp á gestina. Jólahlaðborðin
hafa svo sannarlega fest sig í sessi
og eru nú orðin ómissandi hluti af
upplyftingu fyrir jólin.
Jólahlaðborð fyrst auglýst 1981
jólahlaðborðin
þykja ómiss-
andi hluti af
desember-
mánuði.
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
A
-8
4
0
8
1
D
E
A
-8
2
C
C
1
D
E
A
-8
1
9
0
1
D
E
A
-8
0
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K